Morgunblaðið - 21.02.2019, Page 54
54 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2019
✝ Júlíus KristinnMagnússon
fæddist 2. desem-
ber 1946. Hann lést
á Heilbrigðisstofn-
un Norðurlands á
Siglufirði 9. febr-
úar 2019.
Foreldrar hans
voru Magnús Fr.
Árnason, aðallög-
fræðingur Bún-
aðarbanka Íslands,
f. 5.6. 1921, d. 9.6. 1992, og Sig-
rún Júlíusdóttir húsmóðir, f.
29.2. 1924, d. 4.5. 2008. For-
eldrar Magnúsar eru Árni
6.5. 1948, d. 8.1. 2001; Sigrún,
bókasafnsfræðingur og gæða-
stjóri, f. 9.11. 1950, býr á Akur-
eyri; Elín myndlistarmaður, f.
9.2. 1956, býr í Austurríki. Júlíus
var kvæntur Önnu Kristjönu
Torfadóttur borgarbókaverði, f.
25.1. 1949, d. 30.11. 2012. Þau
skildu. Dóttir þeirra er Vera,
kvikmyndagerðarkona og þýð-
andi, býr í Reykjavík.
Júlíus varð stúdent frá MR
1967, lauk cand. juris-prófi frá
Háskóla Íslands 1976 og fékk
héraðsdómslögmannsréttindi
árið 1979. Hann starfaði lengst
af sem sýslumannsfulltrúi á
Akureyri, í Hafnarfirði, á Eski-
firði og á Suðurnesjum. Júlíus
bjó síðustu æviár sín á Ólafs-
firði.
Útför hans fer fram frá
Laugarneskirkju í dag, 21. febr-
úar 2019, klukkan 15.
Bergsson, kaup-
maður og sím-
stöðvarstjóri í
Ólafsfirði, f. 9.10.
1893, d. 17.9. 1959,
og Jóhanna
Magnúsdóttir, hús-
móðir frá Akureyri,
f. 16.6. 1894, d.
18.6. 1965. For-
eldrar Sigrúnar eru
Júlíus Kr. Ólafsson
yfirvélstjóri, f. 4.7.
1891, d. 30.5. 1983, og Elínborg
Kristjánsdóttir húsmóðir, f.
30.9. 1887, d. 6.11. 1965. Systkini
Júlíusar eru Jóhanna Kristín, f.
Við Júlíus þekktumst í tvo ára-
tugi, og á þeim tíma þáði ég
margt þakkarvert frá honum.
Hann hafði sterka frásagnargáfu
og gat því sem næst sagt sögur af
stöðum og fólki nær hvar sem við
komum á Íslandi. Á þeim árum
sem við Vera dóttir hans vorum
gift fórum við oft um landið með
Júlla á sumrin, nær alltaf með ár-
bækur Ferðafélags Íslands í far-
teskinu. Hann hafði sérstakt dá-
læti á eldri útgáfum, líkt og þeim
mætti treysta betur en þeim
nýju. Kannski af því það voru
fleiri sögur og minni landafræði í
þeim gömlu sem maður þurfti að
skera sjálfur útúr.
Það fór ekki fram hjá neinum
sem kynntist Júlíusi að tónlist
skipti hann gríðarlegu máli.
Hann var fróður um sín tónskáld
og hljómsveitir, opinn fyrir nýj-
ungum, og gat rætt tónlist af
ástríðu. Eins þegar hann sagði
sögur af sjálfum sér og samferða-
fólki þá tók hann oft fram hvaða
tónlist lék undir þar í bakgrunni.
Sumir staðir á landinu voru
Júlíusi sérlega kærir, en fáir jafn
kærir og Ólafsfjarðará. Hann
hafði veitt silung í hverjum hyl og
streng frá því hann var strákur.
Á fullorðinsárum umgekkst hann
ána af smitandi ánægju. Honum
er að þakka hver einasti sporður
sem ég hef sjálfur dregið upp á
árbakka, þó að mér hafi aldrei
tekist að valda silungsstöng af
jafn miklum þokka og hann.
Það kom því tæplega á óvart
að Júlli keypti sér hús í Ólafsfirði
í göngufæri frá skíðabrekkunni,
og fluttist þangað eftir að hann
hætti að vinna í Keflavík. Vetur-
inn var alltaf hans árstíð. Það átti
vel við að Tröllaskaginn með
fjöllum sínum og dölum laðaði
hann norður undir heimskauts-
baug síðustu árin. Ég minnist
Júlíusar af þakklæti og hlýju, og
sendi Veru og ættingjum hennar
hlýjar samúðarkveðjur við fráfall
hans.
Gauti Sigþórsson.
Okkur bekkjarbræðrunum er
enn fast í minni þegar leiðir lágu
fyrst saman í MR forðum daga.
Þetta var sundurleitur hópur,
eins og reyndar allir hópar, og
var hver maður með sínu mark-
inu brenndur. Það sem líklega
hefur í fyrstu þótt einkenna Júl-
íus Magnússon var að hann var
stilltur og kurteis, tranaði sér
aldrei fram. Frekari kynni okkar
af honum leiddu svo í ljós aðra
góða eðliskosti hans og við kynnt-
umst áhugamálum hans. Þannig
var hann hreinn og ærlegur í öll-
um samskiptum við okkur skóla-
bræðurna og án alls vafa hafa
aðrir mátt reyna hann að því
sama. Þótt hann væri ljúfur og
kurteis í dagfari var hann engin
geðlurða því að undir stillingunni
bjuggu heitt skap og vel mótaðar
skoðanir. Júlíus hafði mikla og
fínstillta kímnigáfu, frekar í
þurrari kantinum. Var fyndni
hans aldrei gróf eða klúr og hæfði
hvaða mannsöfnuði sem var.
Smekkmaður var hann á músík,
bæði klassík og jazz, og einnig
var hann lestrarhestur á skáldrit.
Margir okkar urðu þeirrar
ánægju aðnjótandi að koma á
heimili hans og kynnast foreldr-
um hans og systrum, menningar-
heimili þar sem tónlist var í há-
vegum höfð. Júlíus var flinkur
skíðamaður, keppti í svigi og
kenndi sumum skólabræðrunum
á skíði af natni, nærfærni og
skemmtan. Hefur hann líklega
haft kennarahæfileika á því sviði.
Við söknum sárt góðs vinar og
félaga og þökkum fyrir að hafa
mátt njóta samferðar með
honum.
Fyrir hönd bekkjarbræðra úr
MR,
Pétur Guðgeirsson
Júlíus varð cand. juris frá laga-
deild Háskóla Íslands 28. febrúar
1976 með góðum vitnisburði. Í
framhaldi af því starfaði hann
sem fulltrúi bæjarfógetans á
Akureyri og Dalvík um nokkurra
ára skeið. Hann gegndi síðar
fulltrúastöðum sem kröfðust
lagaþekkingar við önnur embætti
þar sem hann var m.a. yfir-
lögfræðingur eða settur bæjar-
fógeti og sýslumaður um skeið. Á
tímabili rak hann einnig lög-
mannsstofu. Embættisstörf hans
og önnur störf á sviði lögfræði
voru einkar farsæl en Júlíus var
þekktur fyrir að leggja sig mjög
fram í þeim málum sem hann
annaðist.
Júlíus var einn af fyrstu nem-
endum mínum. Samskipti við
hann strax á þeim árum voru tíð.
Með okkur myndaðist fljótlega
afar sterkt vináttusamband sem
átti eftir að endast meðan hann
lifði. Sameiginlegt áhugamál okk-
ar var einkum útivist og veiðar.
Við fórum saman í margar ferðir
á hverju ári með félögum okkar.
Þessar ferðir voru okkur ávallt
ofarlega í huga og mikill tími fór
ávallt í undirbúning, skipulagn-
ingu og framkvæmd.
Júlíus var einstakur maður,
skemmtilegur og trygglyndur.
Hann var afar vel lesinn, minn-
ugur með afbrigðum og lá aldrei
á pólitískum eða lögfræðilegum
skoðunum sínum. Slíkar skoðanir
setti hans oftlega fram með
gamansömum rökstuðningi og
fullyrðingum. Þetta gaf oft tilefni
til að takast hart á. Júlíus var þó
ávallt reiðubúinn til að endur-
skoða fyrri fullyrðingar ef í ljós
kom að þær hefðu ekki við full
rök að styðjast. Júlíus var nánast
alls staðar vel heima. Það gilti um
bókmenntir, skíðasögu, skák-
sögu, sögu pólfara, hljómlist, lög-
fræði, tungumál og svo fram-
vegis. Hann ræddi þó aldrei um
þetta sérstaklega. Það bara valt
út úr honum án áreynslu.
Ég minnist tveggja samfelldra
nátta á öræfum. Við lágum fjögur
inni í þriggja manna tjaldi í kol-
vitleysu veðri. Svo vont var veðr-
ið að ekki var unnt að fara út úr
tjaldinu til að ganga erinda sinna
nema að verða holdvotur og kald-
ur. Það þótti því ekki mjög
árennilegt. Við þessar aðstæður
sagði Júlíus endalausar sögur af
pólförum fyrri tíma og hrakning-
um þeirra. Um það leyti sem Júl-
íus lauk sínum skemmtilegu sög-
um um sigra og ósigra pólfara á
norður- og suðurpólnum slotaði
veðrinu.
Við héldum því ferð okkar
áfram glöð í bragði án þess að
taka mikið eftir óveðrinu.
Ég kveð góðan vin um langa
lífsleið. Dóttur hans, Veru, og
ættingjum færi ég samúðar-
kveðjur.
Stefán Már Stefánsson.
Júlíus Kristinn
Magnússon
✝ Halldór Sverr-ir Arason
fæddist 10.
september 1938 í
Reykjavík. Hann
lést á Hrafnistu í
Reykjavík 11.
febrúar 2019.
Foreldrar hans
voru Ari Guðjóns-
son f. 7.4. 1914, d.
16.8. 1996, og Sal-
vör Veturliða-
dóttir, f. 24.9. 1914, d. 15.1.
2008. Systkini Halldórs eru:
Sigrún, f. 1937, d. 2006, og
Helgi, f. 1943.
Þann 31.12. 1960 kvæntist
Halldór Ingibjörgu Magn-
úsdóttur, f. 27.8. 1938, d. 12.2.
2018. Foreldrar hennar voru
Magnús Guðberg Elíasson og
Emelía Jósefína Þórðardóttir.
Börn Halldórs og Ingibjarg-
ar eru: 1) Ragnheiður, f. 10.11.
1960. Dætur hennar eru Sara
Friðrik, f. 1995, Thomas Ari, f.
1997, og Liselotte Emilie, f.
1998. 3) Ari, f. 1.6. 1963, eigin-
maður hans er Björn Alexand-
ersson, f. 1962. 4) Hilmar Óð-
inn, f. 20.7. 1966, d. 16.1. 1967.
5) Jóhann Reynir, f. 16.11.
1968, eiginkona hans er Hilda
Julnes, f. 1968. Börn þeirra eru
Arnar Ingi, f. 1992, og Anna
Rún, f. 1996. 6) Kristinn Þórð-
ur, f. 25.11. 1971, eiginkona
hans er Katrín Elly Björns-
dóttir, f. 1979. Börn þeirra eru
Halldór Björn, f. 2002, Hringur
Birgir, f. 2004, Ágústa Elly, f.
2011, og Magnús Helgi Ottó, f.
2013. 7) Helga, f. 28.5. 1975,
eiginmaður hennar er Brjánn
Birgisson, f. 1974. Börn þeirra
eru Björt, f. 2004, Úlfur, f.
2006, og Jóhanna Ingibjörg, f.
2010.
Halldór ólst upp í Reykjavík
til átta ára aldurs en fluttist þá
með fjölskyldu sinni til Akra-
ness. Halldór og Ingibjörg
bjuggu lengst af í Hólabergi 50
en síðustu tvö árin bjó Halldór
á Hrafnistu í Reykjavík.
Útför Halldórs fer fram frá
Fossvogskirkju í dag, 21. febr-
úar 2019, klukkan 15.
Sturludóttir, f.
1983, eiginmaður
hennar var Andri
Fannar Guð-
mundsson, f. 11.5.
1981, d. 6.1. 2015,
sambýlismaður
Söru er Hlynur
Kristjánsson, f.
1981, dætur henn-
ar eru Birna Sif
Andradóttir, f.
2008, og Kristrún
Elma Andradóttir, f. 2012. Est-
er Sturludóttir, f. 1985, sam-
býlismaður hennar er Stefán
Þór Hafsteinsson, dætur þeirra
eru Elsa Ragnheiður, f. 2008,
og Sara Guðrún, f. 2015. Elma
Sturludóttir, f. 1991, sambýlis-
maður hennar er Daníel Þór
Þorsteinsson, og Sunna Sturlu-
dóttir, f. 1994, sambýlismaður
hennar er Sævar Þór Vignis-
son. 2) Magnús Emil, f. 9.3.
1962. Börn hans eru Arnþór
„Jæja, hvað ertu að lesa
pabbi?“ Oft fyrsta spurning sem
ég spurði pabba þegar ég kom
eða hringdi í hann og svarið, jú
ef hann var ekki að lesa nor-
ræna sakamálasögu þá gat hann
sökkt sér í fræðibækur um
norska trébáta eða bækur um
sjúkdóma og sóttarfar á miðöld-
um. Eitthvað nógu skrítið og
sértækt. Pabbi var mikill bóka-
unnandi og var alltaf með bóka-
stafla alls staðar í kringum sig
og gleraugun efst á bunkanum.
Oftast nær voru útrunnir lottó-
miðar notaðir sem bókamerki –
það mátti ekki henda neinu.
Pabbi var einstaklega þolin-
móður, hann kvartaði aldrei þó
tónlistin væri hækkuð í botn á
unglingsárunum, það mátti vera
drasl í herberginu mínu því
hann leit á það sem mitt athvarf.
Allar vinkonur mínar og vinir
voru alltaf velkomin og þeim
boðið upp á kaffi og svo var bara
hangið í eldhúsinu eða stofunni
og spjallað.
Þetta var nákvæmlega stemn-
ingin á æskuheimili mínu, allt
svo afslappað en samt engin
óregla eða neitt vesen. Pabbi og
mamma eyddu ekki orkunni í
eitthvað sem skiptir – þegar
upp er staðið – engu máli.
Pabbi vann alla tíð mjög mik-
ið enda var það hans kappsmál
að halda húsnæði og eiga alltaf
nóg af mat fyrir fjölskylduna,
hann varð því mjög glaður dag-
inn sem hann hætti að vinna og
fór á eftirlaun. Þá fórum við
ásamt mömmu í ferð til Dan-
merkur. Ég hef sjaldan séð
hann jafn hamingjusaman og
þá, við fengum okkur koníak í
flugvélinni því hann var svo
flughræddur, nutum þess að
drekka öl og borða smurbrauð í
Kaupmannahöfn. Kíktum á
Hviids Vinstue og í tóbaksbúðir.
Hann naut eftirlaunaáranna
vel og dekraði við barnabörnin.
Fór í veiðiferðir, málaði, las og
rölti um hverfið því hann hafði
mjög gaman af að spjalla við
alls konar fólk – sérstaklega ef
fólk var nógu skrítið og jafnvel
utangarðs.
Fyrir akkúrat ári lést
mamma og eftir það missti
pabbi einhvern veginn taktinn.
Hann og mamma voru mjög
samrýnd alla tíð og svo góðir
vinir. Pabbi lifði í akkúrat ár
eftir fráfall mömmu, hann lést
mánudaginn 11. febrúar í faðmi
fjölskyldunnar og saman hlust-
uðum við á sellósvítur Bachs allt
þar til hann tók síðasta andar-
dráttinn. Eitt af því síðasta sem
hann sagði við mig var að hann
myndi vel eftir því að ég hefði
boðið honum heim að hlusta á
Bach, ég bauð upp á sérrí og
hann átti tóbak… hin fullkomna
stund.
Helga Halldórsdóttir.
Halldór Sverrir
Arason
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Guðmundur Baldvinsson,
umsjón útfara
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Vesturhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
REBEKKA STÍGSDÓTTIR
frá Horni,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Eyri, Ísafirði,
föstudaginn 15. febrúar.
Jarðarförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 23. febrúar
klukkan 14.
Frímann A. Sturluson Auður Harðardóttir
Jónína Sturludóttir Helgi Jónsson
Stígur H. Sturluson Ásgerður Ingvadóttir
Guðjón E. Sturluson Hrefna Rósinbergsdóttir
Friðgerður Ebba Sturludóttir
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn
Okkar elskulegi
LÚÐVÍK DAVÍÐSSON,
áður til heimilis að Melagötu 5,
Neskaupstað,
lést 14. febrúar.
Útför hans fer fram frá Norðfjarðarkirkju
laugardaginn 23. febrúar klukkan 14.
Anna Björnsdóttir
Björn Lúðvíksson Sólveig Baldursdóttir
Finnur Lúðvíksson Guðlaug Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
KRISTÍN JÓNSDÓTTIR,
áður til heimilis á Sléttuvegi 13,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir mánudaginn
19. febrúar. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn
5. mars klukkan 13.
Jóna Helgadóttir
Eysteinn Helgason Kristín Rútsdóttir
Matthildur Helgadóttir Tómas Óli Jónsson
Guðleif Helgadóttir Haraldur Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
STEFANÍA RÓSA SIGURJÓNSDÓTTIR,
Hjallalundi 22, Akureyri,
lést á hjúkrunarheimilinu Hlíð föstudaginn
15. febrúar.
Útförin fer fram í kyrrþey að hennar eigin ósk.
Heimir Ingimarsson
Sigríður Benjamínsdóttir
Sigþór, Lára Ósk, Hafþór Ingi
og fjölskyldur