Morgunblaðið - 21.02.2019, Qupperneq 62
62 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2019
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Dansarinn Unnur Elísabet Gunn-
arsdóttir hélt vel heppnaða listahá-
tíð í Mengi í nóvember árið 2017
sem bar heitið Ég býð mig fram. Á
henni runnu saman myndlist, dans,
tónlist og texti og flutti Unnur 13
þriggja mínútna löng örverk eftir
jafnmarga listamenn úr ólíkum
áttum. Nú endurtekur hún leikinn
með nýjum listamönnum og nýjum
verkum á listahátíðinni eða sýning-
unni Ég býð mig fram/ Seríu 2 sem
frumsýnd verður í kvöld í Tjarnar-
bíói.
Að þessu sinni eru höfundarnir
14 og örverkin jafnmörg, um eða
rétt yfir þrjár mínútur hvert og líkt
og áður er aðeins einn flytjandi,
þ.e. Unnur sem er jafnframt list-
rænn stjórnandi og leikstjóri sýn-
ingarinnar eða hátíðarinnar. Höf-
undarnir 14 eru Almar Steinn
Atlason, Álfrún Helga Örnólfs-
dóttir, Frank Fannar Petersen,
Friðgeir Einarsson, Gréta Kristín
Ómarsdóttir, Helgi Björnsson, Ilm-
ur Stefánsdóttir, Ingvar E.
Sigurðsson, Kitty von Sometime,
Kristinn Arnar Sigurðsson, Steinar
Júlíusson, Ólafur Darri Ólafsson,
Ólöf Kristín Helgadóttir og Urður
Hákonardóttir. Ekkert er gefið
upp um verk hvers og eins enda
hluti af gleðinni að láta koma sér á
óvart, að sögn Unnar.
Fyrirlestur um sand
„Þetta er miklu stærra en síðast,
stærri sýningarstaður og þetta er
meiri listahátíð af því það verður
myndlistarsýning og gjörningur
frammi í anddyri þegar fólk mætir,
Ég býð mig fram-drykkurinn á
barnum og stemning,“ segir
Unnur, sem tekur sér örstutt hlé
frá æfingu í Tjarnarbíói til að ræða
við blaðamann. „Og Almar, Almar í
kassanum, verður með svakalegan
gjörning frammi sem ég held að
fólk eigi eftir að tala um,“ bætir
Unnur við og brosir. Blaðamaður
spyr hvort það verði krassandi
gjörningur og segist hún geta lofað
því en Almar vakti mikla athygli
fyrir fjórum árum þegar hann hafð-
ist allsnakinn við í kassa í Listahá-
skóla Íslands í heila viku.
Unnur segir seinustu hátíð, árið
2017, hafa gengið rosalega vel og
því hafi hún ákveðið að halda aðra.
Og verkin eru mjög skemmtileg og
ólík hvert öðru, að hennar sögn.
„Ég er hangandi í loftinu í fim-
leikahringjum í einu þeirra og fer
með fyrirlestur um sand,“ segir
Unnur og hlær. „Svo eru þetta leik-
verk og eitt verkið veit ég reyndar
ekkert hvað verður af því ég fæ
bara bréf sem ég þarf að opna á
sviðinu og framkvæma það sem í
því stendur. Ég skelf dálítið á bein-
unum yfir því að vita ekkert hvað
mun gerast.“
Helgi og Ingvar með dansverk
Helgi Björnsson, leikari og tón-
listarmaður, samdi dansverk fyrir
Unni og einnig leikarinn Ingvar E.
Sigurðsson. Blaðamanni leikur for-
vitni á því hvernig listamenn úr
öðrum listgreinum en dansi fari að
því að semja dans fyrir dansara og
segir Unnur að þeir þurfi að eiga í
samstarfi við hana. „Við hittumst
og mætumst sem ólíkir listamenn,“
útskýrir hún, „maður þarf svolítið
að vera í stúdíóinu og finna hvað
maður er að gera.“
– Finnst þér dansverkin, til
dæmis, dæmigerð fyrir persónuna
sem er að semja þau eða koma þau
á óvart?
„Þetta er búið að koma mér mjög
mikið á óvart og er eiginlega allt
öðruvísi en ég bjóst við. Maður veit
náttúrlega aldrei neitt, ég bara býð
mig fram, algjörlega auðmjúk og
segi: ég ætla að framkvæma það
sem þú vilt. Í rauninni veit maður
aldrei í upphafi ferlisins hvað er að
fara að gerast sem er mjög spenn-
andi en líka svolítið hættulegt og
skelfilegt,“ segir Unnur og hlær
við.
Leiðist að vera ein í stúdíói
Örverkin þurfa ekki að vera
dansverk, eins og fram hefur komið
og segir Unnur höfunda hafa mikið
listrænt frelsi. „Þetta er opið, ég
framkvæmi verkið þitt, sem þig
hefur kannski dreymt um að setja á
svið lengi og ef einhverjar hug-
myndir kvikna þá bara framkvæmi
ég það,“ útskýrir hún. Fyrir vikið
séu verkin af öllu tagi og meira að
segja myndlistarsýningar. „Svo er
ég með eitt verk líka en ég var ekki
með neitt verk síðast,“ segir Unnur
og að verkið hennar gerist á Bessa-
stöðum.
– Hvers vegna ákvaðstu að gera
þetta upphaflega? Varstu í leit að
einhverju?
„Ég fékk bara þessa hugmynd og
maður veit náttúrlega aldrei hvern-
ig hugmyndir koma til manns,“
svarar Unnur. „Ég var með sóló-
verk í huga og var búin að melta
það lengi en svo er ég bara svo fé-
lagslynd og finnst svo rosalega
leiðinlegt að vera ein í stúdíói að ég
hugsaði með mér að mig langaði að
setja upp sólóverk en líka að vinna
Spennandi, hættulegt og skelfi
Dansarinn Unnur Elísabet Gunnars-
dóttir heldur listahátíðina Ég býð mig
fram öðru sinni og nú í Tjarnarbíói
14 listamenn sömdu örverk fyrir
hana og meðal verka eru „svakalegur“
gjörningur og myndlistarverk
Bókamarkaðurinn á sér áratuga
sögu og eiga margir sem komnir eru
af léttasta skeiði ljúfar minningar frá
sjöunda og áttunda áratugnum þegar
hann var haldinn í Listamannaskál-
anum svonefnda við Alþingishúsið.
Skálinn var rifinn fyrir mörgum ár-
um þegar Kjarvalsstaðir voru byggð-
ir og undanfarin ár hefur árlegur
bókamarkaður Félags íslenskra
bókaútgefenda verið haldinn undir
stúku KSÍ við Laugardalsvöll. Á
slaginu 10 í fyrramálið verður mark-
aðurinn opnaður og eftirleiðis á sama
tíma alla daga og opinn til kl. 21 fram
til 10. mars.
„Þá pökkum við saman upp á nýtt
og förum til Akureyrar þar sem
bókamarkaðurinn heldur áfram á
Glerártorgi út marsmánuð. Því næst
liggur leiðin til Egilsstaða, en þar
hefur bókamarkaðurinn ekki verið
haldinn í nokkur ár og bókaunn-
endur bæjarins því mjög spenntir
fyrir endurkomu hans,“ segir Bryn-
dís Loftsdóttir hjá Félagi íslenskra
bókaútgefenda og bætir við að sam-
fara sölunni verði sífellt endurnýjun
á bókamarkaðnum. „Sumpart vegna
þess að einhverjir útgefendur ranka
seint við sér,“ segir hún.
Bryndís hefur staðið vaktina á
bókamarkaðnum í mörg undanfarin
ár og þekkir því lestrarsmekk land-
ans allvel. „Hlutdeild barnabóka er
um 45% bæði í sölu og eintökum, sem
bendir ótvírætt til að foreldrar séu
duglegir að lesa fyrir börnin sín og/
eða halda að þeim bókum. Undan-
farin ár hefur eftirspurnin eftir
glæpasögum í kiljum aukist jafnt og
þétt og í fyrra kom okkur svolítið á
óvart hversu mikill áhugi var á ævi-
sögum. Einnig finnum við fyrir auk-
inni eftirspurn eftir alls konar úti-
vistarbókum; gönguleiðabókum og
Næstum
kílómetri
af bókum
Bókamarkaður Félags íslenskra bóka-
útgefenda verður opnaður á morgun