Morgunblaðið - 19.03.2019, Side 10

Morgunblaðið - 19.03.2019, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2019 Ferming Veislulist sér um veitingar fyrir fermingar af öllum stærðum, hvort sem er í veislusal eða heimahús Í yfir 40 ár hefur Veislulist lagt áherslu á góða þjónustu og framúrskarand matreiðslu. FERMINGAVEIsluR Verð er fyrir 30-50 manna veislu án leigu á veislusal. Bættu við marsipan fermingartertu með 20% afsl. 3ja rétta sTEIKARhlaðborð Verð er fyrir 30-50 manna veislu án leigu á veislusal. Bættu við marsipan fermingartertu með 20% afsl. PINNAMatur Verð er fyrir 30-50 manna veislu án leigu á veislusal. Bættu við kransaköku 30 manna á kr. 16.500 kaffihlaðborð Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is SKÚTAN Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Yfir 100 íbúar í Hjallahverfi í Kópa- vogi hafa ritað undir mótmælaskjal þar sem kvartað er yfir fyrirhug- uðum breytingum á deiliskipulagi við Dalveg. Á lóðinni nr. 32 við gatnamót Breiðholtsbrautar og Ný- býlavegar á að rísa stórt skrifstofu- hús og telja íbúarnir að starfsemin þar muni hafa mikil áhrif á umferð um Dalveg sem er aðalumferðarleið þeirra til og frá heimilum sínum. Samkvæmt deiliskipulagstillögunni verða 300 bílastæði við fyrirhugaða byggingu og í bílakjallara hennar. Að sögn Sigurðar Arnar Sigurðs- sonar, íbúa í Skógarhjalla, er mikil umferð um Dalveg og er hún mjög þung á álagstímum. Búast megi við því að hún aukist verulega í kjölfar nýbyggingarinnar. Sigurður segir að íbúarnir séu í sjálfu sér ekki á móti því að byggt sé á svæðinu, en þeir vilji sjá heildarlausn þar sem tekið sé á aukinni umferð. Ný um- ferðarljós voru sett upp við gatna- mót Dalvegar og Hlíðarhjalla fyrir nokkru og þykja til mikilla bóta. Þar myndist hins vegar langar biðraðir á álagstímum og eigi eftir að aukast ef engar ráðstafanir verði gerðar vegna nýbyggingarinnar. Í auglýsingu bæjaryfirvalda segir að breytingin á deiliskipulaginu sé í samræmi við Aðalskipulag Kópa- vogs 2012 til 2024 og markmið sem þar komi fram um þéttingu byggð- ar. Skipulagssvæðið sé tæpir tveir hektarar að stærð. Búast megi við því að umferðarálag aukist um 1.680 bíla á sólarhring. Aukningin sé hlut- fallslega lítil og hafi takmörkuð áhrif á hljóðvist og heilsu. Brugðist verði við aukningunni með því að bæta umferðarflæði á Dalvegi og með því að auðvelda umferð með- fram byggingarreitnum sunnan húsanna frá Dalvegi 32 að Lind- arvegi. Áhrif á samfélagið eru sögð jákvæð og felist í góðri nýtingu lands. Sigurður Örn segir að íbúarnir hafi átt samtöl við fulltrúa bæjaryf- irvalda um málið og fyrirhugaður sé fundur með Ármanni Kr. Ólafssyni bæjarstjóra á morgun. Áhugi sé á því að haldinn verði íbúafundur um málið innan skamms þar sem leitað verði lausna á deilunni. Í undirskriftaskjalinu er bent á að gildandi skipulag geri ráð fyrir lág- reistri byggð á svæðinu. Vegna hærri lofthæðar samsvari nýbygg- ingin 9 hæða blokk. Byggingar- magnið og stærðin séu langt um- fram það sem eðlilegt megi teljast á þessum stað. Bent er á að eftir sé að reisa byggingar á lóðunum nr. 24, 26, 28 og 30 og geri megi ráð fyrir því að þrýst verði á að þær verði jafn stórar og sú sem rísa á við Dal- veg 32. Þeim myndi fylgja enn frek- ari aukning á umferð um Dalveg. Teikning/Kópavogsbær Nýbygging Horft til suðvesturs frá gatnamótum Nýbýlavegar, Dalvegar og Breiðholtsbrautar. Íbúar óttast þyngri umferð um Dalveg  Safna undirskriftum gegn breytingu á deiliskipulagi Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Ég virði þessa ákvörðun og skil. Ég hefði helst viljað hafa öll sveit- arfélögin með í þessu, Kópavog líka, en ekki þýðir að fást um það. Svona er staðan,“ segir Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ og stjórn- armaður í Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH), um þau áform Hafnarfjarðarbæjar að draga sig út úr samstarfi sveitarfé- laganna um akstursþjónustu fatl- aðra. Samstarfssamningur sveitarfé- laganna á höfuðborgarsvæðinu, annarra en Kópavogsbæjar, um akstursþjónustuna rennur út um áramót. Hugað er að útboði að nýju en Strætó annast það. Gunnar segir að í ljósi frétta af áformum Hafnarfjarðar reikni hann með að öll hin sveitarfélögin séu að meta stöðu sína. „Við eigum fund á föstudag með Strætó og fulltrúum velferðarsviða sveitarfélaganna þar sem farið verður yfir ástæður þess að kostnaðurinn hefur hækkað jafn mikið í gegnum tíðina og raun ber vitni og þjónustulýsingu væntanlegs útboðs. Það þarf að hefja undirbún- ing nýs útboðs,“ segir Gunnar. Kostnaður aukist mikið Fram kom hjá Rósu Guðbjarts- dóttur, bæjarstjóra í Hafnarfirði, í blaðinu í fyrradag að kostnaðar Hafnarfjarðarbæjar hefði aukist um helming á undanförnum árum en samstarfið hófst árið 2014. Lýsir hún þeirri skoðun sinni að þjón- ustan hafi heldur ekki batnað. Gunnar segir að vissulega hafi kostnaður við aksturinn aukist verulega og orðið mun meiri en gert var ráð fyrir í upphafi. Nefnir hann að kostnaður Mosfellsbæjar hafi aukist úr 20-30 milljónum í um 100 milljónir. Þessa þróun þurfi að greina. Tekur hann fram að kostn- aðarhliðin hafi margoft verið rædd í stjórn SSH. Telur Gunnar að markmið um betri og öruggari þjónustu hafi náðst. Reykjavíkurborg, Seltjarnarnes- bær, Mosfellsbær og Garðabær stóðu saman að akstursþjónustunni, auk Hafnarfjarðarbæjar. Greina ástæðu aukins kostnaðar  Sveitarfélögin meta stöðu sína eftir að Hafnarfjörður slítur samstarfi Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við vildum fagna 30 ára afmæli bjórsins með stæl,“ segir Halldór Ægir Halldórsson, vörumerkjastjóri hjá Vínnes. Fyrirtækið flytur inn hinn vinsæla bjór Stella Artois frá Belgíu en síðustu vikur hefur verið hægt að kaupa bjórinn á mun lægra verði í Vínbúðunum en alla jafna. Verðið á vinsælustu einingunni, 330 ml flösku, var lækkað um 39%. Kostar hver flaska nú 219 krónur sem gerir Stellu að ódýrasta flösku- bjórnum í ríkinu. Allt er þetta dálítið sérstakt því Stella hefur verið lang- vinsælasti flöskubjórinn hér á landi. Í fyrra seldust rétt tæplega milljón flöskur hér, næstum þrefalt meira en af næstvinsælasta flöskubjórn- um. „Auðvitað er ekki hægt að bjóða svona verð nema með aðkomu fram- leiðandans. Við fáum bjórinn á góðu verði tímabundið og lækkum okkar hlut alveg niður í botn. Það er ekki hægt að halda svona verðum út ár- ið,“ segir Halldór en tilboð þetta stendur út mánuðinn. Viðtökurnar hafa verið afar góðar. „Við vorum með miklar væntingar en viðtökurnar hafa farið fram úr þeim. Við höfum aldrei séð viðlíka sölu og Stellan hefur verið að klárast í Vínbúðum á föstudögum og laugar- dögum,“ segir Halldór. Það sem af er marsmánuði nemur söluaukning á Stellu Artois í heildina 151% miðað við sama tímabil í fyrra. Söluaukn- ingin er mest í 330 ml flöskunni, alls 229%. Mega ekki auglýsa neins staðar „Við höfum auðvitað ekki getað auglýst þetta neitt. Auglýsingar eru ekki leyfðar í fjölmiðlum eða í Vín- búðunum. Þetta er eina tólið sem við höfum, verðbreytingar, og þessi lækkun hefur bara borist manna á milli. Ég hef heyrt í alveg ótrúlega ánægðu fólki. Svo verður gaman að sjá hvort maður hafi ýtt við öðrum og hvað gerist í kjölfarið.“ Morgunblaðið/Eggert Skál! Þrjátíu ára afmæli bjórsins á Íslandi er fagnað með lægra verði. Salan rauk upp þegar verðið lækkaði  150% söluaukning á vinsælum bjór Einn þeirra tæplega 30 ökumanna sem lögreglan á Suðurnesjum hefur kært fyrir of hraðan akstur á und- anförnum dögum sinnti ekki stöðv- unarmerkjum lögreglubifreiðar á Reykjanesbraut heldur ók rakleiðis áfram í átt að Flugstöð Leifs Eiríks- sonar. Lögreglumenn veittu honum eftirför alllanga vegalengd en hann lét ekki segjast fyrr en annarri lög- reglubifreið var ekið á móti honum og þá loks stöðvaði hann. Þarna var á ferðinni erlendur ferðamaður sem játaði hraðaksturinn, sem mældist 157 km á klukkustund, og greiddi sekt á staðnum, segir í dag- bók lögreglunnar. Öðrum ökumanni þurfti að veita eftirför þar sem viðkomandi stöðv- aði ekki bifreið sína þrátt fyrir notkun forgangsljósa. Sá var grun- aður um ölvunarakstur. Þá voru skráningarnúmer fjar- lægð af nær tíu bifreiðum sem voru óskoðaðar eða ótryggðar. Enn fremur hafði lögregla afskipti af allmörgum ökumönnum sem virtu ekki stöðvunarskyldu, töluðu í síma undir stýri eða lögðu ólöglega. Lögregla veitti ökuníðingi eftirför

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.