Morgunblaðið - 19.03.2019, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 19.03.2019, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2019 Sími 555 2992 og 698 7999 • Við hárlosi • Mýkir liðina • Betri næringar- upptaka Náttúruolía sem hundar elska Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta. Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við mælum með Dog Nikita hundaolíu. Páll Ingi Haraldsson EldurÍs hundar Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda • Gott við exemi • Betri og sterkari fætur Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á „Í raun er hans kenning búin að sanna sig þannig. Veltutölurnar eru þær sömu en það eru fleiri kúnnar,“ segir Stefán en að hans sögn hefur lægra verð augljóslega í för með sér meiri umferð um staðinn. „Það er betri nýting á starfsfólk- inu og betri nýting á húsnæðinu. Það eina sem ég á eftir að reikna út er hvernig þetta kemur út hráefnislega. En á móti kemur að fólk leyfir sér meira og fær sér kannski forrétt eða hvítvínsglas. Ef ég tek heildartöluna getur vel verið að þetta standi í stað eða verði hugsanlega meira,“ segir Stefán. Mega ekki missa túristana Aðspurður segist Stefán telja að fleiri veitingastaðir gætu gert hið sama og Þrír frakkar. Segir hann í raun nauðsynlegt að lækka verð í Reykjavík, hvort sem það er á veit- ingastöðum eða annars staðar. „Fólk á að reyna að heimfæra þetta eins og best er fyrir hvert fyrirtæki fyrir sig. En það þarf að lækka vöruverð í landinu. Það er meginatriði. Við getum ekki verðlagt okkur út af markaðnum. Það er númer eitt, tvö og þrjú. Við megum ekki missa túristana og landinn á að geta haft það það gott að hann geti farið út að borða 1-2 í mánuði.“ Spurður að því hvort hann sjái fyr- ir sér að halda verðinu hjá sér eins og það er í dag segir Stefán það alls ekki útilokað. „ Það er það sem við eigum eftir að reikna út eftir mán- uðinn. Hvort það verði af því eða hvort við förum hálfa leið. Það er ekkert útilokað með það.“ Umferðin jókst um 30% Veitingar Gestum á veitingastaðnum Þremur frökkum fjölgaði um 30%.  Veitingastaðurinn Þrír frakkar lækkaði verð um 30% á 30 ára afmælinu  „Við getum ekki verðlagt okkur út af markaðnum,“ segir Stefán Úlfarsson Þrír frakkar » Veitingastaðurinn Þrír frakk- ar fagnar 30 ára afmæli um þessar mundir. » Staðurinn var stofnaður af föður Stefáns, Úlfari Eysteins- syni, 1. mars árið 1989. » 30% afsláttur er á Þremur frökkum út marsmánuð. BAKSVIÐ Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Veitingastaðurinn Þrír frakkar hef- ur verið afar vel sóttur síðustu vikur en staðurinn fagnar 30 ára afmæli í mars. Stefán Úlfarsson matreiðslu- maður rekur staðinn, og af þessu tilefni bauð hann upp á 30% afslátt af öllu á matseðli. Upphaf- lega gerði hann ráð fyrir því að láta tilboðið gilda fyrstu vikuna en í ljósi aukinnar umferðar á stað- inn og góðra við- bragða viðskiptavina ákvað hann að framlengja tilboðið út marsmánuð. „Við ætluðum bara að hafa þetta í viku en við ákváðum að halda áfram og hafa þetta út marsmánuð. Við- brögðin voru svo góð fyrstu vikuna. Það fór að birtast meira af landanum og það er mjög gaman að því.“ Uppátæki Stefáns og félaga er einkar áhugavert í ljósi þrumuræðu Þórarins Ævarssonar, fram- kvæmdastjóra IKEA á Íslandi, á ráðstefnu Neytendasamtakanna og Alþýðusambands Íslands í síðustu viku, þar sem hann gagnrýndi harð- lega verðlagningu sumra veitinga- staða og bakaría á landinu. Sagði Þórarinn verðlagninguna á tíðum yf- irgengilega og að Íslendingar væru hætttir að fara út að borða. Forvitnilegt erindi „Það var mjög forvitnilegt erindi hjá honum og margt til í þessu,“ seg- ir Stefán um erindi Þórarins en taldi þó að því væri að mestu leyti beint að skyndibitastöðum. „Laukur á pítsu fyrir 600 krónur og kokteilsósa á 300 krónur. Þetta er alveg fáránlegt,“ segir Stefán og vísar í dæmi Þór- arins. Eftir að hafa lækkað verðið hefur kúnnum á Þremur frökkum fjölgað um 30% að sögn Stefáns. Stefán Úlfarsson fyrirtækið verðmetið á svipuðum slóðum og t.d. Hewlett Packard, Twitter og ferðaþjónustufyrir- tækið Hilton. Skráning Lyft á markað gefur vísbendingu um verðmæti skutlþjónustufyrirtækja. Væntingar standa til þess að stærsti samkeppnisaðili Lyft, Uber, verði skráður á markað á næstunni, en Uber gæti náð allt að 100 millj- arða dala markaðsvirði. Heildar- tekjur Lyft, sem stofnað var árið 2012, námu 2,16 milljörðum dala í fyrra en tap þess nam 911 millj- ónum dala. Bandaríska skutlþjónustufyrir- tækið Lyft, hyggst sækja sér allt að 2,1 milljarð bandaríkjadala í hluta- fjárútboði fyrirtækisins að því er fram kom í tilkynningu þess í gær en Lyft stefnir á tæplega 23 millj- arða dala markaðsvirði. Fram kom í Financial Times í gær að fyrir- tækið stefndi á að útboðsgengið yrði 62 til 68 dollarar á hlut. Auð- kenni fyrirtækisins í kauphöll verð- ur LYFT þegar viðskipti með bréf þess hefjast seinna í þessum mán- uði. Fari svo að Lyft nái 23 millj- arða dala markaðsvirði verður Stefnir á 23 milljarða markaðsvirði  Hlutafjárútboð Lyft á næstunni AFP Skutl Lyft stefnir á að sækja um 2,1 milljarð dala í hlutafjárútboðinu. ● Hlutabréf Arion banka hækkuðu mest í Kauphöll Íslands í gær á fremur rólegum degi. Heildarvelta nam 1,8 milljörðum króna en bréf Arion banka hækkuðu um 2,7% í 76 milljóna króna viðskiptum. Mest lækkuðu bréf eim- skips, eða um 3,3% í 58 milljóna króna viðskiptum. Mest voru viðskipti með bréf Marel, og námu 736 milljónum en Marel hækkaði um 0,59%. Fasteigna- félagið Reginn lækkaði um 0,27% í 26 milljóna króna viðskiptum og Sýn um 1,76% í 41 milljónar króna viðskiptum. Eftir miklar sveiflur undanfarna daga hækkaði Icelandair um 0,42% í 37 millj- óna króna viðskiptum. Síðasta vika var sveiflukennd hjá félaginu en gengi fé- lagsins lækkaði um 9,66% í upphafi vik- unnar og stendur í dag í 7,2 kr. bréfið. Arion banki hækkaði um tæp 3% í Kauphöll 19. mars 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 117.46 118.02 117.74 Sterlingspund 155.86 156.62 156.24 Kanadadalur 88.16 88.68 88.42 Dönsk króna 17.808 17.912 17.86 Norsk króna 13.721 13.801 13.761 Sænsk króna 12.664 12.738 12.701 Svissn. franki 116.88 117.54 117.21 Japanskt jen 1.0509 1.0571 1.054 SDR 163.46 164.44 163.95 Evra 132.93 133.67 133.3 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 164.791 Hrávöruverð Gull 1302.65 ($/únsa) Ál 1867.0 ($/tonn) LME Hráolía 67.18 ($/fatið) Brent ● Sjálfkjörið er í stjórn fjarskipta- og fjölmiðlafyrir- tækisins Sýnar. Þannig bjóða sig áfram fram til stjórnarsetu þau Heiðar Guðjóns- son stjórnar- formaður, Hjörleif- ur Pálsson, Anna Guðný Aradóttir og Yngvi Halldórsson. Ný inn í stjórnina kemur Tanya Zharov í stað Hildar Dun- gal sem ekki býður sig fram að nýju en hún hefur setið í stjórninni frá 2013. Fimm í framboði í fimm stjórnarsæti í Sýn Heiðar Guðjónsson STUTT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.