Morgunblaðið - 19.03.2019, Page 20

Morgunblaðið - 19.03.2019, Page 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2019 Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is | reyap@reyap.is Apótekið þitt í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg 2 Afgreiðslutími: 9-18:30 virka daga 10-16:00 laugardaga Reykjavíkur Apótek býður upp á allar tegundir lyfja. Mikið og fjölbreytt úrval af heilsuvörum, bað- og ilmvörum, gjafavörum auk ýmissa annarra góðra kosta. Reykjavíkur Apótek er sjálfstætt starfandi apótek sem leggur áherslu á persónulega þjónustu og hagstætt verð. • Öryrkjar og eldri borgarar njóta sérkjara hjá okkur • Frí heimsendingarþjónusta Enginn losunar- flokkur í loftslags- bókhaldi Íslands er ábyrgur fyrir jafn mik- illi losun af gróðurhúsa- lofttegundum og fram- ræst votlendi, eins og kemur fram á með- fylgjandi mynd þar sem LULUCF er votlendi. Eðlilega hafa ekki allir mikla þekkingu á umfangi og eðli losunar gróðurhúsa- lofttegunda úr framræstu votlendi og því er ekki laust við að allnokkurra rangfærslna gæti í umræðu um mál- efnið. Í þessari grein ætla ég að svara helstu rangfærslunum. Rangfærsla 1: Votlendi skipta engu máli fyrir loftslagið. Votlendi/mýrar eru sérstakar því gróður sem vex í þeim rotnar ekki nema að mjög litlu leyti og safnast því fyrir. Ástæðan fyrir því er að vegna vatnsins er ekkert súrefni til staðar og því ekki skilyrði fyrir ör- verur til að brjóta niður lífræna efnið og breyta því í CO2 (koltvísýring). Munurinn á gróðri í votlendi og t.d. graslendisgróðri er að graslend- isgróður sölnar og rotnar að hausti og losar sama magn af CO2 og hann batt yfir sumarið. Í votlendi safnast saman órotnaðar jurtaleifar í oft mjög þykk mólög í hundruð eða þús- undir ára. Þegar votlendi er fram- ræst fer vatnið úr jarðveginum og skilyrði skapast fyrir örverur til að brjóta niður lífræna efnið. Rotnun hefst og þar með losun á CO2. Fyrir framræstar mýrar í okkar loftslags- belti nemur losunin um 23 tonnum af CO2 á hektara á ári. Til samanburðar losar ný bifreið um 2 tonn af CO2 á ári. Einn fótboltavöllur er tæpur 1 hektari. Rangfærsla 2: Við endurheimt votlendis losnar metangas sem er öflug gróðurhúsa- lofttegund og því borg- ar sig ekki að endur- heimta votlendi. Metanið er um 25 sinnum öflugri gróður- húsalofttegund en koltvísýringur (CO2) en magn þess á flatarmálseiningu er 200 falt minna. Ef magnið er fært yfir í CO2 ígildi jafngildir það 3 tonnum af CO2 á hektara á ári. Nettó-ávinning- urinn af endurheimt votlendis er því 20 tonn af CO2 á hektara á ári. Hægt er að hafa áhrif á magn losunar met- ansins með því að hafa vatns- yfirborðið rétt undir yfirborði jarð- vegsins. Rangfærsla 3: Íslenskar mýrar innihalda meira af steinefnum og því er losun frá þeim miklu minni en er- lendis. Íslenskar mýrar, sérstaklega ná- lægt gosbeltinu, innihalda meira af steinefnum/gosefnum en mýrar á sambærilegum stöðum á hnettinum. Steinefnin hafa þau áhrif að losunin er umtalsvert meiri en frá mýrum sem innihalda minna af steinefnum. Rannsóknir Susanne Möckel við Há- skóla Íslands sýna þetta ótvírætt. Viðtal við hana má finna á www.vot- lendi.is eða á vimeo.com/311181214 Rangfærsla 4: Ekki eru til neinar rannsóknir til að geta fullyrt um los- un gróðurhúsalofttegunda frá ís- lenskum mýrum. Niðurstöður rannsókna sem hafa verið gerðar og eru í gangi gefa ekki tilefni til að ætla að losun frá íslensk- um mýrum sé almennt frábrugðin losun frá mýrum á sambærilegum stöðum á hnettinum. Sjá einnig um- ræðu um steinefnin í rangfærslu 3. Rannsóknir Gunnhildar Evu Gunn- arsdóttir á sextán framræstum og óframræstum mýrum á Suðurlandi og rannsóknir Hlyns Óskarssonar og Jóns Guðmundssonar frá Landbún- aðarháskólanum og Rannveigar Ólafsdóttur á svæðum á Vesturlandi sýna þetta glöggt. Rangfærsla 5: Betra er að rækta tré á framræstu landi en að endur- heimta það. Öflugustu leiðirnar til að takast á við loftslagsvandann hérlendis eru að endurheimta votlendi, græða upp illa farið land og rækta tré. Jarðvegur framræsta landsins heldur áfram að losa gróðurhúsalofttegundir þó að tré séu gróðursett í hann. Besta niður- staðan fyrir loftslagið er að endur- heimta votlendi, rækta upp tré þar sem gott er að rækta tré (ekki í vot- lendi) og ná gróðurþekju á illa farið land. Rangfærsla 6: Litlir, gamlir eða grónir skurðir losa ekkert lengur. Skurðir grafnir í votlendi losa gróðurhúsalofttegundir, en það sem mestu máli skiptir er allt svæðið sem skurðurinn framræsir, sem getur verið mjög stórt og allt upp í nokkur hundruð metra í hvora átt frá skurð- inum. Um leið og vatn fer úr jarðveg- inum kemst súrefni ofan í hann og skilyrði skapast fyrir örverur til að hefja niðurbrot á lífrænu efni. Kol- efni tapast og hraðinn á tapinu jafn- gildir því að jarðvegurinn þynnist um hálfan sentimetra á ári. Það tekur metersþykkt mólag því 200 ár að rotna og verða að lofttegund. Það er ekki langt síðan framræsla hófst á Ís- landi svo ástæða er til að ætla að flest framræst svæði á Íslandi séu enn að losa gróðurhúsalofttegundir af full- um krafti. Það skiptir litlu hvort skurður er gróinn eða ekki. Lífræna framræsta efnið heldur áfram að rotna á meðan eitthvað er til að rotna. Rangfærsla 7: Losun frá fram- ræstu landi er stórlega ofmetin. Tölurnar um losun gróðurhúsa- lofttegunda á hverja flatarmálsein- ingu eru orðnar nokkuð góðar en flókið mál er að meta stærð alls fram- ræsts lands á Íslandi. Með betri loft- myndum og nákvæmari skurðakort- um og gróðurkortum er hægt að álykta betur um heildarflatarmálið. En ef við gefum okkur að losunin frá votlendinu sé helmingi minni en talið er þá er hún samt sem áður svipuð eða meiri en allir hinir losunarflokkar Íslands til samans. Algengar rangfærslur um endurheimt votlendis Eftir Eyþór Eðvarðsson »Enginn losunar- flokkur í loftslags- bókhaldi Íslands er ábyrgur fyrir jafn mikilli losun af gróður- húsalofttegundum og framræst votlendi. Eyþór Eðvarðsson Höfundur er stjórnarformaður Votlendissjóðsins. eythor@votlendi.is Heimild: Umhverfisstofnun Flestar félagsmið- stöðvar eldri borgara sem nú eru starfræktar í borginni eru með svip- uðu sniði og eflaust þjóna sínum tilgangi vel. Því hefur þó verið fleygt fram að karlmenn sæki þær síður en konur. Getur það verið vegna þess hvernig þær eru skipulagðar og upp- byggðar? Hafa ber í huga að þeir sem nú eru að hefja sín efri ár eru með ann- ars konar reynslu en eldri borgarar fyrir 20-30 árum. Menntunarstig þeirra er hærra og lífsstíll annars kon- ar en var þegar flestar þeirra félags- miðstöðva sem nú eru starfræktar voru opnaðar. Karlmenn ekki eins áhugasamir Það er álit sumra sem hafa kynnt sér þessi mál að tímabært sé að endurbæta starfsemi fé- lagsmiðstöðva eldri borgara. Karlmenn sækja félagsmiðstöðv- arnar og þeirra starf miklu minna en konur. Starfsemin er með svip- uðu sniði á flestum stöðvunum, eftir því sem hefur heyrst. Alls staðar er handa- vinna af ýmsu tagi, félagsvist, gömlu dansarnir, sums staðar leikfimi fyrir aldraða, kirkjustarf á vegum þjóð- kirkjunnar, söngur og víða gönguhóp- ar. Hægt er að hugsa ýmislegt fleira sem bjóða má upp á og varðar alls kyns virkni og tilboð á tómstundum og afþreyingu sem ekki hefur áður sést á félagsmiðstöðvum. Til að laða fólk til þátttöku þarf að vera eitthvað fyrir alla, konur og karla. Í boði þarf að vera nægt framboð af fjölbreyttum og áhugaverðum verk- efnum fyrir huga og hönd þannig að fólk hafi ávallt val. Eldri borgarar eru eins og aðrir aldurshópar, breiður hóp- ur með ólíkar þarfir og áhugamál. Á sumum félagsmiðstöðvunum er boðið upp á kínverska leikfimi, boccia og pútt sem dæmi. Einnig mætti skoða að nota tónlist meira í starfinu t.d. hlusta á gamlar grammófónplötur eða hljóm- plötur frá bítlatímanum. Endurskipulagning og nútímavæðing Eftir að hafa rætt við nokkra eldri borgara má heyra glöggt að margir eru ánægðir með starfið en aðrir ekki. Nokkrir voru sammála um að fátt sé í starfi a.m.k. einstakra félagsmiðstöðva sem höfðar til þeirra sem fæddir eru eftir 1943-1950. Borgarfulltrúi Flokks fólksins hefur lagt fram tillögu í vel- ferðarráði þess efnis að settur verði í gang vinnuhópur sem beiti aðferðum nýsköpunar til að þróa nýjar þjónustu- leiðir og afþreyingu fyrir eldri borgara Reykjavíkur. Vel kann að vera að ein- hverjir eldri borgarar vildu taka meira þátt í sjálfboðaliðastarfsemi af ýmsu tagi. Einnig ætti alls staðar að vera boðið upp á aðstæður þar sem eldri borgarar og börn geti átt stund sam- an. Eldri borgarar hafa svo margt fram að færa, mikla reynslu og sögur að segja frá fyrri árum sem börnin hefðu bæði gagn og gaman af því að heyra. Það gleður hjarta fjölmargra eldri borgara að eiga samneyti við ungu kynslóðina og einnig að fá tæki- færi til að umgangast gæludýr. Heim- sókn hunda hefur tíðkast sums staðar og vakið mikinn fögnuð. Leita þarf leiða til að veita notendum, eldri borg- urum í þessu tilfelli enn meiri lífsfyll- ingu og ánægju á efri árum. Flokkur fólksins leggur til að Reykjavíkurborg fari i skoðun á þessu með það í huga hvort hægt er að breyta, bæta og nú- tímavæða starfið. Mikla áherslu verð- ur að leggja á virkt notendasamráð á öllum stigum þegar verið er að skipu- leggja félagsstarf eldri borgara enda er þetta þeirra félagsstarf sem um ræðir. Notendur þjónustunnar vita alltaf best og ætti aldrei að að skipu- leggja neitt nema í samráði við þá. Eitthvað fyrir alla, konur og karla Eftir Kolbrúnu Baldursdóttur »Hafa ber í huga að þeir sem nú eru að hefja sín efri ár eru með annars konar reynslu en eldri borg- arar fyrir 20-30 árum. Kolbrún Baldursdóttir Höfundur er sálfræðingur og borgar- fulltrúi Flokks fólksins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.