Morgunblaðið - 19.03.2019, Side 25

Morgunblaðið - 19.03.2019, Side 25
Hvutti og hlýddi því nafni), hundurinn af næsta bæ, sem sá eins og við börnin ekki sólina fyrir þessum góða manni. Því Hvutti kom hlaupandi í hvert sinn sem sást glitta í bílinn hans afa, og vék helst ekki frá honum. Í bústaðnum var algjör paradís, þó hann væri af- skekktur og rafmagnslaus, þar var hvorki heitur pottur né sjónvarp en það var ævintýra- veröld þegar við afi vorum þar. Þar áttum við nefnilega okkar heim við afi, og ég sem var aldrei árrisul sem barn var alltaf vöknuð klukkan sex í bú- staðnum því þá vaknaði afi og fór á stjá. Og við gengum út, hlustuðum á fuglana sem afi hermdi svo eftir svo nákvæm- lega að ég ætlaði ekki að ná mér af hlátri. Við hlustuðum á gjálfrið í vatninu og ég sagði afa sögur sem hann hlustaði íbygginn á, sögurnar af æv- intýrum okkar afa í hinu lífinu. Við vorum stundum drekar, stundum víkingar, við vorum fuglarnir sem flögruðu í kring- um bústaðinn og alltaf kinkaði afi kolli því jú, hann mundi eft- ir þessu öllu. Eftir að afi var kominn með Alzheimer þekkti hann okkur barnabörnin stundum ekki í sundur. En þegar ég sagði „hæ afi minn,“ þá sagði hann „hæ elskan mín“. Því það vissi hann fyrir víst, að við sem kölluðum afi vorum skari sem hann elsk- aði afar mikið. Og sýndi það alla tíð. Svona kveð ég góðan afakall, með þakklæti og söknuði. Júlía Margrét Einarsdóttir. Þær minningar sem komu upp í hugann þegar ég frétti af andláti Baldurs Jónssonar voru ljóslifandi og fallegar, af því að hann var svo einstaklega hlýr og sjarmerandi maður. Baldur og Tóta, móðursystir mín, voru glæsilegt par og kvöldið sem mér var treyst til að passa börnin þeirra gleymist ekki. Ég var kannski ellefu eða tólf ára og aðaláhugamál mitt var að safna ljósmyndum af kvikmyndastjörnum. Þau hjónin voru að fara út að skemmta sér og þegar ég mætti á staðinn var Baldur kominn í sparifötin, í minning- unni eru það smókingföt, og Tóta glansandi fín í fallegum kjól og þeim hæstu og flottustu háhæluðu skóm sem ég hafði nokkurn tímann séð. Þau voru eins og Hollywood-stjörnur og mér fannst ég aldrei hafði kom- ist nær töfrum kvikmyndanna en þetta kvöld. Seinna þegar ég fékk svo tækifæri til að skoða heiminn í fyrsta sinn sigldi ég með Gull- fossi til Kaupmannahafnar. Baldur starfaði sem rafvirki á Gullfossi og þegar skipið hopp- aði og skoppaði úti á miðju At- landshafi varð ég svo sjóveik að mín eina ósk var sú að fá að deyja og það strax. Ég held að það hafi ekki verið neinn lækn- ir um borð, en Baldur var kall- aður til og það má segja að hann hafi læknað mig með huggunarorðum sínum um það að engin hætta væri á ferðum og að ég myndi fljótlega hrista af mér sjóveikina. Hann reynd- ist sannspár og þegar Gullfoss lagði að bryggju í Kaupmanna- höfn var ég búin að gleyma sjó- veikinni og hugsaði bara um til- vonandi dýrðardaga í Danmörku. Ég þakka Baldri fyrir sam- fylgdina og við systkinin á Sjafnargötu vottum Tótu, börn- um, mökum þeirra og barna- börnum samúð okkar. Blessuð sé minning Baldurs. Edda Þórarinsdóttir. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2019 25 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Ýmislegt Bátar Bílaþjónusta GÆÐABÓN Stofnað 1986 • Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 Hreinsa þakrennur og tek að mér ýmis smærri verkefni Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Raðauglýsingar Raðauglýsingar Fundir/Mannfagnaðir ses.xd.is Samtök eldri sjálfstæðismanna, SES Hádegisfundur SES Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi verður gestur á hádegisfundi SES á morgun, miðvikudaginn 20. mars kl. 12:00, í Valhöll, Háaleitisbraut 1. Húsið opnað kl. 11:30. Boðið verður upp á súpu gegn vægu gjaldi, 1000 krónur. Allir velkomnir. Stjórnin Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri, sem hér segir: Tjarnabakki 1, Innri Njarðvík, fnr. 228-4348. Þingl. eig. Magnea Lynn Fisher og Ellert Hannesson, gerðarbeiðendur Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda og Íbúðalánasjóður. Þriðjudaginn 26. mars nk. kl. 09:30. Sýslumaðurinn á Suðurnesjum 18. mars 2019 Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl.14.30-15.20. Stólajóga kl. 9.30. Gönguferð kl. 10.15. Tálgað í tré kl. 13. Postulínsmálun, með leiðbeinanda kl. 13. Nýtt námskeið í vatnslitun kl. 13 ókeypis. Bíó í miðrými kl. 13. ATH breyttur tími. Kaffi kl. 14.30-15.20. Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðb. kl. 9-16. Boccia með Guðmundi kl. 10. Opið hús, t.d. vist og bridge kl. 13-16. Bónusbíllinn fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.30. Handavinna með leib. kl. 12.30-16. Kóræfing, Kátir karlar kl. 13. MS-fræðslu- og félagsstarf kl. 14-16. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. S: 535 2700. Dalbraut 18-20 Félagsvist kl.14. Fella- og Hólakirkja Góugleði eldriborgarastarfsins kl. 18, ath. nauðsynlegt er að skrá sig. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Við hringborðið kl. 8.50, kaffisopi og blöðin. Myndlistarnámskeið hjá Margréti kl. 9-12. Thai Chi kl. 9-10. Leikfimi kl. 10-10.45. Spekingar og spaugarar kl. 10.45-11.45. Hádegismatur kl. 11.30. Kríur myndlistarhópur kl. 13. Bridge kl. 13-16. Leiðbeiningar á tölvu kl. 13.10. Enskunámskeið kl. 13-15. Síðdegiskaffi kl. 14.30. U3A kl. 16.30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari uppl. í síma 411 2790. Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Kl. 11 stólaleikfimi,. kl. 13 opin hand- verkstofa. Kl. 14.50 landið skoðað með nútímatækni, kl.14.30 kaffi- veitingar. Allir velkomnir! Garðabæ Vatnsleikf. Sjál. 7.30/15. Qi Gong Sjál. kl. 9. Karlaleikf. Ásg. kl. 12. Boccia. Ásg. kl. 12.45. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14.45. Línudans í Kirkjuhvoli kl. 13.30/14.30. Tréskurður/smíði í Smiðju kl. 9/13. Gerðuberg 3-5 111 RVK Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Keramik málun kl. 9-12. Glervinnustofa m/leiðb. kl. 13-16. Yoga kl. 10.30-11.30. Leikfimi gönguhóps kl. 10-10.30. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30. Allir velkomnir. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.45 stólaleikfimi, kl. 13 handavinna, kl. 13 hreyfi- og jafnvægisæfingar, kl. 13.30 alkort, kl. 14 hreyfi- og jafnvægisæfingar. Grafarvogskirkja Opið hús fyrir eldri borgara er í Grafarvogskirkju kl. 13 til 16 alla þriðjudaga. Fyrir opna húsið er helgi- og fyrirbæna- stund kl. 12 þar sem öllum er frjálst að mæta í og er súpa og brauð í boði fyrir vægt gjald þar á eftir. Hér er fjölbreytt dagskrá þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við hæfi. Grensáskirkja Kyrrðar- og bænastund kl. 12. Verið velkomin. Gullsmári Myndlistarhópur kl. 9. Boccia kl. 9.30. Málm/silfurmíði / canasta/tréskurður kl. 13. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-11.30, 1340.-kr mánuðurinn, allir velkomnir og kostar ekkert að prufa. Hádegismatur kl. 11.30. Bónusbíllinn kl. 12.15. Spjallhópur kl 13, notaleg og skemmtileg sam- vera þar sem allir eru velkomnir að vera með. Félagsvist kl. 13.15. Kaffi kl. 14.15. Hraunsel Kl. 8-12 ganga í Kaplakrika, kl. 9 dansleikfimi, kl. 10 Qi-gong, kl. 13 Bridge, kl. 10.45 leikfimi Hjallabraut kl. 13-16 fjölstofan Hjallabraut, kl. 9-12 handverk, Sólvangsvegi, kl. 11.30 leikfimi, Bjarkar- hús. kl. 14.40 vatnsleikfimi í Ásvallalaug. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45 og hádegismatur kl. 11.30. Bridge í handavinnustofu kl. 13, helgistund kl. 14 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Korpúlfar Listmálun kl. 9 í Borgum, Boccia kl. 10 í Borgum, helgi- stund kl. 10.30 í Borgum. Leikfimihópur Korpúlfa í Egilshöll kl. 11 í dag Ársæll leiðbeinir. Sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 13.30, Brynjólfur kennir. Borgarstjónarfundur kl. 14 í dag í Borgum. Boccia fellur niður kl. 16. Heimanámskennsla kl. 16.30 í Borgum. Neskirkja Krossgötur kl. 13. Kristjana M. Sigmundsdóttir og Þorlákur Helgi Helgason. Elta minningarnar okkur ævina út? Um einelti í æsku. Sérstakur gestur Krossgatna er biskup Íslands, Agnes M. Sigurðar- dóttir sem vísiterar nú Nessókn. Kaffiveitingar. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja kl. 9-16, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11, opin listasmiðja m.leiðbeinanda kl. 13-16, ganga m. starfsmanni kl. 14, boccia, spil og leikir kl.16. Uppl. í s. 411 2760. Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.10. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Pútt í Risinu kl. 10.30. Kvennaleikfimi í Hreyfilandi kl. 11.30. Bridge í Eiðismýri kl. 13.30. Bingó með nemendum 5. bekkjar Mýrarhúsaskóla í salnum á Skólabraut kl. 13. Allir velkomnir. Karla- kaffi í safnaðarhheimilinu kl. 14. Síðasti skráningardagur í dag þriðjudag vegna óvissuferðarinnar nk. fimmtudag. Skráning í síma 893 9800. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30-12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Leikfimi kl. 13. Bókabíllinn kemur kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30-15. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568 2586. Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Skák kl. 13, allir velkomnir í hópinn. Félagslíf  EDDA 6019031919 I atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á 200 mílur líður vel. Þú ert líklega að smyrja þér samloku úr rúg- brauði og franskbrauði, með ost á milli, og um leið að fylgjast með okkur, fólkinu þínu, úr fjarska. Megi minning um góða konu lifa, takk fyrir allt, elsku amma. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Valdimar Briem) Þín nafna, Anna María Gísladóttir. Það er mér hulin ráðgáta hvernig maður fer að því að skilja eftir sig ekkert nema já- kvæðar og hlýlegar minningar. En einmitt það gerðir þú, elsku amma mín. Ég minnist þess þegar þú smurðir brauð með áleggi og hrærðir kókómalt handa mér í Hlíðargerðinu góða. Ég minnist þess þegar við fórum að leita að froskum við tjörnina fyrir aftan kirkjuna á Birkebakken, ég minnist þess þegar við sungum saman Tomorrow úr söngleikn- um Annie og hlógum og hlóg- um. Ég minnist þess þegar þú og afi sögðuð ferðasögur við mat- arborðið yfir kjötbollunum þín- um góðu með brúnni sósu, og ég minnist þess hvernig þú tókst alltaf svo hlýlega á móti mér með orðunum „Hallooooó“, á ákveðinn hátt sem enginn annar gat endurtekið nema þú. Þetta er aðeins brot af þeim minningum sem ég á um þig, elsku amma mín. Þær eru svo margar og allar hlýja þær mér um hjartarætur. Ég mun ávallt geyma þær og reyna af minni bestu getu að miðla áfram þeirri hlýju og góð- mennsku sem þú sýndir og gafst mér. Það var svo sárt að kveðja þig, elsku amma. En það vekur huggun í mínu hjarta að vita það að þú sért búin að finna ró. Ég ímynda mér að hvar sem þú ert stödd núna, haldir þú áfram að gleðja aðra með góð- mennsku þinni, því það var þér svo eðlislægt. Og að einn daginn takir þú á móti mér á ný með orðunum „Halloooó“. Andri Steinn Guðjónsson. Á dimmum vetrarmánuðum getur reynst erfitt að hlýja sér við minningar um bjarta sum- ardaga. Í nístandi norðanátt, slagviðri og myrkri standa sól- argeislar og blómstrandi jörð víðs fjarri. En þegar vorið loks- ins brestur á verðum við aftur ástfangin af landinu okkar. Hinn yfirþyrmandi vetur virðist aldrei ætla að koma aftur. Þegar mér bárust fregnir af andláti ömmu minnar, Önnu Maríu, var sem hinn langi vetur hefði aldrei komið. Hugurinn flaug aftur í tímann og við mér blasti kona í blóma lífsins. Hjartahlý og skemmtileg, fagn- andi afmæli um hásumar í Hlíðargerði, með veislu sem enginn gæti jafnað. Listræn, trygg og með sérstakt dálæti á froskum, sem ég fékk aldrei skýringu á. Kjötbollur með brúnni sósu. Ennþá brúnni húð eftir langa dvöl á Flórída. Rembingskossar á vangann sem voru svo ástríkir að þeir gerðu mig næstum heyrnar- lausan. Ég geng inn í vorið án ömmu minnar, en ég er umkringdur öllum þeim fallegu minningum sem ég hef endurheimt úr skugga grimms sjúkdóms. Amma sá fegurðina sem aðrir gátu hunsað. Fegurðin mun minna mig á ömmu. Guð blessi Önnu Maríu Hallsdóttur, ömmu mína. Gísli Baldur Gíslason.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.