Morgunblaðið - 19.03.2019, Síða 26

Morgunblaðið - 19.03.2019, Síða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2019 Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is Japanskt meistaraverk Landsins mesta úrval af píanóum í öllum verð�lokkum. Hjá okkur færðu faglega þjónustu, byggða á þekkingu og áratuga reynslu. Mér féll vel að sinna störfum þar sem ég var í góðum tengslumvið fólk,“ segir Helga R. Einarsdóttir á Selfossi sem er 75ára í dag. „Í 23 ár var ég við afgreiðslu í Fossnesti, þar sem ég afgreiddi pylsur, kók og súkkulaði, seldi farmiða með rútunni og fleira. Allir áttu erindi í sjoppuna og þannig kynntist ég fólki um allt Suðurlandið og raunar víðar á landinu. Þessi tími er ævintýri í endur- minningunni og ekki síður líkaði mér vel sem stuðningsfulltrúi í Vallaskóla hér á Selfossi, þar sem ég var í alls 19 ár. Þar var ég svo gæfusöm að ná góðu sambandi og eignast vináttu stráka sem áttu undir högg að sækja, en blómstruðu þegar þeim var sýnd jákvæð at- hygli og virðing. Ég hef fylgst með þeim æ síðan, flestum vegnar þeim vel og það gleður mig mjög.“ Helga er frá Flúðum, þar sem foreldrar hennar ráku garðyrkjubýli. „Tengslin við sveitina eru sterk, þar eigum við fjölskyldan litla spildu þar sem ég hef verið að koma upp trjásafni. Tegundirnar í reitnum mínum þar eru orðnar nokkuð á annað hundrað og trén dafna vel, eins og raunar flest gerir sé því sinnt af alúð,“ segir Helga sem segir flest á afmælisdeginum verða í föstum skorðum. „Á sunnudagskvöldið fórum við hjónin á afmælistónleika Ragga Bjarna í Hörpunni í Reykjavík. Það var frábær skemmtun, enda ein- stakir söngvarar og góðir hljóðfæraleikarar á sviðinu. Síðan styttist óðum í vortónleika Karlakórs Selfoss, sem maðurinn minn hefur sungið með í meira en hálfa öld, þeir tónleikar finnast mér alltaf góð- ur vorboði,“ segir Helga sem er gift Sigurdór Karlssyni trésmið. Þau eiga þrjú börn, átta barnabörn og í þriðja liðnum eru tveir afkom- endur. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Selfoss Það dafnar sem sinnt er af alúð, segir Helga Einarsdóttir. Vorboðinn nálgast Helga R. Einarsdóttir er 75 ára í dag Þ röstur Þórhallsson fædd- ist á Landspítalanum í Reykjavík snemma morguns 19. mars 1969. „Ég var keyrður norður til Siglufjarðar nokkrum dögum síð- ar þar sem föðuramma mín og -afi bjuggu og var skírður í Siglufjarðar- kirkju um páskana sama ár.“ Uppvaxtarárin bjó Þröstur alla tíð í Víkingshverfinu. Hann gekk í Foss- vogsskóla í 6 og 7 ára bekk en þá var fjölskyldan búsett í Marklandi 2 sem er beint fyrir neðan Bústaðakirkju. Þaðan fluttist fjölskyldan í Melgerði rétt við Breiðagerðisskóla og þar var Þröstur til 12 ára aldurs áður en hann fór í Hvassaleitisskóla og svo Menntaskólann við Hamrahlíð með viðkomu í Verslunarskólanum. „Vík- ingsvöllurinn í Hæðargarði var rétt hjá heimili mínu og ég var bæði á fullu í handbolta og fótbolta á þess- Þröstur Þórhallsson, löggiltur fasteignasali – 50 ára Morgunblaðið/Ómar Slembiskák Þröstur og ungverski stórmeistarinn Richárd Rapport eigast við á slembiskákmóti 2018, sem var hlið- arskákmót við Reykjavíkurskákmótið. Í slembiskák er taflmönnunum stillt upp tilviljanakennt fyrir aftan peðin. Skákin orðin áhuga- mál eins og golfið Morgunblaðið/Ómar Hjónin Ásdís María og Þröstur á tónleikum árið 2010. Kópavogur Hinrik Briem Guðmundsson fæddist hinn 7. desember 2018 kl. 19.46. Hann var 3.800 g að þyngd og 49 cm að lengd. Foreldrar hans eru Klara B. Briem og Guðmundur A. Guðmundsson. Nýr borgari Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.