Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.03.2019, Síða 2
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.3. 2019
Fjölbreytt úrval af gæða viftum frá Vent-Axia fyrir eldhúsið, baðherbergið, skrifstofuna,
verkstæðið eða hesthúsið. Við aðstoðum ykkur við rétta valið.
Lo-Carbon Silhouette 125 Centrif-duo Silent
12in Wall fan Hi-line Sabre Plate
DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS
Hreint loft og vellíðan
Það borgar sig að nota það besta
VENT–AXIA VIFTUR
Verð á vörum mætti gjarnan vera meira í umræðunni. Þórarinn Ævars-son, framkvæmdastjóri Ikea á Íslandi, kom með hressilegt innlegg íumræðu um verðlag á fundi ASÍ í vikunni. Þar hnýtti hann í íslenska
matsölustaði vegna þess hvernig matur og drykkir eru verðlagðir. Telur
hann verðið sem neytendur greiða oft ekki hafa nokkur tengsl við grunn-
kostnað vörunnar.
Tók Þórarinn nokkur dæmi. „Fingurbjörg af kokteilsósu kostar allt að
þrjú hundruð krónur en kostnaðurinn er kannski tíu eða fimmtán krónur,“
bendir hann á og bætir við að í sín-
um huga sé nákvæmlega ekkert sem
réttlæti þessa verðlagningu.
Vel má færa rök fyrir því að þetta
sé að vissu leyti ósanngjörn gagn-
rýni, enda þarf að sjálfsögðu að taka
fleira inn í myndina en strípaðan
grunnkostnað þegar verð vöru til
neytanda er ákveðið. Álagning hlýt-
ur einnig að endurspegla þjónustu-
stig og því þarf að taka með í reikn-
inginn hvað það kostar að afgreiða
vöruna, pakka henni inn, halda úti
húsnæði, greiða laun og fleira. En
það breytir ekki því að það þarf líka
stundum að setja hlutina fram á ein-
faldan hátt eins og Þórarinn gerði á
fundinum. Þar tók hann einnig dæmi
af kaffi: „Kaffibolli, jafnvel uppáhellt
kaffi, 500 til 700 krónur en hráefnis-
verð í kaffibolla er undir 30 krón-
um.“ Er álagning hér á landi kannski komin úr böndunum? Eða er það að-
allega húsnæðisverð sem er orðið svo úr út korti að það er ekki hægt að leigja
sér rými undir kaffihús nema rukka morðfjár fyrir bollann? Auðvitað hangir
þetta allt saman á einhvern hátt.
Sem neytendur þurfum við fyrst og fremst að vita hvað við erum tilbúin að
greiða fyrir vöruna. Hvort sem okkur líkar betur eða verr þá fer álagning al-
mennt eftir því hversu mikið við erum til í að sætta okkur við að greiða, frek-
ar en eftir því hversu mikið er sanngjarnt eða hversu hár grunnkostnaður
vörunnar er. Það er fínt að láta Þórarin í Ikea vekja okkur aðeins til umhugs-
unar um verðlag, því við tökum ákvarðanir reglulega um hvað við erum tilbú-
in að greiða fyrir mat og drykk. Er kaffibollinn sex hundruð króna virði? Því
verður hver að svara fyrir sig.
Hvað viltu borga
fyrir kaffið?
Pistill
Eyrún Magnúsdóttir
eyrun@mbl.is
’Hvort sem okkur líkarbetur eða verr ferálagning almennt eftirþví hversu mikið við er-
um til í að sætta okkur
við að greiða, frekar en
eftir því hversu mikið er
sanngjarnt eða hversu
hár grunnkostnaður vör-
unnar er.
Hafsteinn Esjar Baldursson
Já, eins og hún sagði, til að gefa
vinnufrið til að leysa úr þessu.
SPURNING
DAGSINS
Var rétt af
dóms-
málaráð-
herra að
víkja?
Linda Kristín Smáradóttir
Ég hef ekki skoðun á því.
Jón Sveinsson
Já, mér finnst það rétt.
Eva Ósk Harðardóttir
Já, í rauninni.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Hvað eru þið að gera þarna hjá Improv Ísland?
Spuni er list augnabliksins, það fer fullkomlega eftir mómentinu í
hvaða átt við förum. Það eru engar tvær sýningar eins, það er fegurðin
við þetta. Og stemningin og andinn í salnum hjálpar til við sýningu
kvöldsins. Svo fáum við alltaf gest á hverja sýningu. Annaðhvort ein-
hvern sem segir sögu úr eigin lífi sem við svo gerum grín úr, eða við
fáum leikara sem fer með senu og svo þarf spunaleikari frá okkur að
leika á móti. Þetta heitir martröð leikarans. Svo erum við stundum með
spunasöngleiki.
Er þetta ekki skemmtileg vinna?
Improv Ísland og spuninn er það allra skemmtilegasta sem ég geri í líf-
inu. Það er svo gaman að kljást við það óvænta. Og áhorfendur eru svo
mikið með okkur í því og þeir finna jafn mikið og við þegar við erum
komin í algjört klandur og þeir halda með manni. Það eru margir í hópn-
um sem hafa æft spuna í mörg ár, þannig það er mikil færni í hópnum og
það þarf mikið að fara úrskeiðis til að þetta verði ekki skemmtilegt.
Er þetta ekkert stressandi?
Nei, þetta er andstæðan við stressandi. Maður þarf ekkert að undirbúa sig
heima eða leggja neitt á minnið. Það eina sem ég get gert er að mæta og
hlusta algjörlega á hvað mótleikarinn minn segir. Ég get ekki verið að
refsa mér fyrir að undirbúa mig ekki nógu vel. Þetta er besta núvitundar-
æfing sem ég veit um.
Hvers vegna ertu titluð fyndlistakona í símaskrá?
Ég er ekki eitthvað eitt. En þetta sameinar allt saman. Ég var ánægð þeg-
ar ég datt niður á þennan titil.
Hvað er annars á döfinni hjá þér?
Ég ætla að stinga af! Ég er að fara í ferðalag um Evrópu með Snorra og
litlu stelpunni okkar Eddu Kristínu. Við látum bólusetja hana og förum
svo í fullorðins Interrail í tvo og hálfan mánuð.
SAGA GARÐARSDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Andstæðan við
stressandi
Forsíðumyndina tók
Ásdís Ásgeirsdóttir
Fyndlistakonan Saga Garðarsdóttir er ein af spunaleikurum í Improv Ísland. Sýnt
er á miðvikudagskvöldum fram í apríl. Miðar fást á tix.is.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon