Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.03.2019, Blaðsíða 18
Bogi Bjarnason hefur verið dug-legur að sækja alþjóðleg mót ífrisbígolfi á umliðnum árum
og misserum og þegar honum bauðst
að taka þátt í móti í Brasilíu í síðasta
mánuði lét hann ekki segja sér það
tvisvar. Ekki spillti fyrir að hann gat
tengt mótið við annað mót, Opna
spænska mótið í frisbígolfi, í sömu
ferðinni en Bogi hafði tekið þátt í því
móti þrisvar áður.
„Ég hafði aldrei komið til Suður-
Ameríku og gat ekki látið mér þetta
tækifæri úr greipum ganga; það er
heldur ekki eins og mótin séu þar á
hverju strái en völlurinn, sem er í Pi-
racicaba, mun vera sá eini sinnar teg-
undar í allri álfunni,“ segir Bogi.
Eftir langt og strangt ferðalag
með millilendingu í Madríd og Casa-
blanca lenti Bogi, sem var einn á ferð,
í São Paulo í Brasilíu. Á flugvellinum
vippaði hann sér upp í Uber-bíl og
bað um að sér yrði skutlað til Piraci-
caba. Bílstjórinn talaði á hinn bóginn
enga ensku og litla spænsku, þannig
að Bogi endaði á allt öðrum stað. Eft-
ir að greitt hafði verið úr flækjunni
komst hann loks á áfangastað – 53
klukkustundum eftir að hann lagði af
stað frá Íslandi.
Svæðið sem hann var á í Piraci-
caba var afgirt og enginn hægðar-
leikur að komast þaðan út og inn.
„Mér leið eins og ég væri staddur á
Kvíabryggju,“ segir Bogi hlæjandi.
Fjarskipti voru heldur varla í boði en
Bogi komst að því að 1 GB í símann
myndi kosta hann litlar 2,6 milljónir
króna. „Ég var því með símann á
flugstillingu í tæpar tvær vikur.
Komst að vísu annað slagið í wi-fi í
sumarhúsi við keppnissvæðið.“
Mótið fór vel fram og voru kepp-
endur tæplega þrjátíu talsins, frá
hinum ýmsu þjóðlöndum.
Úr því hann var kominn til Brasilíu
langaði Boga vitaskuld að skoða sig
aðeins um og tók því, að móti loknu,
flug til Rio de Janeiro og kom sér þar
makindalega fyrir á fínu hóteli tveim-
ur húsalengdum frá Copacabana-
ströndinni frægu.
Bogi kunni vel við sig í Rio en segir
ekki hlaupið að því að komast einn og
óstuddur á viðburði; þannig þurfti
Ljósmyndir/Bogi Bjarnason
Frisbí með ferskum Blæ
Bogi Bjarnason, blaðamaður og frisbígolfari, fór í
skemmtilega ævintýraferð til Brasilíu í febrúar í
tengslum við mót í íþrótt sinni. Á leiðinni heim
tók hann þátt í Opna spænska, þar sem Íslend-
ingur kom, sá og sigraði, Blær Örn Ásgeirsson.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Menn eru alltaf í boltanum
á Copacabana-ströndinni.
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.3. 2019
LÍFSSTÍLL