Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.03.2019, Blaðsíða 19
Bogi Bjarnason með Spirit of the Game-verðlaunin sín ásamt Taiju Laakso, sig-
urvegara í kvennaflokki, á Opna brasilíska mótinu í frisbígolfi í síðasta mánuði.
hann að kaupa sig inn í hópferð um
borgina til að fá miða á Maracana-
fótboltavöllinn. Ekki var viðlit að
kaupa miða með öðrum hætti.
Eftir viku í góðu yfirlæti í Rio
flaug Bogi sem leið lá til Casablanca í
Marokkó og náði að stoppa þar í tæp-
an sólarhring. „Ég var á góðu hóteli
og ákvað að panta bíl gegnum það til
að skoða mig um í borginni. Brá þó í
brún þegar bíllinn mætti; eldgamall
og hékk bara saman á lyginni. Vírar
stóðu út úr hjólbörðunum og ég veit
ekki hvað. Þennan bíl afþakkaði ég
og samdi í staðinn við leigubílstjóra
um að fara með mig í skoðunarferð.
Falleg borg, Casablanca.“
Eftir þetta stutta stopp í Casa-
blanca flaug Bogi til Madrídar, þar
sem hann hitti fimm félaga frá Ís-
landi, sem einnig voru á leið á Opna
spænska mótið í frisbígolfi. Þaðan
héldu þeir saman til Oviedo, þar sem
mótið fór fram.
Fremstur meðal jafningja í þeim
ágæta hópi er sextán ára gamall pilt-
ur, Blær Örn Ásgeirsson, sem keppir
í úrvalsflokki. Leiknar eru þrjár um-
ferðir á mótum sem þessum, á átján
holu völlum og vegnaði Blæ strax
prýðilega fyrsta daginn, var í öðru
sæti. Næsta dag fór Blær hins vegar
á kostum og var með þriggja kasta
forskot á næsta mann eftir aðra um-
ferðina, af tæplega 100 þátttak-
endum. „Hann setti met þennan dag,
miðað við það „layout“ sem farið er
eftir, en brautin getur verið breyti-
leg. Blær lét rigna eyðileggingu yfir
völlinn,“ segir Bogi, stoltur af sínum
manni en hann er umboðsmaður
Blæs.
Blær setti öryggið á oddinn í loka-
umferðinni og stóð uppi sem sig-
urvegari á mótinu. Bætti því gulli við
sigur á Opna breska mótinu í fyrra,
þegar hann var aðeins fimmtán ára.
„Blær er að etja kappi við bestu
spilara í Evrópu á þessum mótum og
á bjarta framtíð fyrir sér,“ segir Bogi
en Bandaríkjamenn hafa löngum
borið höfuð og herðar yfir aðra í
greininni enda á hún rætur að rekja
þangað. „Byrjað var að keppa á mót-
um fyrir rúmum fjörutíu árum en
hipparnir byrjuðu á þessu ennþá fyrr
– sér til dægrastyttingar og ynd-
isauka,“ segir Bogi.
Framundan hjá Blæ á árinu eru
mót í Skotlandi og Hollandi og EM
og HM, sem fram fer í Illinois í
Bandaríkjunum. Spurður um mögu-
leika Blæs þar segir Bogi raunhæft
að stefna á topp 30 í þessari lotu.
Ferðalög sem þessi eru ekki
ókeypis en Blær og tveir aðrir Ís-
lendingar, Mikael Máni Freysson og
Andri Fannar Torfason, eru styrktir
af Innova, markaðsráðandi fyrirtæki
í greininni, auk þess sem Bogi hefur
staðið fyrir fjáröflun, s.s. með því að
halda styrktarmót. „Markmiðið er að
Blær verði atvinnumaður í frisbígolfi
þegar hann lýkur menntaskóla.
Hann hefur alla burði til þess.“ Skellinöðruskutlarar í Rochina-fátækrahverfinu leggja fákunum og fara í mat.
Ódýrt útsýni af dýrari gerðinni af húsþaki í Rocinha-favellunni í Rio de Janeiro.
Adriano Medola mótshaldari kastar á holu 2 á vellinum í Colinas do Piracicaba
undir vökulu augu sigurvegarans, Tapani Aulu frá Finnlandi.
’ Ég var á góðu hóteliog ákvað að panta bílgegnum það til að skoðamig um í borginni. Brá þó
í brún þegar bíllinn
mætti; eldgamall og hékk
bara saman á lyginni.
Blær Örn Ásgeirsson leggur dræv framhjá kvöðinni á 18. holu á Parque Purificación Tomás í
Oviedo á Spáni, þar sem IV Open de España fór fram.
17.3. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
Dolorin 500mg paracetamól töflur - 20 stk og 30 stk
Lesið vandlega upplýsingarnar á umbúðumog fylgiseðli fyrir
notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á
frekari upplýsingum umáhættu og aukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is
Dolorin
Hita- og verkjastillandi paracetamól
Á HAGSTÆÐUVERÐI!
Reykjavíkurvegur 62 | Sími 527 0640 | 220Hafnarfjörður | www.wh.is
Þú færð
Dolorin í næsta
apóteki