Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.03.2019, Blaðsíða 22
Jane Fonda og
Paco Rabanne í
Barbarella
(1968) Aldrei
hafa geimbúningar
verið jafn heillandi
og þeir sem Fonda
klæddist í þessari
mynd Rogers Vadims.
Þarna er nóg af silfur-
dressum og háum stíg-
vélum. Síðar gerði Rab-
anne eftirminnilega
búninga fyrir Audrey Hep-
burn í Two for the Road.
Búningar hafa alltaf mikið að segja fyrir kvikmyndir
en nokkrar myndir skera sig úr fjöldanum þar
sem fatahönnuðir hafa sett sérstaklega mikinn
svip á kvikmyndina. Þær sjö myndir sem
hér eru taldar upp tengjast tískuheim-
inum órjúfanlegum böndum.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Stællegar
kvikmyndir
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.3. 2019
LÍFSSTÍLL
Bíldshöfði 9
Smáratorg 1
He 1 1lluhraun 6- 8
Fiskislóð 1
Við eru
í þínu
hverfi
m
Audrey Hepburn og Givenchy í Breakfast at Tiffany’s (1961) Þessi
mynd Blake Edwards er sú mynd sem hvað oftast er vitnað í þegar rætt er um
tískumyndir og margir hafa öfundað Holly Golightly af fataskáp sínum. Þetta
var ekki fyrsta myndin þar sem Hepburn vann með Hubert de Givenchy en
áður höfðu þau unnið saman að myndunum Sabrina, Funny Face og Love in the
Afternoon. Síðar klæddi fatahönnuðurinn leikkonuna í m.a. Paris When It Sizz-
les og How to Steal a Million.
Grace Jones og Azzedine Alaïa í A View to a Kill (1985)
Fá illmenni hafa átt svona flottan fataskáp eins og Grace Jones í
þessari Bond-mynd. Roger Moore var kannski í aðalhlutverki en
það var Jones sem stal senunni.
Catherine Deneuve og Yves Saint Laurent í Belle de Jour
(1967) Þessi sígilda mynd eftir Luis Buñuel segir frá Séverine
Serizy, húsmóður í París, sem fer að selja sig. Saint Laurent skap-
aði m.a. ógleymanlegar kápur fyrir persónu Deneuve í myndinni.
Samstarf þeirra varði áratugum saman, líka utan hvíta tjaldsins.
Natalie Portman og Rodarte
í Black Swan (2011)
Portman kynnti hönnuði Rodarte,
systurnar Kate og Laura Mulleavy,
fyrir leikstjóranum Darren
Aronofsky. Amy Westcott gerði
flesta búningana en hún vann með
Rodarte að einhverjum af flott-
ustu dansfötum myndarinnar, eins
og t.d. svarta fjaðrakjólnum á
meðfylgjandi mynd.
Richard Gere og Giorgio Armani í American Gigolo
(1980) Þessi mynd kom ferli Armani vel af stað en fágaður
smekkur ítalska fatahönnuðarins setti mikinn svip á myndina. Í
henni er að finna mörg heillandi jakkafatasettin sem persóna
Gere, fylgdarmaðurinn Julian Kaye klæddist.
Marlene Dietrich og
Dior í Stage Fright (1950) Áður
hafði hinn margverðlaunaði búninga-
hönnuður Edith Head unnið við
myndir Alfreds Hitchcocks en Diet-
rich krafðist þess að Dior sæi um
búninga hennar fyrir þessa
spennumynd. Útkoman var
stórglæsileg.