Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.03.2019, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.3. 2019
LÍFSSTÍLL
Ylströndin Nauthólsvík
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Mánudagar – Föstudagar
11-14 og 17-20
Laugardagar
11-16
Lengri
afgreiðslutími
á ylströnd
Verið velkomin í Nauthólsvík
Fyrir 16 ferkantaðar
sneiðar
BOTN
100 g eða ca 1 bolli
mulið ískex, eða annað
kex með vanillubragði
(setjið í matvinnsluvél og
mælið svo)
3 msk. ósaltað smjör, bráðið
Hitið ofninn í 180°C.
Setjið smjörpappír í fer-
kantað 20x20 cm form og
látið aðeins standa upp
fyrir kantana svo það
verði auðveldara að lyfta
kökunni upp úr forminu
þegar hún er bökuð.
Hrærið kexmulningi
saman við brædda
smjörið.
Þrýstið mixtúrunni í
botninn af forminu með
smjörpappírnum þannig
að það þeki jafnt yfir all-
an botn.
Bakið í 8 mínútur. Lát-
ið kólna á meðan fyll-
ingin er búin til. Lækkið
hitann niður í 150°C.
FYLLING
120 g hvítt súkkulaði,
skorið gróft
¼ bolli rjómi
450 g rjómaostur, við
stofuhita
½ bolli (100 g) sykur
2 stór egg
1 tsk. vanilludropar
2 tsk. rifinn börkur af sítrónu
2 msk. sítrónusafi
Setjið súkkulaðið og
rjómann í skál og bræðið
saman í örbylgjuofni í 20
sekúndur í einu; takið út
inn á milli og hrærið.
Endurtakið þar til bráðið
saman. Einnig er hægt
að bræða saman yfir
vatnsbaði.
Setjið rjómaostinn í
hrærivél og hrærið í eina
mínútu á miðlungshraða
þar til slétt og mjúkt. Bæt-
ið þá við sykri og hrærið í
aðrar tvær mínútur.
Skafið hliðarnar ef
þurfa þykir og hrærið
áfram. Bætið eggjunum
við, einu í einu, þar til
allt er vel blandað. Bætið
þá vanilludropum, sí-
trónuberki og sítrónu-
safa og hrærið.
Hellið súkkulaði-
blöndunni saman
við og hrærið.
Hellið blönd-
unni yfir botn-
inn og dreifið
þannig að allt
verði jafnt og
slétt.
Bakið í 45
mínútur. Miðj-
an á kökunni á
að vera aðeins
„á hreyfingu“
þegar hún er tekin
út. Látið hana kólna
á borðinu í klukku-
stund. Setjið hana svo í ís-
skáp og hafið þar í a.m.k.
Ostakaka með sítrónu og hvítu súkkulaði
fjóra klukkutíma en helst
yfir nótt.
Lyftið kökunni úr form-
inu og skerið í ferninga.
Fyrir 12
BOTN
12 Graham-kexkökur
1 ½ msk. sykur
2 ½ msk. brætt smjör
Hitið ofninn í 190°C.
Smyrjið botninn á 23
cm formi. Best er að
nota hringlaga
smelluform.
Blandið kexi, sykri
og smjöri saman í
matvinnsluvél. Pressið
blöndunni í botninn á
forminu. Bakið í ofni í
u.þ.b. 8 mínútur. Tak-
ið út og látið kólna.
Hækkið hitann á ofn-
inum í 260°C. Smyrjið
kanta formsins.
FYLLING
1 kg rjómaostur, við
stofuhita
1½ bolli sykur
rifinn börkur af 1 sítrónu
og 1 lítilli appelsínu
½ tsk. vanilludropar
3 msk. hveiti
5 stór egg
2 stórar eggjarauður
½ bolli sýrður rjómi
Setjið rjómaost, syk-
ur, vanilludropa og
rifna börkinn í hræri-
vélarskál og blandið
vel. Bætið þá hveitinu
út í og hrærið eggj-
unum og eggjarauð-
unum út í varlega,
einu í einu. Blandið
vel eftir hvert egg.
Bætið að lokum
sýrða rjómanum
saman við og hrærið
vel. Hellið blöndunni í
formið ofan á botn-
inn.
Bakið kökuna í 12
mínútur. Lækkið hit-
ann í 90-95°C. Bakið í
klukkutíma.
Takið kökuna út og
látið hana kólna í
korter. Takið þá hníf
og rennið honum var-
lega eftir kantinum til
að losa hana frá form-
inu. Þegar kakan hef-
ur náð stofuhita, fjar-
lægið hliðar formsins.
Setjið í ísskáp í a.m.k.
3 klukkutíma. Takið
kökuna út úr ísskáp
20 mínútum áður en
hún er borin fram.
Skerið kökuna með
hnífi sem dýft hefur
verið í sjóðandi heitt
vatn.
New York-ostakaka
með sýrðum rjóma
Fyrir 12
BOTN
1 bolli súkkulaðikex,
mulið (chocholate
wafer crumbs)
3 msk. sykur
3 msk. bráðið smjör
FYLLING
2 bollar súkkulaðibitar
(dökkt súkkulaði)
460 g rjómaostur,
við stofuhita
¾ bolli
sykur
2 msk. hveiti
2 stór egg, slegin saman
1 tsk. vanilludropar
jarðarber og hvítt
súkkulaði til skrauts,
valfrjálst
Setjið kexið í mat-
vinnsluvél og vinnið
þar til það er orðið að
fínni mylsnu. Hrærið
súkkulaðikexmylsn-
una saman við sykur
og smjör. Pressið
þetta í botninn á vel
smurðu 22-23 cm
smelluformi. Geymið
til hliðar.
Bræðið súkku-
laðibitana í örbylgju-
ofni og hrærið þar til
þeir eru orðnir
mjúkir. Geymið til
hliðar.
Hrærið rjómaost,
hveiti og sykur vel
saman í hrærivélar-
skál. Bætið þá eggjum
við og hrærið áfram á
lágum hraða. Hellið
þá súkkulaðinu og
vanilludropum saman
við og blandið vel.
Hellið yfir botninn.
Bakið á 175°C í 40-
45 mínútur. Takið út
og kælið í tíu mínútur.
Takið hníf og rennið
honum varlega með-
fram kantinum til að
losa kökuna frá form-
inu. Kælið í klukku-
tíma í viðbót á borði.
Hafið í ísskáp yfir nótt.
Skreytið með jarðar-
berjum og hvítu súkku-
laði (rifið eða skafið yfir
kökuna) ef þið viljið.
Súkkulaðiostakaka
Baka þarf ostaköku með ást og um-
hyggju og fara sér að engu óðslega. Út-
koman verður guðdómleg og þið munuð
ekki sjá eftir því að eyða tíma í bakstur
um helgina. Fátt er betra en
flauelsmjúk ostakaka
með kaffinu!
Unaðslegar
ostakökur