Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.03.2019, Síða 28
KVIKMYNDIR Bollywood-stjarnan Aamir
Khan ætlar að leika aðalhlutverk og fram-
leiða indverska útgáfu af Óskarsverðlauna-
ævintýramyndinni þekktu Forrest Gump.
Myndin mun heita Lal Singh Chaddha og
verður frumsýnd árið 2020. Tökur hefjast í
október. Leikstjóri verður Advait Chandan.
„Ég hef alltaf elskað handritið að Forr-
est Gump. Þetta er svo frábær saga um
þessa persónu,“ sagði Khan á frétta-
mannafundi í Mumbai í fimmtudag.
„Þetta er mynd sem lætur manni líða
vel. Þetta er mynd fyrir alla fjölskyld-
una.“
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.3. 2019
LESBÓK
LEIKHÚS Hugh Jackman snýr aftur á Broadway á
næsta ári í The Music Man. Jackman hefur verið á sviði
á Broadway fjórum sinnum. Hann fékk Tony-verðlaun
árið 2004 sem besti leikarinn í söngleik fyrir The Boy
from Oz. Árið 2012 fékk hann síðan sérstök heiðurs-
verðlaun fyrir framlag sitt til Broadway-samfélagsins.
The Music Man eftir Meredith Willson var fyrst sett upp
á Broadway árið 1957. Uppsetningin fékk Tony-
verðlaun árið 1958 sem besti söngleikurinn og hafði
þar með betur en West Side Story.
Jackman verður í hlutverki Harolds Hill,
svindlara sem þykist vera tónlistarmaður og sel-
ur hljóðfæri og búninga til drengja sem þrá að
verða hluti af hljómsveit í River City Ohio.
Jackman á Broadway
Hugh
Jackman AFP
Forrest Gump til Bollywood
Aamir Khan
AFP
dala, eða um 56 milljörðum króna.
Þetta er þá næstvinsælasta ofur-
hetjumyndin yfir opnunarhelgi en
aðeins Avengers: Infinity War er
tekjuhærri með 640,5 milljónir dala,
eða 78,9 milljarða króna.
Captain Marvel flaug líka á topp-
inn hérlendis og var sú langvinsæl-
asta frumsýningarhelgina en rúm-
lega tíu þúsund manns sáu hana.
Þjálfun fyrir ofurhetjur
Myndin fær líka ágæta dóma en hún
er með 64/100 á Metacritic.
Leikstjórar myndarinnar eru
tveir, Anna Boden og Ryan Fleck,
en í öðrum helstu hlutverkum eru
Samuel L. Jackson og Jude Law.
Kvikmyndin Captain Marveler fyrsta ofurhetjumyndinfrá Marvel þar sem ofur-
hetjan er kona. Brie Larson leikur
aðalhlutverkið, Carol Danvers, sem
er herflugmaður sem kemst að því
að hún býr yfir ofurkröftum.
Óhætt er að segja að myndin hafi
slegið í gegn þegar hún var frum-
sýnd í Bandaríkjunum um síðustu
helgi og sló líka met. Aldrei fyrr hef-
ur mynd með konu í aðalhlutverki
halað inn svona miklar tekjur yfir
frumsýningarhelgina.
Myndin er sú sjötta tekjuhæsta
yfir frumsýningarhelgi í sögu
Bandaríkjanna en tekjurnar af
myndinni námu um 455 milljónum
Larson þjálfaði í níu mánuði með
líkamsræktarþjálfaranum Jason
Walsh til að komast í sannfærandi
ofurhetjuform. Þjálfunin tók tvo
tíma á dag en Larson þurfti að
þyngjast um sjö kílógrömm af vöðv-
um fyrir myndina.
Kvenofurhetjur virðast standa
saman en eftir frumsýninguna sendi
Wonder Woman, ofurkonan Gal
Gadot, Larson sérstakar heillaóskir.
Ólst upp í Kaliforníu
Brie Larsson fæddist Brianne Sido-
nie Desaulniers þann 1. október árið
1989 og er því 29 ára. Hún ólst upp í
Sacramento í Kaliforníu og gekk
ekki í hefðbundinn skóla heldur fékk
að mestu kennslu heima hjá sér.
Eins og eftirnafnið gefur til kynna
talaði hún frönsku í uppvextinum
rétt eins og ensku en faðir henn-
ar var af fransk-kanadískum
ættum. Hún var alltaf skap-
andi og sýndi áhuga á því að
verða leikkona frá unga aldri.
Foreldrar hennar skildu
þegar hún var sjö ára og
flutti þá móðir hennar
með dætur sínar tvær
til Los Angeles í
þeim tilgangi að láta
leikaradrauma Lar-
son rætast. Þar sem
það þótti erfitt að bera
fram eftirnafn leik-
konunnar ákvað hún
að taka sér sviðs-
nafnið Larson eftir
sænskri langömmu
sinni.
Jay Leno og
gamanþættir
Hún fékk hlutverk í grín-
atriðum í kvöldspjallþætti
Jay Leno auk smærri
hlutverka í gamanþáttum
og kvikmyndum. Hún
spilar á gítar og reyndi
fyrir sér í tónlistarheim-
inum með ekkert sér-
stökum árangri. Hún hef-
ur sagt að hún vildi bara
fá að spila á gítar í striga-
skóm en útgáfufyrirtækið hafi viljað
háa hæla og vindblásið hár.
Hún lék systur persónu Amy
Schumer í grínmyndinni Trainwreck
frá 2015 sem gekk afar vel.
Verðlaunamyndin Room
Næsta mynd færði henni enn meiri
frægð en fyrir spennumyndina
Room hlaut hún BAFTA, Golden
Globe- og Óskarsverðlaun. Þar leik-
ur Larson konu sem hefur ver-
ið haldið fanginni í sjö ár í
litlu herbergi ásamt syni
sínum en myndin segir
líka frá því hvernig þeim
farnast utan herbergis-
ins.
Þess má líka geta
að Larson hefur
verið ötull tals-
maður kvenrétt-
inda og mannrétt-
inda almennt og
notar völd sín og
frægð sem lóð á
vogarskálina í
þessari baráttu.
Þeir sem hafa
ekki fengið nóg
af Larson í hlut-
verki Danvers
þurfa ekki að
óttast því hún
verður á hvíta tjald-
inu í myndinni Aven-
gers: Endgame, fram-
haldi Avengers: Infinity
War, sem verður frum-
sýnd hérlendis þann 26.
apríl.
Larson í hlutverki sínu
í Captain Marvel.Kvenhetja á
hvíta tjaldinu
Brie Larson fer með aðalhlutverkið í ofurhetju-
myndinni Captain Marvel. Þetta er fyrsta myndin
frá Marvel þar sem ofurhetjan er kona. Kvik-
myndin sló í gegn um frumsýningarhelgina.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Þar sem það þótti erfitt að
bera fram eftirnafn leikkon-
unnar ákvað hún að taka
sér sviðsnafnið Larson eftir
sænskri langömmu sinni.AFP
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177
hafðu það notalegt
vottun reynsla
ára
ábyrgð
gæði
miðstöðvarofnar