Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.03.2019, Síða 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.03.2019, Síða 29
RÚV sýndi í vikunni Leaving Neverland, heimildarmynd frá HBO ítveimur hlutum sem afhjúpar tónlistarmanninn Michael Jackson sembarnaníðing. Áhorfið lætur engan ósnortinn. Þetta er eitthvað sem allir hefðu átt að vita en einhvern veginn var lífseig mýtan um poppstjörnuna sem var rænd æskunni og þurfti því loks að fá útrás fyrir barnið í sjálfum sér með því að leika sér með börnum, borða popp og horfa á teiknimyndir. Stað- reyndin er hinsvegar sú að Jackson var sjálfur að ræna börn æskunni með útsmognum aðferðum. Það mun enginn taka frá Jackson þau áhrif sem hann hefur haft í tónlistar- sögunni hingað til en það þýðir ekki að við þurfum að hampa honum að eilífu. Fullt af stórum stjörnum fellur í gleymskunnar dá með tímanum. Ekki ætla ég að minnsta kosti að hlusta á lög hans á Spotify og láta peninga renna til fjölskyldunnar og eigenda tónlistarinnar sem neita ásökununum og gera lítið úr fórnar- lömbunum. Leaving Neverland er sérstaklega vel gerð heimildarmynd, þar sem sneitt er hjá tilfinningaklámi, þetta er enginn Jerry Springer-þáttur, með grátöskrum, óvæntum fundum og faðmlögum. Hetja er ofnotað orð um þessar mundir en Wade Robson og James Safechuck eru sannarlega hetjur fyr- ir að segja sögu sína og það er átak- anlegt að fylgjast með því hversu mikil áhrif ofbeldið hefur haft á líf þeirra. Það er auðvelt að kenna bara for- eldrunum um hvernig fór, hvernig datt þeim eiginlega í hug að leyfa sonum sínum að sofa í sama rúmi og fullorðinn maður! Staðreyndin er samt sú að Jackson eyddi miklum tíma í að ná ekki síst mæðrunum á sitt band og verða einn af fjölskyldunni. Fjölskyldan í heild er fórnarlamb hans, að hluta til blinduð af ofurstjörnuljóma, og Jackson er einn ábyrgur. Jackson kemur fram í einum Simpsons-þætti í þriðju þáttaröð. Al Jean, framleiðandi og rithöfundur, hefur nú ákveðið að hætta með þáttinn, „Stark Raving Dad“ í sýningum eftir að hafa séð heimildarmyndina. Hann ákvað að gera þetta vegna þess að honum finnst nú, eftir að hafa fengið meiri upplýsingar, að Michael Jackson hafi notfært sér þáttinn til að geta nálg- ast unga drengi, að þetta hafi ekki bara verið grínþáttur fyrir honum. Jean skrifaði þáttinn sjálfur og fær tekjur í hvert sinn sem þáttur- inn er sýndur svo hann tapar peningum á þessari ákvörðun. Það er mikilvægt að endurskoða afstöðu sína eftir þessar nýju upplýsingar sem fram komu í myndinni og skoða hlutina í þessu nýja ljósi. Ekki gera ekki neitt. Loftmynd af Neverland- búgarði Jackson. AFP Fall poppkóngsins Sjónvarp Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is ’Leaving Neverland ersérstaklega vel gerðheimildarmynd, þar semsneitt er hjá tilfinninga- klámi, þetta er enginn Jerry Springer-þáttur, með grátöskrum, óvænt- um fundum og faðm- lögum. AFP Michael Jackson var þekktur fyrir dans og söng. 17.3. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 TÓNLIST Breska sálarsöngkonan Joss Stone kom fram í vikunni í Norður-Kóreu sem hluta af tónleikaferðalagi sínu Total World Tour. Stone, sem varð fræg með frumraun sinni The Soul Sessions, söng fyrir fámennan hóp á bar í höfuðborginni Pjong- jang. Umsjónarmaður tónleikaferðalagsins, Simon Cockerell, deildi mynd á Instagram af tónleikunum. Myndatextinn var: „Joss Stone kom með smá reggí til Pjongjang.“ Eins og nafnið gefur til kynna ferðast Stone víðar en flestir á þessu tónleika- ferðalagi sínu en m.a. hefur hún heimsótt Sýrland. Joss Stone í Norður-Kóreu Joss Stone. Út er komin bókin Villinorn: Blóð Viridíönu eftir danska höfundinn Lene Kaaberbøl. Þetta er önnur bókin í þessum bókaflokki um Klöru og baráttu hennar við háskaleg öfl í náttúrunni. Villinornin Shania er örvæntingarfull og illa særð. Angústúra gefur út. Nýútkomin bók Caroline Criado Perez, Invisible Women: Exposing Data Bias in a World Designed for Men, hefur vak- ið mikla athygli. Bókin greinir frá því hvernig heim- urinn sé hannaður fyrir karlmenn og hvernig áhrif það hafi á líf kvenna. Penguin gefur út. Meira eftir Hakan Günday segir frá tyrkneska drengnum Gaza sem býr við Eyjahafið. Níu ára gam- all er hann farinn að aðstoða föður sinn við mansal, að smygla ólöglegum innflytjendum, með því að gefa þeim mat og skjól áður en þeir freista þess að komast yfir til Grikklands. Bjartur gefur út. ÁHUGAVERÐAR BÆKUR Ég er yfirleitt alltaf með þrjár bækur í gangi: eina hljóðbók, eina fagbók og eina skáldsögu. Hljóð- bókina hlusta ég á þegar ég er á ferð- inni, fagbókina les ég á vinnutíma og skáldsöguna þegar ég er komin upp í rúm á kvöldin. Þessa stundina liggur Kópavogskrónika Kamillu Einarsdóttur á náttborðinu og ég stend mig ítrekað að því að flissa/ frussuhlæja uppþátt meðan á lestrinum stendur – sem er óheppilegt þegar makinn liggur sof- andi við hliðina á manni. Hljóðbókin er Vicious eftir V.E. Schwab og ég viðurkenni fúslega að þetta er í annað eða þriðja skipti sem ég hlusta á hana, enda frábær bók. Fagbókina ætlaði ég að vera löngu búin með en það er The Selfish Gene eftir Richard Dawkins frá árinu 1976. Sá doðr- antur útskýrir þró- unarsöguna út frá sjónarhóli erfða- vísisins sem, eins og titillinn gefur til kynna, gerir allt sem í hans valdi stendur til að tryggja áframhaldandi þátttöku sína í náttúruvalinu. RAGNHEIÐUR ER AÐ LESA Ragnheiður Eyj- ólfsdóttir er rit- höfundur. Nýjasta skáldsaga hennar, Rotturnar, er til- nefnd til Barna- bókaverðlauna Reykjavíkur. Hljóðbók, fagbók og skáldsaga Randi Komé Hönnuður: C.F. Möller Olivari á Ítalíu hefur framleitt hurðarhúna í meira en heila öld, brautryðjandi jafnt í hönnun sem fram- leiðslu. Olivari nýtir ávallt fullkomnustu tækni við framleiðslu sína sem byggir á því úrvals handverki sem skapaði fyrirtækinu nafn í upphafi. Lotus Q Hönnuður: Javier Lopez Chevron Hönnuður: Zaha Hadid Með arkitektúr í hendi þér SKÚTUVOGI 1C | 104 REYKJAVÍK | SÍMI 550 8500 | WWW.VV.IS BÓKSALA 6.-12. MARS Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 BlóðhefndAngela Marsons 2 Húðflúrarinn í AuschwitzHeather Morris 3 Hin ósýnileguRoy Jacobsen 4 Þar sem ekkert ógnar þérSimone van der Vlugt 5 Sextíu kíló af sólskiniHallgrímur Helgason 6 FyrirmyndarmóðirAimee Molloy 7 Undir fána lýðveldisinsHallgrímur Hallgrímsson 8 Villinorn – blóð ViridíönuLene Kaaberbøl 9 KvikaÞóra Hjörleifsdóttir 10 Á eigin skinniSölvi Tryggvason 1 Villinorn – blóð ViridíönuLene Kaaberbøl 2 MatthildurRoald Dahl 3 Sagan um Skarphéðin Dungal Hjörleifur Hjartarson / Rán Flygenring 4 Litli prinsinnAntoine de Saint-Exupéry 5 Krókódíllinn sem þoldi ekki vatn Gemma Merino 6 Vögguvísurnar okkarÝmsir höfundar 7 Gagn og gamanHelgi Elíasson / Ísak Jónsson 8 Risasyrpa – sögur úr Andabæ Walt Disney 9 Afmæli hjá LáruBirgitta Haukdal 10 Hvað segja dýrin Anna Margrét Marinósdóttir / Illugi Jökulsson Allar bækur Barnabækur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.