Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.03.2019, Blaðsíða 32
SUNNUDAGUR 17. MARS 2019
DÝPR I OG BE TR I SVEFN
Með því einu að snerta takka getur þú stillt
rúmið í hvaða stöðu sem er og með öðrum
færð þú nudd. Saman hjálpa rúmið og dýnan
þér að ná hámarksslökun og dýpri og betri
svefni. Svo vaknar þú endurnærð/ur og til-
búin/n í átök dagsins.
ÞRÁ AUS FJARSTÝRING
LED-vasaljós
Klukka
Vekjaraklukka
Upp/niður höfðalag
Upp/niður fótasvæði
Rúm í flata stöðu
2 minni
Nudd
Bylgjunudd
Tilboð 427.350 kr.
STILLANLEG RÚM – VERÐDÆMI
Með tveimur Serta Therapist heilsudýnum,
2 x 90 x 200 cm. Fullt verð: 569.800
Tilboð 288.675 kr.
Með Tempur Original eða Cloud heilsudýnu,
90 x 200 cm. Fullt verð: 384.900
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
AÐ SOFA BETUR OG LÍÐA BETUR ER OKKUR ÖLLUM DÝRMÆTT
STILLANLEGIR
DAGAR
STILLANLEGU HEILSURÚMIN FRÁ C&J:
· Inndraganlegur botn
· Lyftigeta yfir 2 x 450 kg per botn
· Mótor þarfnast ekki viðhalds
· Tvíhert stálgrind undir botni
· Tveir nuddmótorar með tímarofa
· Þráðlaus fjarstýring með klukku,
vekjara og vasaljósi
· LED lýsing undir rúmi
· Hliðar og endastopparar svo dýnur
færist ekki í sundur
HEILSURÚM
AFSLÁTTUR
25%
KOMDU NÚNA!
STILLANLEGIR DAGAR
„Með jarðskjálftum, dauða kvikfénaðar og hryðju-
verkahópi sem kallast Hamar Þórs, hefur þáttaröð
númer tvö verið eins og morðgáta sem gerist í Mord-
or.“
Svo hljómar úrskurður gagnrýnanda Guardian um
Ófærð en Bretar eru að nálgast lokaþáttinn, búnir með
þann áttunda.
Dómur Guardian sem birtist á fimmtudag er lofsam-
legur og það sama má segja um gagnrýni annarra
breskra fjölmiðla. Gagnrýnandi blaðsins telur málin að-
eins vera að skýrast og þykir þáttaröðin hafa hrífandi
og sannfærandi „yfirnáttúrulegt yfirbragð“ þar sem yf-
irnáttúrulegar útskýringar hljómi ekki einu sinni út úr
kú – svo sem að álög hvíli á einstökum byggingum
vegna þess að þær voru reistar á ákveðnum steinum.
Ólafur Darri Ólafsson hrífur gagnrýnanda sem hefur
haft sérstaka ánægju af því að fylgjast með sam-
skiptum hans og Hinriku og Ásgeirs.
Bretar nálgast loka-
þátt Ófærðar og eru
að farast úr spenningi.
Ljósmynd/Lilja Jónsdóttir
Morðgáta í Mordor
Bretar eru komnir langt í annarri þáttaröð af Ófærð en áttundi þáttur
fór í loftið í vikunni. Gagnrýnandi Guardian er stórhrifinn.
Fyrir nákvæmlega 40 árum, þann 17. mars
1979, var frétt í Morgunblaðinu um þrjá
skemmtilega menn í Hafnarfirði sem hugðust
létta sig til styrktar góðu málefni. Þar var ritað:
MARAÞONMEGRUN hófst 8.1. fimmtudags-
kvöld í Veitingahúsinu Snekkjunni í Hafnarfirði.
Þrír menn, vel í holdum, þeir Ingvar Viktorsson,
109 kg, Jón (samlokubani) Sigurðsson 107 kg,
og Kristján (Kiddi kroppur) Þorsteinsson 88 kg,
skoruðu á plötusnúð staðarins Halldór Árna
Sveinsson (Dóra feita), 120 kg, í megrun. Til-
gangurinn með þessari megrun er að vekja at-
hygli og safna fyrir „gleymd börn ’79“ en ágóð-
inn af þeirri söfnun fer til þess að bæta aðstöðu
barnanna í Lyngási. Munu kapparnir verða vikt-
aðir á hverjum fimmtudegi af Báru Magnús-
dóttur frá heilsurækt Jassballettskóla Báru en
hún mun einnig gefa þeim góð ráð og fylgjast
vel með þeim.
Einnig munu þeir félagar skemmta fólki með
ýmsu móti næstu fimmtudagskvöld, m.a. með
því að dansa ballett.
GAMLA FRÉTTIN
Maraþonmegrun
Maraþonmegrunin að hefjast. Talið frá vinstri: Kristján Þor-
steinsson, Halldór Árni Sveinsson og Ingvar Viktorsson.
Ljósm. Kristján
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
James Marsden
leikari
Bill Hader
leikari og grínisti
Gísli Örn Garðarsson
leikari