Morgunblaðið - 16.04.2019, Síða 1

Morgunblaðið - 16.04.2019, Síða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 6. A P R Í L 2 0 1 9 Stofnað 1913  90. tölublað  107. árgangur  EINLEIKARI SEM GÆLDI VIÐ NÁNARI INNLIFUN TÓNLISTARVEISLA SÉRBLAÐ UM SJÁVAR- ÚTVEGINN MÚSÍK Í MÝVATNSSVEIT 29 200 MÍLUR 32 SÍÐURSINFÓNÍUTÓNLEIKAR  Mannfjöldi fylgdist í gærkvöldi með baráttu slökkviliðsmanna við mikinn eld í Notre-Dame dómkirkjunni í París. Sumir grétu, aðrir báð- ust fyrir og sungu Ave Maria á latínu. Hæsta turnspíra kirkjunnar féll til jarðar þegar eldurinn hafði logað í rúma klukku- stund og um tíma var óttast að kirkjan myndi brenna til grunna. En seint í gærkvöldi lýsti Jean-Claude Gallet, slökkviliðsstjóri Parísar, því yfir að tekist hefði að bjarga meginbygg- ingunni og turnunum tveimur sem einkenna hana. Um 400 slökkviliðsmenn tóku þátt í slökkvistarfinu. Dómkirkjan, sem á íslensku hefur verið nefnd Maríukirkjan, er eitt helsta einkenn- istákn Parísarborgar. Hornsteinn hennar var lagður árið 1163 og byggingin tók tæpar tvær aldir. „Við munum endurbyggja Notre-Dame saman,“ sagði Emmanuel Macron, forseti Frakklands, seint í gærkvöldi þegar hann kom að dómkirkjunni. Sagðist hann ætla að hvetja til alþjóðlegs átaks til að endurreisa kirkjuna og fá helsta hæfileikafólk sem völ væri á til starfans. „Það eru allir afskaplega sorgmæddir og fólk er bara grátandi. Þetta er mjög átak- anlegt,“ sagði Laufey Helgadóttir, listfræð- ingur og leiðsögumaður í París, við Morg- unblaðið í gærkvöld. Laufey hefur búið í Parísarborg í meira en 40 ár og heimsótt kirkjuna ótal sinnum. Hefur hún farið ófáar ferðir þangað með Íslendinga í leiðsögn um borgina. „Hún er hjarta Parísar og þess vegna er þjóðin svona sorgmædd. Hjartað er að brenna og þegar hjartað brennur þá hrynur allt,“ seg- ir Laufey. „Hjarta Parísar“ í ljósum logum  Eldur kom upp í Notre-Dame dómkirkjunni í París  Óttast var að kirkjan myndi brenna til grunna en slökkviliði tókst að bjarga meginbyggingunni  Frakklandsforseti segir að kirkjan verði endurreist AFP Eldur í Notre-Dame Parísarbúar söfnuðust saman í gærkvöld og fylgdust með baráttu slökkviliðs við eld í Notre-Dame dómkirkjunni. Um tíma var óttast að kirkjan myndi brenna til grunna. MHún er hjarta Parísar »4 Morgunblaðið/Árni Sæberg Veiðar Haraldur hefur mikla trú á tilraunaverkefninu í Óman. Í byrjun þessa árs hélt togarinn Vic- toria til tilraunaveiða á Arabíuhafi, innan lögsögu Óman. Er það í fyrsta sinn frá árinu 1992 sem togveiðar eru stundaðar á þessu svæði, að undan- skildum stuttum tíma upp úr alda- mótum. Að þessu sinni eru veiðarnar stundaðar á grundvelli ákvörðunar yfirvalda í Óman sem kanna nú möguleikann á því að nýta að nýju hin gjöfulu fiskimið innan 200 mílna lög- sögu landsins. Til þess að hefja til- raunaveiðarnar gekk fjárfestingar- sjóður í eigu soldánsins í Óman til samninga við Harald Reyni Jónsson, sem oftast er kenndur við Úthafs- skip, um að sinna veiðunum fyrsta ár- ið. Varð það til þess að skip hans, Vic- toria, stundar nú veiðar á þessum slóðum undir stjórn tveggja íslenskra skipstjóra. Verkefnið er ekki aðeins að sinna veiðum og kortleggja fiski- stofnana sem þarna eru heldur einnig að safna upplýsingum um hafsbotn- inn. Í samtali við 200 mílur, sérblað um sjávarútveg sem fylgir Morgun- blaðinu í dag, segir Haraldur að yfir- völd í Óman standi frammi fyrir miklu tækifæri varðandi frekari veið- ar á komandi árum. ses@mbl.is Aðstoðar stjórnvöld í Óman  Íslenskt útgerðarfélag leiðir tilraunaveiðar í Arabíuhafi Alls sótti 1.441 einstaklingur um atvinnuleysisbætur hjá Vinnu- málastofnun dagana 28. mars, þegar WOW air fór í þrot, og fram til 8. apríl. Af þessum hópi eru 740 fyrrverandi starfsmenn WOW air. Þetta kemur fram í ný- birtu yfirliti Vinnumálastofnunar um ástandið á vinnumarkaði. Af þessum 740 einstaklingum sem unnu hjá WOW air búa 610 á höfuðborgarsvæðinu, 108 á Suður- nesjum og 22 á öðrum svæðum. Skráð atvinnuleysi í mars mæld- ist 3,2%. Áhrifa WOW air gætir þó aðeins að litlu leyti í þeirri tölu þar sem reksturinn stöðvaðist undir lok mánaðarins. Fjölgun ný- skráninga á atvinnuleysisskrá mun hins vegar sýna sig með af- gerandi hætti í apríltölunum og gerir Vinnumálastofnun nú ráð fyrir að skráð atvinnuleysi muni aukast í apríl og verða á bilinu 3,3- 3,6%. Þessi aukning er þvert á venj- una á þessum árstíma, því at- vinnuleysi hefur nánast alltaf minnkað milli mars og apríl síð- ustu 30 ár. » 14 1.441 umsókn barst um atvinnuleysisbætur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.