Morgunblaðið - 16.04.2019, Side 9

Morgunblaðið - 16.04.2019, Side 9
Hv am m sfj ör ðu r Búðardalur Lax árd alu r Laxárdalsheiði Sólheimafoss Sólheimafoss í Laxá í Dölum Kortagrunnur: OpenStreetMap Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Veiðifélag Laxár í Dölum hyggst lengja uppeldis- og veiðisvæði ár- innar á Laxárdal með því að láta gera fiskveg fram hjá Sólheima- fossi. Reiknað er með að 6 kílómetr- ar verði fiskgengir til viðbótar þeim 25 kílómetrum sem lax geng- ur nú á. Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur samþykkt framkvæmdaleyfi fyrir gerð laxastiga til hliðar við Sól- heimafoss. Fiskistofa hafði áður veitt jákvæða umsögn um fram- kvæmdina. Þar er lögð áhersla á að gengið verði snyrtilega frá svæðinu að framkvæmdum loknum. Hægt að bæta við einni stöng Vífill Oddsson verkfræðingur hefur hannað laxastiga. Telur hann heppilegar aðstæður til að fleyga fiskveg í klöppina norðan við foss- inn. Kostnaður við það og vegagerð er áætlaður rúmar 8 milljónir kr. Í greinargerð fiskifræðings Haf- rannsóknastofnunar er gert ráð fyrir að framleiðslugeta Laxár auk- ist um 15-20%, þegar viðbótin verð- ur tilbúin. Margir veiðistaðir eru einnig á þessu svæði og því talið mögulegt að fjölga stöngum í Laxá um að minnsta kosti eina, nái lax að nýta þetta svæði. Liðlega 1.200 laxar veiddust í Laxá í Dölum á síðasta ári, á 6 stangir. Veiðin sveiflast talsvert milli ára en liðlega þúsund laxar veiðast þar á ári að meðaltali á ára- tug. Bæta 6 kílómetrum við fisk- gengt svæði Laxár í Dölum FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2019 Fji1rfestu Iheilsunni! Meiri hreyfing - Meiri ancEgja Eitt mesta urval landsins af reidhj61um SENDUM HJ6LID HVERT A LAND SEM ER FYRIR KR. 2.49D.- Vi6ger6ir Pantaau tima a netinu - www.orninn.is Verakr. 99.990.- Hentar vel a malbik og stiga Alstell - 24 gfrar, vokva diskabremsur, Li,esanlegur dempari Litur. Black ,1, T�EIC Ve,ve 2 Comfort gotuhj61 sem hentar vel a malbiki6 Alstell - 21 gfr Fj6r5un f sceti Litur. Matte black Vera kr. 84.990.- ,1, T�EIC MARUN 6 Frabaert fjolnota hj61. Alstell - 24 gfrar Vokva diskabremsur Lcesanlegur dempari Litur. Black Verakr. 94.990.- Hj6/ fyrir al/a fjolskylduna ORNINN,,. StofnalJ 1925 FaxafenTB Simi S88 9890 Endursoluac:lilar a landsbyggilinni: Jotunn velar Selfossi, Akureyri og Egilsstoaum - Bike Tours Grindavik Bjarni Bene- diktsson, fjár- mála- og efna- hagsráðherra, undirritaði um helgina yfirlýs- ingu um alþjóð- legan samstarfs- vettvang fjármálaráð- herra um að- gerðir í loftslags- málum. Fyrsti fundur vettvangsins var haldinn um helgina í tengslum við vorfund Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins og Alþjóðabankans. Fulltrúar um 50 ríkja sátu fundinn og 22 þeirra skrifuðu undir yfirlýs- inguna. Á vefsíðu stjórnarráðsins segir að í aðildinni felist m.a. viðurkenn- ing á þeirri ógn sem steðjar að efnahagskerfum heimsins, sam- félögum og umhverfinu, sem felur í sér áhættu þegar kemur að efna- hagslegum vexti og þjóðhagslegum stöðugleika. Fjármálaráðherrarnir telja að í krafti embættis síns séu þeir í lykil- stöðu til að hraða umbreytingum til að draga úr losun og auka kolefnis- bindingu og skapa umhverfisvænni hagkerfi með stefnumótun á sviði þjóðhags- og ríkisfjármála og, þar sem það á við, með reglusetningu, samkvæmt vefsíðunni. Fjármálaráðherrar vilja aðgerðir í loftslagsmálum Bjarni Benediktsson Skóla- og frístundaráð hefur sam- þykkt tillögu sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar um stofnun stoðdeildar vegna mót- töku barna í leit að alþjóðlegri vernd sem þurfa sértækan stuðning við að hefja nám í grunnskólum Reykjavíkur. Hingað til hafa börn í þessum hópi dreifst á 12 skóla víðs- vegar um borgina. Deildin verður starfrækt við Háaleitisskóla – Álftamýri frá og með næsta skólaári og verður fyrir börn í 3.-10. bekk. Rík áhersla er lögð á að nemendur verði þar tíma- bundið á meðan unnið er að mati á námslegri stöðu þeirra og hlúð að félagslegum og sálrænum þáttum þeirra eftir bestu getu. Nemendur munu jafnframt taka þátt í starfi við frístundamiðstöðina Kringlu- mýri og öðru íþrótta- og frístunda- starfi í hverfinu. Búseta nemenda sem sækja munu nám í stoðdeildinni er víðs- vegar í Reykjavík og verða sam- göngur tryggðar fyrir þau í og úr skóla meðan þau stunda nám í stoð- deildinni,“ segir í tilkynningunni. Opna stoðdeild fyrir börn í leit að vernd Skóli Stoðdeild verður í Háaleitisskóla.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.