Morgunblaðið - 18.04.2019, Síða 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2019
✝ Sigurjóna Har-aldsdóttir
fæddist í Reykjavík
14. desember 1942.
Hún lést á Land-
spítalanum í Foss-
vogi 11. apríl 2019.
Foreldrar henn-
ar voru Haraldur
G. Guðmundsson,
netagerðamaður
og sjómaður, f. 6.
ágúst 1917, d. 3
janúar 1999, og Hallborg Sigur-
jónsdóttir, saumakona og hús-
móðir, f. 7. desember 1921, d.
6. maí 1989.
Systkini Sigurjónu eru Svan-
berg, samfeðra, f. 22. febrúar
1937, Guðrún Ágústa, f. 2. apríl
1944, Eiður Hafsteinn, f. 17.
janúar 1947, Ester, f. 26. júní
1948, d. 3. nóvember 2008, Jón
Ingvar, f. 20. desember 1953,
og Hólmfríður, f. 28. febrúar
1962.
1966, var gift Bjarna Ingibergs-
syni. Börn þeirra eru Berglind
Anna, f. 14. maí 1990, börn
hennar og sambýlismanns
hennar Róberts B. Bjarnasonar
eru Bjarni Alexander og Matth-
ias Thor. Arnar Freyr, f. 16.
nóvember 1994. Sambýlismaður
Hallborgar er Tryggvi Leósson.
Sigurjóna ólst upp á Lauga-
vegi 158 og stundaði nám við
Samvinnuskólann á Bifröst.
Hún giftist ung og stofnaði
heimili með eftirlifandi eigin-
manni sínum í Reykjavík. Árið
1966 fluttu þau í Árbæjarhverfi
og bjuggu þar í 12 ár. Þaðan
fluttu þau í Dalsel í Seljahverfi
þar sem þau bjuggu fram til
þessa dags. Sigurjóna starfaði
m.a. í versluninni Ási við
Laugaveg og Þjóðleikhús-
kjallaranum. Þau hjónin stofn-
uðu fyrirtækið Z-húsgögn sem
þau ráku í mörg ár en síðan
hóf hún störf hjá TM hús-
gögnum þar til hún hætti störf-
um. Hún var ávallt mjög virk í
félagslífi og tók meðal annars
þátt í félagslífinu í Gerðubergi
þar til undir það síðasta.
Að ósk Sigurjónu hefur útför
hennar farið fram í kyrrþey.
Sigurjóna kynn-
ist eftirlifandi
eiginmanni sínum,
Erni Wilhelm Ze-
bitz bólstrara, f.
17. nóvember 1942,
árið 1959 og gengu
þau í hjónaband
17. nóvember árið
1962.
Börn þeirra eru
a) Haraldur Örn, f.
30. janúar 1961,
börn hans Sigurjóna f. 21.
nóvember 1982, dóttir hennar
er Guðný Fjóla, sambýlismaður
Einar Hreinsson. Dagbjört
Svana, f. 18. janúar 1985.
Eiginkona Haraldar er Björg
Inga Lára Stígsdóttir, f. 4.
september 1966, börn þeirra
eru Kristjana Sif, f. 27. júlí
1986, dóttir hennar er Eva
Þóra, Örn Steinar, f. 21. ágúst
1987, og Atli Már, f. 27. maí
1994. b) Hallborg, f. 17. október
Elsku fallega mamma mín –
hve heppin ég hef verið í lífinu
að eiga einmitt þig sem mömmu.
Mamma sem alltaf var svo lífs-
glöð, umburðarlynd og stríðin
og svo ótrúlega sterk og dugleg.
Hvern hefði grunað að þú fengir
þennan þunga dóm og aðeins sjö
vikum síðar værir þú farin?
Þrátt fyrir mikla sorg og söknuð
er ég svo óumræðilega þakklát
fyrir að hafa fengið þessar vikur
með þér. Þú svo sterk þrátt fyr-
ir að vera mikið veik, alltaf að
reyna að létta öllum lífið og
meira að segja á fullu að und-
irbúa þína stóru ferð sem þú ert
nú farin í og kemur ekki til baka
úr. Minningarnar þjóta um hug-
ann og tilfinningarnar streyma,
tárin fossa úr augunum, þér
mun ég aldrei gleyma – þú segir
„kjánaprikið mitt þetta verður
allt í lagi“. Næmni þín á okkur
fjölskylduna þína var svo stór-
kostleg og þú sparaðir okkur
margar hringingarnar því það
dugði okkur að hugsa til þín og
þá hafðir þú samband. Þú liggj-
andi á hnjánum í moldinni hlú-
andi að litlum veikburða
plöntum svo þær gætu komist á
legg og vaxið upp og orðið að
stórkostlegum trjám og
runnum. Það sama gerðir þú
fyrir alla sem voru svo lánsamir
að kynnast þér, hlúðir að, varst
til staðar, gladdir og elskaðir.
Yndislega brosið þitt, hláturinn
og glampandi fallegu augun.
Með þér var alltaf gaman að
vera. Listfengi þitt var svo
yndislegt, að sitja með þér og
föndra og mála voru dásamlegar
stundir. Þú varst einstök og
verður ávallt í hjarta mínu og
allt um kring, þú ert hetjan mín.
Hallborg Arnardóttir.
Það er örugglega ekki al-
gengt að kona sé kölluð höfðingi
en þegar ég minnist Jónu, syst-
ur minnar, dettur mér enginn
annar titill í hug. Jóna var elst
okkar alsystkina og mikil fyrir-
mynd okkar sem yngri erum.
Það sýndi hún með dugnaði sin-
um, atorku og ekki síst sinni
léttu lund.
Það er margs að minnast frá
uppvaxtarárunum okkar að
Laugavegi 158 þar sem við
bjuggum ásamt afa okkar og
ömmu og fleiri ættingjum. Þetta
heimili okkar var reyndar
stundum eins og umferðarmið-
stöð enda viðkomustaður fjöl-
margra ættingja og vina. Jóna
var þá iðulega fremst í flokki að
hjálpa til við móttöku gesta og
sýndi þannig snemma berlega
þá gestrisni og glaðlegheit sem
fylgdu henni æ síðan.
Árið 1959 flutti fjölskylda
okkar í Mosgerði í smáíbúða-
hverfinu. Þá hafði Jóna kynnst
eftirlifandi eiginmanni sínum
honum Erni og fluttu þau fljót-
lega annað. Það er mér ein-
staklega ljúft að minnast þess
hversu gott lag Jóna hafði á að
fylla heimili okkar gleði og kæti
þegar hún kom með Harald sinn
nýfæddan i heimsókn þangað.
Ég sagði henni síðar að ég hefði
þá, sem ungur piltur, ákveðið að
reyna að vera gleðigjafi eins og
hún, en hún hló bara að fögrum
fyrirheitunum.
Það urðu töluverð kaflaskipti
i lífi okkar árið 1991 þegar við
ákváðum að byggja okkur sum-
arhús nánast hlið við hlið í
Grímsnesinu. Þá endurnýjuðust
kynnin og mikil og ánægjuleg
samskipti hafa verið alla daga
síðan. Þau Jóna og Örn komu
oft til okkar Bjarkar og við til
þeirra, þar sem grillað var sam-
an og haft gaman. Þau hjón
voru einstaklega dugleg og öðr-
um til fyrirmyndar í gróðursetn-
ingu og umhirðu lóðar sinnar
svo gaman var að fylgjast með.
Við Björk eigum eftir að sakna
þess að eiga ekki lengur von á
Jónu í heimsókn, gangandi upp
veginn með bros á vör. En góð
og ljúf minning er huggun
harmi gegn.
Kæru Örn, Haraldur og Hall-
borg, okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur til ykkar og fjöl-
skyldna.
Eiður og Björk.
Á kveðjustundu langar okkur,
bróðurbörn Jónu, að minnast
hennar í nokkrum orðum enda
var Jóna í sérlegu uppáhaldi hjá
okkur systkinum og okkar börn-
um. Frænkan sem allir vildu
hafa nálægt sér enda hlýjan,
gleðin og kímnigáfan sem frá
henni steðjaði hreinlega mann-
bætandi.
Fyrir okkur bróðurbörn Jónu
var hún ekki aðeins frænka og
vinkona heldur fékk hún hálf-
partinn ömmuhlutverk þegar
móðir þeirra systkina, og amma
okkar, féll frá fyrir allt of löngu.
Jóna átti hlut í okkar lífi rétt
eins og fleiri ættingja, hún var
eftirlæti barna okkar og lagði
sig fram við að veita þeim öllum
athygli, vissi hvað var um að
vera í þeirra litla heimi og var
óspör á hvatningu og hrós.
Þegar við minnumst Jónu
kemur ýmislegt í hugann en
ekki síst skarpur húmor hennar
og glaðlyndi. Kaldhæðnin var
aldrei langt undan og alltaf var
stutt í hlátur og grín og þótt
Jóna væri góðmennskan upp-
máluð var hún ekki viðkvæm og
hægt var að grínast með flest.
Fyrir um þremur áratugum
reistu systkinin, Jóna og faðir
okkar, ásamt fjölskyldum sínum
sumarbústaði í Grímsnesinu.
Það varð til þess að auka á sam-
gang og gæðastundir þar sem
allir komu reglulega saman í
sveitinni. Við kíktum í kaffi og
kræsingar til Jónu og alltaf
gengu börnin okkar að því vísu
að fá gott atlæti hjá frænku.
Það var reyndar svo að við vor-
um um tíma farin að takmarka
ferðir yngstu krakkanna niður
eftir til Jónu og Össa því helst
vildu þau fara dag hvern og
okkur fannst álagið farið að
vera fullmikið á konuna sem
auðvitað alltaf tók til allt það
besta fyrir börnin, þannig að
okkur fannst stundum nóg um
fyrirhöfnina.
En þannig var Jóna, ósér-
hlífin og fórnfús. Hún kvartaði
helst aldrei þó svo að síðustu ár-
in hafi reynt á hana líkamlega.
Hún sinnti öllum og gaf öllum af
sér en það mátti aldrei neitt fyr-
ir henni hafa. Það klikkaði varla
að í hvert sinn sem Jóna og Örn
komu í grill til okkar í bústaðinn
endaði kvöldið með því að Jóna
vildi ekki sitja of lengi og reyndi
að kveðja, allt of snemma að
okkar mati. Hún var kannski
þreytt en auðvitað vildi hún alls
ekki ganga of langt á gestrisn-
ina, enda sérlega kurteis og
vildi lítið láta hafa fyrir sér. En
alltaf suðuðum við, nú fullorðið
fólk, í henni að vera lengur.
Stundum lét hún aðeins eftir
okkur, tyllti sér í smástund og
við náðum að framlengja
kveðjustundinni. Það var ein-
faldlega alltaf leiðinlegt að sjá á
eftir henni, gleðigjafanum og
gæðablóðinu. En þegar hún fór
skildi hún alltaf eftir sig góða
stemmningu og sögur sem svo
voru jafnvel rifjaðar upp þegar
hún var á bak og burt.
Það er svo sannarlega sárt að
sjá á eftir Jónu í hinsta sinn. En
nú verður hvorki tautað né raul-
að. Kveðjustund er upprunnin
og engin framlenging í boði í
þetta sinn. Því er við hæfi að
þakka fyrir viðkynnin, vináttuna
og væntumþykjuna sem bætt
hefur miklu við okkar tilveru.
Blessuð sé minning einstakr-
ar frænku og vinkonu.
Erni, Haraldi og Höllu vott-
um við okkar dýpstu samúð.
Björk Eiðsdóttir
Sigurjón Eiðsson
Einar Eiðsson.
Sigurjóna
Haraldsdóttir
Sálm. 10.14
biblian.is
Þú gefur gaum að
mæðu og böli og
tekur það í hönd
þér. Hinn bágstaddi
felur þér málefni
sitt, þér sem hjálpar
munaðarlausum.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Fasteignir
FRÍTT VERÐ
MAT
Nýbýlavegi 8 Kópavogi - Austurvegi 6
Selfossi & Stillholti 16-18 Akranesi
Sími 527 1717
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Verkfæri
Giftingar- og trúlofunarhringar
frá ERNU - Mikið úrval.
Á mynd er silfurpar með alexandrite-
steini sem gefur mikið litaflóð. Verð
27.500- á pari með áletrun.
ERNA, Skipholti 3,
sími 5520775,
www.erna.is
BátarBílar
Volvo XC V70 til sölu
Volvo V70 station. Árg. 2000. Mjög
góður bíll. Vel viðhaldið. Smurbók frá
upphafi. Skoðaður. Sjálfskiptur og
með dráttarkrók. Fallegur bíll með
góða aksturseiginleika og þægileg
leðursæti. Góð sumardekk og ný
Michelin nagladekk fylgja.
Upp. í síma 893 7719 og 698 7563
Hjólbarðar
Bridgestone 4 sumardekk til sölu
Notuð aðeins síðasta sumar.
16 tommu. 195/50 R 16
Verð aðeins 40 þús.
Upplýsingar í síma 698-2598
Ný Bridgstone ónotuð 4
sumardekk til sölu
18 tommu, 225/40 R 18,
Verð aðeins 60 þús.
Upplýsingar í síma 698-2598.
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Hreinsa
þakrennur
og tek að mér
ýmis smærri
verkefni
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Atvinnuauglýsingar
Útgerðarfélag Reykjavíkur
Baader-maður
Útgerðarfélag Reykjavíkur óskar eftir
Baader manni á Kleifaberg RE 70
í veiðiferð sem hefst 24. apríl.
Upplýsingar hjá skipstjóra í síma
843 4266, 580 4200 eða 843 4226
Raðauglýsingar
Tilkynningar
Auglýsing vegna úthlutunar byggða-
kvóta á fiskveiðiárinu 2018/2019 sbr.
reglugerð um úthlutun byggðakvóta
til fiskiskipa nr. 685, 5. júlí 2018
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um
byggðakvóta til fiskiskipa fyrir:
Suðurnesjabæ (Sandgerði)
Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra
úthlutunarreglna í ofanskráðu byggðarlagi
sbr. auglýsingu nr. 356/2019 í Stjórnartíð-
indum.
ATH. Umsóknum skal skila í gegnum
rafræna umsóknargátt en vinnslusamn-
ingum er skilað í tölvupósti á
byggðakvoti@fiskistofa.is á eyðublöð-
um sem er að finna á heimasíðu stofn-
unarinnar (fiskistofa.is), þar eru ofan-
greindar reglur einnig aðgengilegar.
Umsóknarfrestur er til og með 2. maí
2019.
Fiskistofa, 17. apríl 2019