Morgunblaðið - 18.04.2019, Blaðsíða 25
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2019
VANDAÐIR RENNIBEKKKIR FRÁ SCHEPPACH
OG CROWN TOOLS RENNIJÁRN
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
Rennijárn
í stöku og í settum
frá kr. 6.280
Opið
virka
daga
frá 9
-18
lau f
rá 10
-16
Rennibekkur
DMT 460
kr. 69.340
Rennibekkur
Lata 5,0
kr. 158.300
Vefverslun brynja.is Fagmennska í 100 ár
Jæja, ætli gærkvöldið dugi
ekki til þess að ég taki VAR
endanlega í sátt?
Réttlætinu VAR fullnægt í
þremur tilvikum í Meistaradeild-
inni í gærkvöld þar sem „Var-
sjáin“ úrskurðaði um vafaatriðin
í leikjunum tveimur.
Fyrsta mark Liverpool gegn
Porto var löglegt þegar á reyndi,
enda þótt allir virtust telja Sadio
Mané rangstæðan þegar hann
skoraði.
Fernando Llorente skoraði
ekki með hendinni þegar hann
gerði hið dýrmæta þriðja mark
Tottenham gegn Manchester
City.
Og á örlagastundu var Ser-
gio Agüero rangstæður í aðdrag-
anda fimmta marks Manchester
City, sem hefði komið liðinu í
undanúrslit á kostnað Totten-
ham.
Niðurstaðan er sú að ein-
hver skemmtilegustu undan-
úrslit í Meistaradeildinni sem ég
man eftir eru fram undan í vor.
Þar leikur Tottenham við Ajax
og Liverpool við Barcelona. Fjög-
ur flott lið og að auki erum við
laus við allar peningamaskín-
urnar. Manchester City, Real
Madrid og París SG.
Það er gott fyrir fótboltann
sem íþrótt að þessi þrjú lið skuli
ekki vera hópi þeirra fjögurra
liða sem geta orðið Evrópu-
meistarar í ár. Skilaboðin eru
þau að það er ekki alltaf hægt að
kaupa allt.
Einvígi Liverpool og Barce-
lona verður án efa magnað og
framganga Ajax er kannski það
skemmtilegasta við keppnina í
ár. Þeir sem slá út bæði Real
Madrid og Juventus eru engir
aukvisar.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Stjarnan varð í gærkvöld Íslandsmeistari í
kvennaflokki og Gerpla í karlaflokki þegar Ís-
landsmótið í hópfimleikum fór fram í Ásgarði í
Garðabæ.
Stjarnan var með nokkra yfirburði í meistara-
flokki kvenna, sigraði í öllum þremur greinunum
og fékk samtals 53.925 stig en Garðabæjarliðið
varði þar með Íslandsmeistaratitilinn. Stjörnu-
konur fengu 19.925 stig fyrir gólfæfingar, 17.000
stig fyrir æfingar á dýnu og 17.000 stig fyrir stökk
á trampólíni. Gerpla varð í öðru sæti með 50.500
stig (18.700, 15.950 og 15.850) en þriðja liðið sem
tók þátt, ÍA frá Akranesi, stóð þeim langt að baki
og fékk 29.900 stig.
Í meistaraflokki karla voru aðeins tvö lið,
Gerpla og Stjarnan. Gerplustrákarnir voru betri í
öllum greinum og fengu 53.000 stig (17.700, 18.200
og 17.100) en Stjarnan fékk 48.950 stig.
Gerpla var með eina liðið í keppni blandaðra
liða og fékk því gullið fyrirhafnarlítið með 41.450
stig.
Selfoss sigraði í 1. flokki kvenna og hafði þar
betur í jafnri keppni við Gerplu og Stjörnuna. Sel-
foss fékk 47.450 stig, Gerpla 46.550 og Stjarnan
46.300 stig.
Í 1. flokki karla var Stjarnan með eina liðið og
fékk þar 31.350 stig. vs@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Íslandsmeistarar Kvennalið Stjörnunnar fagnar Íslandsmeistaratitlinum í hópfimleikum í gærkvöld.
Stjörnukonur áfram bestar
Vörðu Íslandsmeistaratitilinn í kvennaflokki í hópfimleikum á sannfærandi hátt
HK tryggði sér oddaleik í einvígi
sínu gegn KA um Íslandsmeistara-
titil kvenna í blaki en HK vann 3:1-
sigur gegn KA í háspennuleik í
Fragralundi í Kópavogi í gær.
Þetta var fjórði leikur liðanna í bar-
áttu sinni um Íslandsmeistaratit-
ilinn og er staðan í einvíginu nú 2:2.
Kópavogsliðið byrjaði leikinn af
miklum krafti og Akureyringar
virkuðu stressaðir. KA-stúlkur
voru að klikka á uppgjöfum og HK
gekk á lagi og vann fyrstu hrinu
25:21. Meiri spenna var í annarri
hrinu þar sem HK fagnaði sigri,
25:23. KA kom til baka í þriðju
hrinu og vann sannfærandi, 25:23. Í
fjórðu hrinu var allt í járnum og lið-
in skiptust á að leiða. Svo fór að
lokum að HK vann, 26:24 eftir upp-
hækkun, og HK fagnaði sigri.
HK stúlkur lentu 2:0-undir í ein-
víginu og voru komnar upp við
vegg en þeim hefur nú tekist að
jafna metin í 2:2. Oddaleikur lið-
anna fer fram á Akureyri 24. apríl
og þá ræðst hvort liðið verður Ís-
landsmeistari. bjarnih@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Spenna Edda Björg Ásgeirsdóttir slær boltann yfir netið í leik HK og KA
en til varnar er Helena Kristín Gunnarsdóttir.
HK tókst að knýja fram
oddaleik gegn KA