Morgunblaðið - 29.04.2019, Qupperneq 1
M Á N U D A G U R 2 9. A P R Í L 2 0 1 9
Stofnað 1913 100. tölublað 107. árgangur
A
ct
av
is
91
10
13
91
10
13
Omeprazol
Actavis
20mg, 14 og 28 stk.
Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til
skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis
(t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu
lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á
fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á
umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins.
Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á
frekari upplýsingum um áhættu og auka-
verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á
www.serlyfjaskra.is
LEIÐSÖGU-
HUNDUM
FJÖLGAR
ÍSLANDSMEISTARAR
MYNDRÆN VEFSÍÐA
MEÐ HEILDAR-
LJÓÐASAFNI
SIGURSÆLAR VALSKONUR 25 ANTON HELGI JÓNSSON 28STUÐNINGUR 11
Rösklega var tekið til hendi í gær á stóra plokkdeginum og
rusl tínt víða á höfuðborgarsvæðinu. Aðgerðir hófust árla
dags í Grafarholti í Reykjavík en eftir hádegi var plokkað við
Vífilsstaði í Garðabæ þar sem Guðni Th. Jóhannesson, forseti
Íslands, og Eliza Reid, kona hans, voru fremst meðal jafningja.
Fólk lítur ekki lengur á plokk sem verkefni fyrir sérvitr-
ingana, heldur eru þetta raunhæfar aðgerðir í umhverfis-
málum. Áhuginn fer stöðugt vaxandi, sagði Einar Bárðarson,
skipuleggjandi plokkdagsins, við Morgunblaðið. »10
Forsetahjónin plokkuðu upp ruslið við Vífilsstaði
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Helgi Bjarnason
Atli Steinn Guðmundsson
Fámennt og afskekkt samfélag í
Norður-Noregi er í sárum vegna
harmleiks sem varð í þorpinu Me-
hamn í Finnmörku aðfaranótt laug-
ardags. Fertugur íslenskur sjómaður
var skotinn til bana og hálfbróðir
hans var handtekinn í kjölfarið grun-
aður um að hafa banað honum. Þriðji
maðurinn er í haldi vegna gruns um
að eiga aðild að málinu. Hinir
grunuðu eru einnig íslenskir sjó-
menn.
„Íslendingar hafa verið mjög mikil-
vægur hluti af samfélagi okkar síð-
ustu ár og okkur hefur þótt virkilega
vænt um að hafa þá hér. Þeir hafa
verið stór hluti af atvinnulífi okkar,“
segir Øyvind Korsberg, talsmaður
bæjarstjórnarinnar í Gamvik, við
Morgunblaðið. „Okkur þykir það
skelfilega sorglegt að þetta skuli hafa
gerst. Hugur okkar er allur hjá hinum
látna og fjölskyldu hans,“ segir Kors-
berg.
Lögreglan vinnur að rannsókn
málsins. Hún mun fara fram á gæslu-
varðhald yfir hinum grunuðu þegar
þeir verða leiddir fyrir dómara í dag.
Fram kemur í tilkynningu lögregl-
unnar að sá sem grunaður er um
verknaðinn hafi haft í hótunum við
fórnarlambið fyrir árásina og verið
úrskurðaður í nálgunarbann gagn-
vart honum. Sjálfur birti hann færslu
á Facebook skömmu áður en hann
var handtekinn, þar sem hann virðist
viðurkenna verknaðinn og biður fjöl-
skyldu sína afsökunar.
Íslenskt sjávarútvegsfyrirtæki
Mehamn er kyrrlátt tæplega 800
manna sjávarþorp nyrst í Noregi og í
sveitarfélaginu Gamvik búa alls rúm-
lega 1.100 manns. Þar af eru um þrjá-
tíu Íslendingar. Margir þeirra fluttu
til Gamvik til að vinna hjá sjávarút-
vegsfyrirtæki sem tveir Íslendingar
stofnuðu þar fyrir nokkrum árum og
hafa rifið upp. Íslendingar hafa einnig
flutt til Mehamn, meðal annars sjó-
menn.
„Hver einasti maður í Mehamn er í
sjokki,“ sagði Sigurður Hjaltested,
sjómaður í Mehamn, í fyrradag. „Við
vorum góðir félagar. Þessi drengur
var alveg yndislegur og ég get sagt
þér að stórt skarð er höggvið í sam-
félag Íslendinga jafnt og Norðmanna.“
Minningarathöfn var haldin í Me-
hamn í fyrradag auk þess sem kirkjan
í þorpinu Gamvik var höfð opin.
Margir komu til kirkju og athöfnin í
Mehamn var tilfinningarík.
Mikilvægur hluti
af okkar samfélagi
Afskekkt þorp í sárum eftir að Íslendingur var myrtur
Mehamn
í Noregi
N
O
R
EG
U
R
FINNLAND
RÚSS-
LAND
S
V
Í Þ
J
Ó
Ð
Osló
Stokkhólmur
Helsinki
Tromsø
Mehamn
M Lögreglan krefst … »4
Rannsaka þarf til hlítar hvers
vegna konur snúa ekki í sama mæli
og karlar aftur á æskuslóðir sínar í
dreifbýlinu að námi loknu. Þetta
segir Gréta Bergrún Jóhannes-
dóttir, fyrsti doktorsneminn við
HA. Ástæður þessa geta til að
mynda verið að konur þurfi án
áhuga að sinna sjálfboðaliðastarfi
sem hefð er fyrir í dreifbýlinu.
Sömuleiðis geti slúður fælt frá. »6
Sjálfboðaliðastarfið
kann að fæla frá
Íslenska nóta- og frystiskipið Hákon
ÞH lenti í árekstri við færeyskan bát
vestur af Suðurey í Færeyjum í
fyrrakvöld. Ekki urðu slys á fólki.
Hákon var á leið til Íslands með kol-
munna og var kominn inn í íslensku
lögsöguna í gærkvöldi.
Þórshafnarradíó fékk fyrst fregn-
ir af óhappinu um klukkan 22.55 í
fyrrakvöld. Áhöfn Hákonar lét
skömmu síðar vita að skipið hefði
lent í árekstri við fiskibátinn Skar-
stein. Færeyskir fjölmiðlar greina
frá því að þar sem ekki náðist tal-
stöðvarsamband við Skarstein hafi
tveir úr áhöfn Hákonar farið á báti
að Skarsteini og um borð. Í ljós kom
að einn maður var á bátnum.
Skemmdir urðu á plastbátnum en
hann lak ekki en farið var með
manninn um borð í Hákon og bát-
urinn tekinn í tog. Varðskipið Tjald-
ur tók við og dró hann til Þórshafnar.
Síld Hákon ÞH á veiðum.
Rakst á
færeyskan
fiskibát