Morgunblaðið - 29.04.2019, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2019
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir
Tvö vindorku-
ver í matsferli
Stórir vindmylluframleiðendur eru
meðal eigenda og ráðgjafa veranna
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Auglýstar hafa verið tillögur að áætl-
unum vegna mats á umhverfisáhrif-
um tveggja allt að 130 megavatta
vindorkuvera í Dalabyggð og Reyk-
hólasveit. Bæði áformin hafa á bak
við sig öfluga vindmylluframleiðend-
ur, annars vegar Siemens og hins
vegar Vestas.
Fyrirtækið Storm Orka hyggst
reisa og reka vindorkugarð í landi
Hróðnýjarstaða við Hvammsfjörð
með 80-130 MW af uppsettu afli. Að
baki fyrirtækinu standa bræðurnir
Magnús og Sigurður Jóhannessynir,
eigendur jarðarinnar, og njóta þeir
stuðnings vindmylluframleiðandans
Siemens Gamesa Renewable Energy
og fleiri ráðgjafa.
Siglt inn Hvammsfjörð?
Gert er ráð fyrir 85 MW vindorku-
garði í fyrsta áfanga. Ekki er talið
fært að gefa upp endanlegan fjölda
vindrafstöðva. Ef notaðar verða vind-
myllur sem framleiða tæplega 3,5
MW þarf um 24 myllur til að fram-
leiða það afl. Þær eru með 114 metra
háum turni, auk spaða þannig að
hæsti punktur spaða í efstu stöðu
yrði í 180 metra hæð. Hins vegar er
bent á það í tillögu að matsáætlun að
tækninni í framleiðslu vindrafstöðva
fleygi stöðugt fram þannig að búast
megi við að þegar kemur að bygg-
ingu garðsins dugi 18 myllur til að
framleiða 85 MW.
Vindmyllurnar eru þungar og erf-
iðar í flutningi. Í áætluninni eru
nefndir tveir möguleikar. Annars
vegar að skipa þeim upp á Grund-
artanga og flytja á vegum að Hróð-
nýjarstöðum. Hinsvegar að sigla með
þær inn Hvammsfjörð og þá þyrfti
aðeins að styrkja 2-3 km vegalengd
vegar að byggingarstað. Tekið er
fram að erfiðleikum kunni að vera
bundið að nota síðarnefndu leiðina.
Vegur upp Garpsdal
EM Orka áformar að reisa allt að
130 MW vindorkugarð í Reykhóla-
hreppi í landi Garpsdals við Gilsfjörð.
Fyrirtækið er í eigu EMP Holdings
sem er í sameiginlegri eigu EMP IN
en það er skráð á Írlandi og Vestas
sem er einn stærsti vindmyllufram-
leiðandi heims.
Áformað er að vindmyllurnar verði
á Garpsdalsfjalli, hátt yfir sjó. Þarf
að styrkja veg sem þangað liggur um
Garpsdal, um 6,5 km leið, til að koma
vindmyllunum á sinn stað. Gert er
ráð fyrir að þeim verði skipað upp á
Grundartanga.
Til að ná 130 MW afkastagetu þarf
allt að 35 vindmyllur og hver þeirra
yrði allt að 150 metrar á hæð, að með-
töldum spöðum í hæstu stöðu.
Bæði fyrirtækin vinna að undir-
búningsrannsóknum, meðal annars á
vindi. Í tillögum beggja er greint frá
því hvernig staðið verður að mati á
umhverfisáhrifum framkvæmdanna,
meðal annars á hljóðvist og ásýnd.
Skipulagsstofnun gefur frest til at-
hugasemda við tillögu Storms Orku
til 2. maí og 8. maí vegna EM Orku.
Ingveldur Geirsdóttir,
blaðamaður á Morgun-
blaðinu, lést á krabba-
meinsdeild Landspít-
alans við Hringbraut 26.
apríl síðastliðinn, 41 árs
að aldri, eftir baráttu við
krabbamein.
Ingveldur fæddist
hinn 19. nóvember 1977
á Sjúkrahúsinu á Sel-
fossi. Foreldrar hennar
eru þau Geir Ágústsson,
fæddur 11.1. 1947, og
Margrét Jónína Stef-
ánsdóttir, fædd 19.8.
1948. Ingveldur ólst upp
á heimili foreldra sinna í Gerðum í
Gaulverjabæjarhreppi, nú Flóa-
hreppi. Hún gekk í Barnaskóla Gaul-
verja til 13 ára aldurs og fór þaðan í
Gagnfræðaskólann á Selfossi. Hún
hóf nám við Fjölbrautaskóla Suður-
lands árið 1993 en gerði hlé á námi
sínu árið 1996 þegar hún fór til Bret-
lands sem au-pair. Hún brautskráð-
ist af viðskiptabraut Fjölbrautaskóla
Suðurlands árið 1997, flutti þá til
Reykjavíkur og vann þar ýmis þjón-
ustustörf. Árið 1999 hóf hún nám við
bændadeild Landbúnaðarháskóla Ís-
lands og útskrifaðist þaðan sem bú-
fræðingur árið 2001. Sama ár hóf hún
nám í bókmenntafræði við Háskóla
Íslands og útskrifaðist þaðan með
BA-próf í bókmenntafræði með þjóð-
fræði sem aukagrein árið 2004. Að
því loknu lá leið hennar beint í meist-
aranám í blaða- og fréttamennsku við
HÍ sem hún kláraði árið 2011 þegar
hún skilaði meistararitgerð sinni Er
landsbyggðin í fréttum?
Ingveldur hóf störf hjá Morgun-
blaðinu árið 2005 og
var blaðamaður fyrir
Daglegt líf og menn-
ingardeild blaðsins áð-
ur en hún hóf störf á
fréttadeild. Ingveldur
venti kvæði sínu í
kross um áramótin
2013 og hóf störf hjá
365 miðlum sem frétta-
maður Stöðvar 2 en
flutti sig aftur yfir á
Morgunblaðið undir
lok árs. Þar starfaði
hún sem blaðamaður á
fréttadeild til loka og
sinnti aðallega inn-
lendum fréttaskrifum. Auk þess
gegndi hún stöðu kvöld- og helg-
arfréttastjóra og fréttastjóra blaðs-
ins í afleysingum.
Ingveldur sat í stjórn Blaða-
mannafélags Íslands, fyrst í vara-
stjórn árin 2014-2015 og síðan í að-
alstjórn árin 2015-2019. Eftir að
Ingveldur greindist með krabbamein
árið 2014 starfaði hún um tíma með
samtökunum Krafti, stuðningsfélagi
fyrir ungt fólk með krabbamein og
aðstandendur, og sat meðal annars
fyrir á mynd sem notuð var í herferð
til vitundarvakningar um ungt fólk
og krabbamein.
Ingveldur var mikil sveitamann-
eskja og nýtti sem flestar stundir til
að renna austur fyrir fjall í Flóann til
að hjálpa við bústörf í Gerðum og
kynna börnum sínum sveita- og dýra-
lífið. Hún fór nokkrum sinnum á fjall
inn á Flóamannaafrétt og naut sín
mikið sem fjallmaður. Síðustu árin
náði hún að sinna hestamennskunni
af meira kappi, hafði hest á húsi í
Reykjavík og fór í hestaferðir. Hún
var mikill bókaunnandi, frá barns-
aldri las hún hverja bókina á fætur
annarri og hafði mikinn áhuga á bók-
menntum, tónlist og annarri menn-
ingu. Einlægur áhugi hennar á fólki
og samfélaginu leiddi hana og studdi
í blaðamannastarfinu enda átti hún
auðvelt með að kynnast fólki og
skapa tengsl.
Ingveldur var önnur í röð fjögurra
systkina en þau eru 1) Þórdís, fædd
27. janúar 1976, eiginmaður Þórir Jó-
hannsson, fæddur 18. ágúst 1972, og
eiga þau tvo syni, 2) Stefán, fæddur
30. maí 1981, eiginkona Silja Rún
Kjartansdóttir og eiga þau fjórar
dætur, 3) Hugrún, fædd 28. nóv-
ember 1985, eiginmaður Hörður
Sveinsson og eiga þau þrjú börn.
Eiginmaður Ingveldar er Kristinn
Þór Sigurjónsson, fæddur 23. febr-
úar 1972. Börn Ingveldar eru Ásgeir
Skarphéðinn Andrason, fæddur 15.
mars 2008, Gerður Freyja Kristins-
dóttir, fædd 6. apríl 2015, og þrjú
stjúpbörn; Steinunn Helga Krist-
insdóttir, fædd 2. júní 1991, og á hún
einn son Alan Þór Solquist, fæddan 1.
september 2016, Sigurjón Þór Krist-
insson, fæddur 14. apríl 2004, og
Kristín Þórunn Kristinsdóttir, fædd
21. apríl 2005.
Samvistir við fjölskyldu og vini
voru Ingveldi mikilvægar og skilur
hún eftir sig stórt skarð í ástvinahópi.
Samstarfsfólk Ingveldar á Morgun-
blaðinu sendir fjölskyldu hennar
innilegar samúðarkveðjur. Ingveldur
var öflugur og hugmyndaríkur blaða-
maður en umfram allt var hún vel lið-
inn samstarfsmaður og vinkona sem
verður sárt saknað. »14
Andlát
Ingveldur Geirsdóttir
Samtök atvinnulífsins og samflot
iðnaðarmanna hafa boðað til annars
fundar til að freista þess að leysa úr
kjaradeilu í Karphúsinu kl. 10 í dag.
Samtökin funduðu í gær og að sögn
Halldórs Benjamíns Þorbergssonar,
framkvæmdastjóra SA, miðaði við-
ræðunum vel áfram.
Kristján Þórður Snæbjarnarson,
formaður framkvæmdastjórnar Raf-
iðnaðarsambandsins, sagði hins veg-
ar að hægt hefði gengið og að hugs-
anlega mundu iðnaðarmenn grípa til
verkfallsaðgerða ef viðræðurnar í
dag gengju ekki hraðar fyrir sig.
Iðnaðarmennirnir fóru yfir stöðuna í
gær til að athuga möguleikann á
verkfallsaðgerðum. Í samfloti iðnað-
armanna eru Rafiðnaðarsamband
Íslands, Samiðn, Grafía, Matvís,
Félag hársnyrtisveina og VM sem er
félag vélstjóra og málmtæknimanna.
Alls eru félagsmenn um 13.000 tals-
ins.
Iðnaðarmenn og SA
funda áfram í dag
Farfuglarnir flykkjast nú til landsins og eru for-
vitnilegir vorboðar. Margir mættu við Gróttu á Sel-
tjarnarnesi á laugardagsmorgun þar sem náttúrufræð-
ingarnir Gunnar Þór Hallgrímsson og Tómas Grétar
Gunnarsson sögðu frá því sem fyrir augu bar en margir
voru með fuglabækur, sjónauka og myndavélar.
Eftirminnilegust verður fólki þó vorstemning stund-
arinnar og fuglasöngurinn. Gangan er hluti af sam-
starfi Ferðafélags Íslands og Háskóla Íslands sem ber
yfirskriftina Með fróðleik í fararnesti. Göngurnar hafa
unnið sér fastan sess en með þeim er aukið við þekk-
ingu ungs fólks, jafnhliða skemmtilegri hreyfingu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sumarið komið yfir sæinn og fuglakvak ómar á Seltjarnarnesi
Fylgst með farfuglum við Gróttu