Morgunblaðið - 29.04.2019, Síða 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2019
Fji1rfestu
Iheilsunni!
Meiri hreyfing - Meiri ancEgja
Eitt mesta urval landsins
af reidhj61um
SENDUM HJ6LID HVERT A LAND SEM ER FYRIR KR. 2.49D.-
Vi6ger6ir Pantaau tima a netinu - www.orninn.is
Verakr.
99.990.-
Hentar vel a malbik og stiga
Alstell - 24 gfrar,
vokva diskabremsur,
Li,esanlegur dempari
Litur. Black
,1, T�EIC Ve,ve 2
Comfort gotuhj61 sem
hentar vel a malbiki6
Alstell - 21 gfr
Fj6r5un f sceti
Litur. Matte black
Vera kr.
84.990.-
,1, T�EIC MARUN 6
Frabaert fjolnota hj61.
Alstell - 24 gfrar
Vokva diskabremsur
Lcesanlegur dempari
Litur. Black
Verakr.
94.990.-
Hj6/ fyrir al/a
fjolskylduna
ORNINN,,.
StofnalJ 1925
FaxafenTB Simi S88 9890
Endursoluac:lilar a landsbyggilinni: Jotunn velar Selfossi, Akureyri og Egilsstoaum - Bike Tours Grindavik
Engin mygla fannst í Hlíðaskóla
eftir úttekt á skólanum sem gerð
var vegna erfiðs raka sem hafði
verið nemendum og starfsfólki til
ama. Enn er beðið eftir nið-
urstöðum svipaðrar úttektar í Ár-
túnsskóla. Óttast er að mygla hafi
komið þar upp vegna raka og þak-
leka. Þá er óttast að lekavandamál
kunni að hafa leitt til myglu í Selja-
skóla og Hagaskóla.
Fossvogsskóla var lokað í síðasta
mánuði vegna myglu og raka-
skemmda en áætlað er að við-
gerðum þar ljúki í haust svo
kennsla í skólanum geti haldið
áfram á tilsettum tíma.
Hlíðaskóli
myglulaus
Aðrir skólar bíða
eftir niðurstöðum
Morgunblaðið/Eggert
Leki Fossvogsskóla var lokað í mars
vegna myglu. Viðgerðir standa yfir.
Fyrir helgina undirrituðu fulltrúar
sveitarfélaga á Suðurnesjum sam-
komulag um fyrirhugaða stækkun
Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Fyrir
hönd ríkisins skrifaði Lilja Alfreðs-
dóttir menntamálaráðherra undir
samkomulagið við fulltrúa Reykja-
nesbæjar, Grindavíkur, Voga og
Suðurnesjabæjar. Viðbyggingin
mun hýsa félagsrými nemenda og
bæta mjög aðstöðu þeirra.
„Það er virkilega ánægjulegt að
geta gengið frá þessu sam-
komulagi og rúllað þessum bolta af
stað. Það er þörf á uppbyggingu
við skólann – á þessu svæði hefur
orðið mikil fólksfjölgun á síðustu
árum og það er mikilvægt að inn-
viðirnir okkar geti tekið við þeim
sem hér vilja stunda nám – og
skólinn boðið þeim góða aðstöðu.
Nemendaaðstaðan er oft hjartað í
hverjum skóla, ég samgleðst nem-
endum og aðstandendum Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja innilega
með þetta góða skref,“ sagði Lilja
Alfreðsdóttir, mennta- og menn-
ingarmálaráðherra, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu frá
ráðuneyti hennar.
Viðbyggingin sem nú stendur til
að reisa verður um 300 fermetara
að flatarmáli. – Áætlaður stofn-
kostaður er um 123 milljónir kr.
og er kostnaðarhlutdeild ríkisins
60%. Skólinn hefur verið í stöðugri
uppbyggingu frá stofnun árið
1976, en hann var annar fjöl-
brautaskólinn sem byggður var
hér á landi. Nemendur við skólann
nú eru rúmlega 830, á starfs-, bók-
og verknámsbrautum. sbs@mbl.is
Samið um stækkun skóla
Suðurnes Ráðherrar og fulltrúar sveitarfélaga undirrita samkomulag.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja stækkaður 300 fermetrar
Í dag hefst sala Kiwanishreyfing-
arinnar á Íslandi á K-lykilinum við
athöfn á Bessastöðum, þar sem
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Ís-
lands, kaupir fyrsta gripinn. Dag-
ana 3.-5. maí verður mestur kraftur
í söfnuninni sem nú er efnt til í 15.
skipti. Yfirskriftin er Lykill að lífi.
Söfnunarféð hefur ávallt runnið til
styrktar geðverndarmálum. Því
verður nú varið til Pieta-samtak-
anna sem sinna forvörnum gegn
sjálfsvígum og Barna- og unglinga-
geðdeildar Landspítalans. Söfnunin
fer fram með beinni sölu K-lykils en
einnig er óskað eftir samstarfi við
fyrirtæki og félagasamtök.
Kiwanismenn selja
K-lykil næstu daga
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa-
dóttir dómsmálaráðherra hefur
lagt fram frumvarp á Alþingi sem
ætlað er að taka ákvæði um æru-
meiðingar úr almennum hegning-
arlögum og setja þau í sérlög. Verði
frumvarpið samþykkt munu æru-
meiðingar því ekki lengur vera
refsiverður glæpur á Íslandi.
„Með frumvarpinu er lagt til að
sett verði ný stofnlög um ærumeið-
ingar þar sem mælt verði fyrir um
einkaréttarleg úrræði til að bregð-
ast við ærumeiðingum,“ stendur í
greinargerð með frumvarpinu.
Áætlað er að hægt verði að grípa til
miskabóta og bóta fyrir fjártjón eft-
ir atvikum.
Ærumeiðingar úr
hegningarlögum