Morgunblaðið - 29.04.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2019
Hinn 12. nóvember 2018 sendiforsætisráðherra Seðlabank-
anum bréf eftir að bankinn hafði
farið í langa sneypuför gegn Sam-
herja vegna
meintra brota
sem reyndust
ekki hafa átt
sér stað. For-
sætisráðherra
óskaði
greinargerðar
um afstöðu
bankans „eigi síðar en föstudaginn
7. desember nk.“ Sá tímafrestur
leið og það var ekki fyrr en 21.
febrúar sl. sem svar barst.
Hinn 15. mars sl. óskaði for-sætisráðherra svo nánari
skýringa á ákveðnum atriðum,
meðal annars um meinta „upplýs-
ingagjöf starfsmanna Seðlabanka
Íslands til Ríkisútvarpsins um fyr-
irhugaða húsleit hjá Samherja hf.
27. mars 2012“. Þess var óskað að
svar bærist „eigi síðar en 1. apríl
nk.“ Seðlabankinn hunsaði þennan
frest líkt og hinn og svaraði ekki
fyrr en 12. apríl.
Engar skynsamlegar skýringarhafa verið gefnar á því hvers
vegna Seðlabankinn hunsar ítrekað
rúma tímafresti forsætisráðherra.
Og ekki er víst að forsætisráð-herra þyki bætur í því að fá
svör um það að tölvupóstar seðla-
bankastjóra og aðstoðarseðla-
bankastjóra, sem og skjalakerfi
bankans, hafi verið skoðuð og að
þar hafi ekki fundist lekinn til Rúv.
Datt einhverjum í hug að gögn um
lekann lægju fyrir með þeim hætti?
Væri ekki nær að starfsmennbankans greindu frá aðkomu
sinni að lekanum? Eða eiga lands-
menn að trúa því að Rúv. hafi fyrir
tilviljun verið með vélar sínar í
gangi við starfsstöðvar Samherja
einmitt umræddan dag?
Síðbúin furðusvör
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
á heimasíðu Hreyfils:
hreyfill.is
eða í App Store
og Google Play
SÆKTU APPIÐ
Sæktu appið frítt á AppStore
eða Google Play
Hreyfils appið
Pantaðu leigubíl á einfaldan
og þægilegan hátt
Þú pantar bíl1
3 og færð SMS skilaboðað bíllinn sé kominn.
2 fylgist með bílnum í appinu
„Þetta var bara skemmtilegasta til-
finning í heimi í þessum opnunarleik
Pepsi Max-deildarinnar – ég gæti
ekki valið betri tímasetningu á þessu
marki heldur en í fyrsta leik – að
sýna hvað ég get,“ segir Logi Tóm-
asson, knattspyrnumaður hjá Vík-
ingi. Hann vakti talsverða athygli
með fallegu marki sem hann skoraði
í fyrsta leik Pepsi Max-deildarinnar.
Þá setti hann boltann milli fótanna á
einum leikmanni, síðan öðrum og
skaut loks í samskeytin. Margir
stóðu á öndinni eftir markið en það
tryggði Víkingi þó ekki sigur í leikn-
um gegn Val, sem endaði með 3-3
jafntefli.
Logi er ekki einungis upptekinn á
sviði knattspyrnunnar heldur leggur
hann stund á tónsmíði og rapp og
hyggst gefa út lag eftir viku ásamt
tveimur félögum sínum, sem einnig
láta til sín taka á vellinum.
Tónlistin flokkast sem hip-hop og
gefur Logi hefur þegar gefið út tvö
lög undir listamannsnafninu Luigi
sem hafa fengið góðar viðtökur á
tónlistarveitunni Spotify.
„Ég byrjaði í tónlistinni með
Ágústi Karli, besta vini mínum, sem
hefur verið semja tónlist í þrjú ár.
Ég var alltaf uppi í stúdíói að leika
mér og síðan ákvað ég að gefa út tvö
lög,“ sagði Logi. veronika@mbl.is
Logi leikur tveimur skjöldum
Logi Tómasson skoraði fallegt mark
á föstudag Gefur út lag eftir viku
Eggert Jóhannesson
Mark Logi Tómasson vakti athygli
með fallegu marki í leik gegn Val.
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Borgaryfirvöld í Reykjavík leggja
nú drög að matarmarkaði í Laug-
ardalnum sem á að standa yfir í
júlí. Matarmarkaðurinn er ein af
tillögum sem reykvískir kjósendur
samþykktu í hverfiskosningunum
„Hverfið mitt“ árið 2018.
Reykjavíkurborg barst eitt tilboð
um umsjón matarmarkaðarins og
borgaryfirvöld tóku það til frekari
athugunar í síðustu viku. Tilboðið
kom frá Róberti Aroni Magnússyni,
stofnanda og forsvarsmanni
Reykjavík Street Food. Róbert stóð
einnig fyrir BOX-matarmarkaði í
Skeifunni í fyrra sumar og skipu-
leggur einnig Götubitahátíð sem
haldin verður á Miðbakkanum í júlí.
Róbert segir að matarmarkaðurinn
í Laugardal kunni undir hans um-
sjón að verða með svipuðu sniði og
markaðurinn í Skeifunni þótt
áherslan verði ekki að sama skapi á
„götubita“. Áherslan verði á að hafa
matarmarkað með „matarstemn-
ingu“.
Áætlað er að matarmarkaðurinn
verði haldinn fyrstu tvær helgarnar
í júlí og verði í norðurhluta dalsins,
við áhorfendastúkurnar hjá Laug-
ardalsvelli. Samkvæmt forsendum
samningsins sæi Róbert þá um að
nálgast söluaðila sem munu reka
bása á markaðnum. „Eins og þessu
er stillt upp núna verða kannski tíu
söluaðilar,“ segir Róbert. „Þá erum
við að tala um að þeir setji þetta
upp, einhverjir fimm eða sex aðilar
með heitan mat, og svo ætlum við
að hafa þetta opinn markað.“
Kostnaðaráætlun Reykjavíkur
fyrir markaðinn nemur 11.000.000
krónum. Tilboð Róberts til Reykja-
víkur um umsjón matarmarkaðar-
ins nam 9.959.000 krónum.
Stefnt að matar-
markaði í Laugardal
Reykjavíkurborg
skoðar tilboð um um-
sjón matarmarkaðar
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Matur Róbert segir að stefnt verði
að „matarstemningu“ í Laugardal.