Morgunblaðið - 29.04.2019, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2019
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177
hafðu það notalegt
vottun reynsla
ára
ábyrgð
gæði
miðstöðvarofnar
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Aðstaðan í nýja fjósinu er góð. Nú
ætti sú tíð að vera liðin að bændur
séu, eins og oft hefur gerst, hreinlega
útslitnir menn upp úr fimmtugu og
þurfi að bregða búi af þeim sökum.
Vinnan er orðin þægileg og í þessu
húsi fer vel um gripina,“ segir Þór-
arinn Þorfinnsson, bóndi á Spóa-
stöðum í Biskupstungum. Þar standa
Þórarinn og Ingvi bróðir hans að
stórbúi og voru á laugardaginn með
opið hús í nýja fjósinu sem þeir hafa
byggt.
Þurfa meiri kvóta
Alls mættu á svæðið um 800
manns, bændur og búalið af Suður-
landi og auðvitað margir fleiri. Sýndi
fólk búskapnum sem og byggingunni
mikinn áhuga, enda er þetta eitt af
stærri og mest tæknivæddu fjósum
landsins. Athygli vakti meðal annars
gjafakerfi, þar sem hey og fóður rúll-
ar á færibandi til gripa og er þá áður
forritað hvað skuli sett á hvern stað í
fjósinu.
Fjósið var tekið í notkun 22. jan-
úar síðastliðinn og tekur alls um 120
mjólkurkýr, auk þess sem í stíum er
pláss fyrir kálfa, kvígur og annan bú-
pening. Í dag eru 80 kýr í fjósinu og
verður fjölgað eftir því sem auknar
framleiðsluheimildir fást.
„Við erum í dag með um 460 þús-
und lítra kvóta og satt að segja hefur
ekki verið mikið svigrúm til aukn-
ingar,“ segir Þórarinn. „Þróunin er
samt sú að litlu búin eru að detta út
og þau sem áfram eru í rekstri verða
stærri. Við ættum því að geta aukið
við okkur á næstu árum, sem er
nauðsynlegt svo þessi fjárfesting
beri sig.“
Nytin er góð
Jarðvinna vegna byggingar
Spóastaðafjóssins hófst í mars á síð-
asta ári. Þann 12. júní var svo byrjað
að slá upp fyrir sökklum og gólfplötu
– og á þeim grunni var reist mikið
stálgrindarhús frá fyrirtækinu
Landstólpa. Í fjósinu sjálfu eru svo
tölvustýrð gjafakerfi og mjalta-
róbótar, sem kýrnar ganga í eftir því
sem þörfin kallar, tvisvar til fjórum
sinnum á dag.
Er nytin á hverja kú gjarnan í
kringum 20 kíló á dag – og getur með
réttri fóðurgjöf orðið meiri eins og
bændurnir á Spóastöðum stefna að.
Heildarkostnaður
um 200 milljónir króna
Bræðurnir Ingvi og Þórarinn –
með Hildi Maríu Hilmarsdóttur
konu Þórarins – standa að búrekstr-
inum undir merkjum einkahluta-
félagsins Spóastaðir ehf.
„Við erum hér á föðurleifð okkar
og vildum stækka búið. Gamla fjósið
hafði í tímans rás verið stækkað á
alla enda og kanta svo ekki varð
meira gert. Því var ekki annað í stöð-
unni en byggja nýtt og við erum
ánægðir með útkomuna, enda höfð-
um við legið lengi yfir þessu dæmi og
úthugsað hvert atriði. Þar var vinnu-
hagræði aðalatriðið; þó gripum fjölgi
er aðstaðan og tæknin þannig að
vinnan eykst lítið,“ segir Þórarinn
um fjósið nýja – en heildarkostnaður
við framkvæmdir er um 200 milljónir
króna.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Spóastaðafólk Frá vinstri: bræðurnir Ingvi og Þórarinn Þorfinnsson, þá
Hildur María Hilmarsdóttir kona Þórarins og fremst dóttirin Vigdís Fjóla.
Spóastaðafjósið
vekur athygli
Blómstrandi bú í Biskupstungum
Kýr Nú eru um 80 kýr í nýja fjósinu.
Stórhýsi Fjósið nýja er mikil bygging og alls komu um 800 manns að Spóa-
stöðum til að skoða glæsilega aðstöðuna og kynna sér búskapinn á bænum.
„Brunnurinn er meðal elstu minja
sem finnast í þessum bæ, sem ekki á
sér langa sögu. Öllu svona er nauð-
ynlegt að halda til haga,“ segir Sigfús
Kristinsson, byggingameistari á Sel-
fossi. Hann gróf nýlega upp fjögurra
metra djúpan brunn við húsið Árnes
við Bankaveg, æskuheimili sitt, sem
hann á eins og fleiri byggingar við
götuna. Húsið var byggt árið 1932,
þremur árum áður en vatnsveita úr
Ingólfsfjalli kom á Selfoss. Með til-
komu veitunnar var því eðlilega hætt
að nota brunninn, sem faldist í gróðri
og mold. Nýlega mokaði Sigfús hins
vegar frá honum, steypti umgjörð í
kringum, reisti skýli yfir og setti upp
merkingar. Eru þessar menningar-
minjar í elsta hluta Selfossbæjar því
orðnar sýnilegar svo eftirtekt vekur.
„Ég vil halda áfram á þessari
braut,“ segir Sigfús sem óskað hefur
eftir því við bæjaryfirvöld í Árborg að
mega reisa torfbæ í gömlum stíl á lóð-
inni við Árnes. Skipulagsnefnd mun
fjalla um málið. sbs@mbl.is
Sigfús bjargar brunni
Vill næst reisa torfhús í gömlum stíl
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Minjar Sigfús Kristinsson hér við
brunninn sem hann gróf upp.