Morgunblaðið - 29.04.2019, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2019
Suðurlandsbraut 6, 108 Rvk | S. 419 9000 | info@handafl.is | handafl.is
VANTAR ÞIG STARFSFÓLK?
Við útvegum hæfa starfskrafta
í flestar greinar atvinnulífsins
Traust og fagleg starfsmannaveita
sem þjónað hefur íslenskum fyrirtækjum í áraraðir
Veronika S. Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Um þúsund ruslapokar voru fylltir
á stóra plokkdeginum sem var
haldinn í annað skipti í gær, að
sögn Einars Bárðarsonar. Hann er
meðal skipuleggjenda plokkdags-
ins og sagði að mætingin í ár hefði
verið vonum framar.
„Þetta fer örugglega yfir 1.000
poka á suðvesturhorninu,“ sagði
hann. „Þetta fór langt fram úr
væntingum og það spruttu upp
sjálfstæðar einingar út um allt
höfuðborgarsvæðið. Við vorum í
fyrra bara nokkrir tugir Íslend-
inga sem fóru út en þetta voru
hundruð í dag,“ sagði Einar, glað-
ur í bragði með þátttökuna.
Vel viðraði á stóra plokkdeg-
inum í gær, en þá tóku landsmenn
höndum saman og unnu markvisst
að því að gera sinn heimabæ
hreinni og vonandi lausan við rusl
um hríð.
Guðni Th. plokkar á skokki
Guðmundur Ingi Guðbrandsson
umhverfisráðherra setti stóra
plokkdaginn formlega klukkan 10 í
gærmorgun. Guðni Th. Jóhann-
esson, forseti Íslands, tók virkan
þátt í plokkdeginum í heimabæ
sínum, Garðabæ, en hann lagði af
stað frá Vífilsstöðum um tvöleytið í
gær ásamt Elizu Reid forsetafrú
og börnum þeirra.
Guðni sagði að plokkið væri góð
hreyfing en sagði að hann léti ekki
til sín taka dagsdaglega. Plokkið
væri engu að síður gott krydd í til-
veruna þegar hann færi út að
skokka, en Eliza sagði að hann
væri duglegur að tína rusl sem
yrði á vegi hans í skokkinu.
„Það er gaman að gera þetta í
góðum félagsskap í fersku lofti og
þetta er góð fjölskyldusamvera
líka,“ sagði Eliza Reid.
Við hjúkrunarheimilið Vífilsstaði
mættust umhverfismeðvitaðir
Garðbæingar og örkuðu í allar átt-
ir meðfram Reykjanesbrautinni,
sem var helsta viðfangsefni plokk-
dagsins í ár. Ljóst var að bæj-
arbúum er annt um sitt nær-
umhverfi og vilja leggja sitt af
mörkum við að gera umhverfið fal-
legra og hreinna en þó nokkrir
voru mættir til leiks við Vífilsstaði.
Verður haldið aftur að ári
Að minnsta kosti 80 manns í
Kópavogi mættu á rásmörk að
taka til og svipaður fjöldi var í
Hafnarfirði, að sögn Einars. „Það
var mikil keppni á milli þessara
tveggja,“ sagði Einar.
Plokkdagurinn var í fyrsta sinn
haldinn í fyrra með aðeins 10 daga
fyrirvara. Í ár fór hins vegar mán-
uður í að undirbúa daginn. Til
stendur að halda daginn árlega:
„Þannig að ef við undirbúum okkur
í tvo mánuði á næsta ári þá verða
þetta þúsundir poka,“ sagði Einar í
léttum tón.
„Yfir þúsund pokar fylltir“
Stóri plokkdagurinn var haldinn í gær Guðni Th. Jóhannesson tók þátt í
plokkinu ásamt fjölskyldu sinni Töluvert fleiri þátttakendur í ár en í fyrra
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Samvinna Feðgarnir Svavar Hávarðsson og Atli Svavarsson létu til sín taka á Stóra plokkdeginum í gær.
Sveit JE Skjanna varð í gær Íslands-
meistari í brids en úrslitakeppnin fór
fram um helgina.
Upphaflega hófu 40 sveitir keppni
á Íslandsmótinu í byrjun apríl en tólf
þeirra unnu sér rétt til að spila í úr-
slitakeppninni. Eftir að allar sveit-
inar höfðu spilað innbyrðis spiluðu
fjórar efstu sveitirnar áfram um Ís-
landsmeistaratitilinn. Sveit Skjanna
var efst eftir fyrri umferðina og
tryggði sér titilinn með því að vinna
tvo fyrstu leikina í síðari umferðinni.
Í lokaumferðinni tapaði sveitin hins
vegar með miklum mun fyrir sveit
Hótels Hamars, sem endaði í 2. sæti
á mótinu en það breytti ekki röðinni.
Í þriðja sæti varð sveit Wise. Einnig
spilaði sveit Sverris Þórissonar í
lokaúrslitunum.
Sigursveitina skipuðu Sævar Þor-
björnsson, Karl Sigurhjartarson,
Guðmundur Páll Arnarson, Þorlákur
Jónsson, Steinar Jónsson og Júlíus
Sigurjónsson. Í sveit Hótels Hamars
spiluðu Jón Baldursson, Sigurbjörn
Haraldsson, Aðalsteinn Jörgensen,
Bjarni Einarsson, Matthías Þor-
valdsson og Sverrir Ármannsson. Í
sveit Wise spiluðu Hrannar Erlings-
son, Sverrir Kristinsson, Gísli Stein-
grímsson og Gabríel Gíslason.
Ljósmynd/Aðalsteinn Jörgensen
Spilamennska Spilarar í úrslitum Íslandsmótsins í brids um helgina.
Sveit Skjanna Ís-
landsmeistari í brids
Hafði tryggt titilinn fyrir síðasta leik
Hinn tólf ára gamli Atli Svavarsson hefur mjög látið um-
hverfismál til sín taka. Þeir Svavar Hávarðsson hafa
plokkað víða í borginni sl. tvö ár, byrja alltaf á vorin í
Laugarneshverfinu í Reykjavík þar sem fjölskylda hans
býr en svo er farið um önnur svæði, svo sem nágrenni
Elliðaánna. Á síðasta ári fékk Atli ásamt fleirum við-
urkenningu Reykjavíkurborgar fyrir framtak sitt og að
undanförnu hefur honum stundum verið jafnað við hina
sænsku Gretu Thunberg sem hefur 16 ára gömul gjör-
breytt viðhorfum heillar kynslóðar til umhverfismála.
„Í sjónvarpsþætti með Ævari vísindamanni sá ég að jörðin er ógeðsleg
og full af rusli. Spurði því pabba hvort við gætum gert eitthvað í þessu og
við höfum farið víða um að plokka. Mér finnst við öll þurfa að fara í þriðja
gír og stöðva þróunina; tína rusl og menga minna. Við þurfum öll að taka
til og svo mætti hreinsa betur við gámastöðvarar þar sem allt er í rusli.“
Tína rusl og menga minna
PLOKKARARNIR FARI Í ÞRIÐJA GÍRINN
Atli Svavarsson
Arnheiður Sigurðardóttir, Garðbæ-
ingur, segir aðspurð að mikilvægt
sé að rusl fjúki ekki víða og mengi
náttúruna.
„Ég geri þetta alla daga, alltaf
þegar ég fer út að labba þá fer ég
að tína og plokka,“ segir hún og
bætir við að hundurinn hennar,
Emma, sé ávallt með í för og hjálpi
til. Þær plokkuðu allt Urriðaholt
um síðustu helgi og færðu sig nú út
fyrir sitt hverfi og héldu plokkinu
áfram. „Við erum bara að halda
Garðabæ hreinum,“ segir Arnheið-
ur létt í bragði.
Halda Garðabæ
hreinum með plokki
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Plokkað Arnheiður og hundurinn Emma.
Mæðgurnar Harpa Hlín Þórðar-
dóttir og Steinunn Stefánsdóttir
lögðu leið sína að Vífilsstöðum
ásamt frænku sinni, Lydíu Dhour
Friðriksdóttur, að plokka rusl. Þór-
dís segir að þær séu miklar útivist-
arkonur: Við förum sérstaklega
hérna í kringum Vífilsstaði að
labba. Við græðum á þessu í raun-
inni því nú verður allt miklu fal-
legra þegar við förum næst út að
labba,“ segir Harpa og bætir við að
oft komi til tals í göngutúrunum að
tína þurfi rusl á svæðinu. „Síðan er
ekki verra að vera hérna með for-
setanum,“ segir Harpa.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Útivistarkonur Lydía, Harpa og Steinunn.
Njóta göngutúranna
betur eftir plokkið