Morgunblaðið - 29.04.2019, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2019
ESTRO Model 3042
L 164 cm Leður ct. 15 Verð 325.000,-
L 198 cm Leður ct. 15 Verð 355.000,-
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Í fyrirhuguðu hlutafjárútboði Uber
er félagið metið á 80,5 til 91,5 millj-
arða dala eða 44-50 dali á hlut.
Kemur þetta fram í útboðsgögnum
sem skutlmiðlunarfyrirtækið af-
henti á föstudag og er verðmatið
töluvert lægra en þeir 120 millj-
arðar sem ráðgjafar félagsins höfðu
áður talið að gæti verið raunhæfur
verðmiði.
Reuters segir þessa lækkun end-
urspegla hversu illa Lyft, helsta
keppinaut Uber, farnaðist eftir
skráningu á hlutabréfamarkað í
síðasta mánuði. Á föstudag hafði
hlutabréfaverð Lyft lækkað um
20,5% frá því viðskipti með þau
hófust á Nasdaq-markaðinum hinn
29. mars. Er lækkunin rakin til efa-
semda fjárfesta um að rekstur Lyft
geti skilað hagnaði.
Uber hyggst selja 180 milljónir
hluta og afla þannig allt að 9 millj-
arða dala. Þá munu fjárfestar geta
selt 27 milljón hluti fyrir allt að
1,35 milljarða dala.
Sérfræðingar áætla að samanlagt
virði þeirra hlutabréfa sem Uber
mun selja í útboðinu verði í kring-
um 10 milljarðar dala sem þýðir að
hlutafjárútboðið yrði það stærsta
síðan kínverski netverslunarrisinn
Alibaba fór á markað í Bandaríkj-
unum árið 2014. ai@mbl.is
Uber setur
markið
lægra
Efi Hlutabréfaverð Lyft, helsta
keppinautar Uber, hefur lækkað um
rösklega fimmtung frá skráningu.
AFP VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Stjórnendur fyrirtækja og stofnana
gætu lært mikið af starfsemi félaga-
samtaka, en engu að síður virðist
þriðja geiranum, eins og hann er kall-
aður, hafa verið gefinn lítill gaumur
bæði í íslensku atvinnulífi og fræða-
samfélagi.
Þetta segir
Margrét Lúth-
ersdóttir, verk-
efnastjóri og
deildarstjóri hjá
Rauða krossin-
um, en hún lauk
nýlega við áhuga-
verða masters-
rannsókn í við-
skiptafræði þar
sem rekstrarað-
ferðir þriðja geirans voru skoðaðar.
Margrét bendir á að mörkin á milli
félagsamtaka annars vegar og stofn-
ana og fyrirtækja hins vegar geti
stundum verið óljós hér á landi enda
hafi mörg samtök gert þjónustu-
samninga við ríkið og leysi af hendi
verkefni sem í öðrum löndum myndu
heyra undir ríkisstofnanir. „Á þetta
t.d. við um Rauða krossinn, sem hef-
ur gert samning við félagsmálaráðu-
neytið og dómsmálaráðuneytið, og
svo björgunarsveitirnar sem starfa
með almannavörnum og Rauða
krossinum að neyðarvörnum um allt
land.“
Vægi þriðja geirans fer vaxandi, að
mati Margrétar, og nefnir hún nýleg
dæmi af áhrifum samtaka sem beita
sér fyrir réttindum flóttamanna og
innflytjenda hér á landi. „Starfsemi
þriðja geirans er ekki alltaf mjög
sýnileg og vinna þau oft á bak við
tjöldin frekar en að vera í sviðsljós-
inu. Æ fleiri koma þó auga á að í
gegnum frjáls félagasamtök má
koma miklu til leiðar og sést það t.d. á
því að styrkir frá fyrirtækjum eru
farnir að dreifast víðar og rata til
samtaka sem tækla tiltekin vanda-
mál,“ útskýrir Margrét. „Helst vax-
andi vægi félagasamtaka einnig í
hendur við minnkandi kosningaþátt-
töku, minni áhuga á lýðræði og
minnkaða trú almennings á stjórn-
málum. Sér fólk í staðinn frjáls fé-
lagasamtök sem leið til að berjast
fyrir þeim málefnum sem skipta það
mestu.“
Sameiginlegur metnaður
Það sem ætti að gera stjórnendur í
opinbera og einkageiranum alveg
sérstaklega áhugasama um þriðja
geirann er að félagasamtök takast á
við mjög krefjandi verkefni en hafa
oftast úr litlu fjármagni að spila. „Það
einkennir stjórnun félagasamtaka að
mikil áskorun getur verið að finna
rétta jafnvægið í notkun auðlinda,
hvort sem það er mannauður eða
fjármagn. Stjórnendurnir geta ekki
notað há laun eða bónusgreiðslur til
að hvetja starfsfólk sitt áfram heldur
þurfa að beita öðrum leiðum.“
Að sögn Margrétar hafa rannsókn-
ir sýnt að lykilinn að árangri félaga-
samtaka sé að starfsfólk og sjálfboða-
liðar hafi brennandi áhuga á því sem
samtökin vilja koma til leiðar. „Til að
stuðla að því að bæði launaðir starfs-
menn og sjálfboðaliðar leysi vinnu
sína sem best af hendi þarf stjórn-
andinn m.a. að vera lunkinn við að
raða fólki saman í öflug teymi, gæta
þess að allir sjái árangurinn af vinnu-
framlagi sínu og að hópurinn hafi
sama metnaðinn fyrir velgengni
skipulagsheildarinnar – það er þá
sem töfarnir gerast.“
Margrét viðurkennir að að þessu
leyti sé starf stjórnanda félagasam-
taka auðveldara, því alla jafna vinna
samtökin að göfugu markmiði sem
starfsfólkið getur fylkt sér í kringum.
„Hjá stofnun eða fyrirtæki gæti
stjórnandinn hins vegar þurft að
leggja sig sérstaklega fram við það
að sýna starfsfólkinu það góða sem
störf þess koma til leiðar og þannig
laða fram ástríðuna.“
Margrét segir þriðja geirann líka
sýna hve áríðandi það er að ráða til
starfa fólk sem hefur brennandi
áhuga á því sem fyrirtæki eða stofn-
un fæst við. „Þetta sjáum við þegar
vera að gerast að einhverju marki
þegar auglýst er eftir fólki í lausar
stöður í hugbúnaðargeiranum, þar
sem áherslan á tiltekna menntun í
hugbúnaðargerð er farin að víkja fyr-
ir áherslu á mikinn áhuga.“
Þurfa að gera mikið úr litlu
Morgunblaðið/Hari
Metnaður Frá stórslysaæfingu. Fjölbreytt starf er unnið af félagasamtökum og kallar á mikla stjórnunarhæfileika.
Það reynir mjög á færni stjórnenda í þriðja geiranum Vægi félagasamtaka
fer vaxandi en mörg þeirra vinna að góðum málefnum á bak við tjöldin
Margrét
Lúthersdóttir
Raðfrumkvöðullinn Elon Musk, for-
stjóri rafbílaframleiðandans Tesla,
hefur komist að samkomulagi við
bandaríska fjármálaeftirlitið, SEC,
um hvernig hann fær að nota netmið-
ilinn Twitter. Reuters greinir frá
þessu og segir að Musk muni eftir-
leiðis láta lögfræðinga Tesla sam-
þykkja allar færslur sem snúa að fjár-
málum og rekstri fyrirtækisins, áður
en þær birtast á Twitter. Hefur sam-
komulag Musk við stjórnvöld verið
lagt fyrir dómstól til samþykktar.
Átti Musk á hættu að verða dæmd-
ur fyrir vanvirðingu við dómstola (e.
contempt of court) fyrir tístvenjur
sínar en samkvæmt samkomulagi
sem hann gerði við SEC vegna eldra
máls var honum skylt að láta fjárfesta
Tesla samþykkja
allar færslur á
Twitter sem
snertu mikilvæg
mál í starfsemi fé-
lagsins. Í febrúar
sendi Musk frá
sér tíst um fram-
leiðslutölur Tesla,
sem SEC taldi
brjóta í bága við
gildandi sam-
komulag og vísaði brotinu til dómara
á Manhattan. Að sögn Reuters er
nýja samkomulagið skýrara en það
fyrra, og sundurliðar hvers konar
upplýsingar þurfa að fara í gegnum
lögfræðinga Tesla áður en Musk birt-
ir þær á Twitter. ai@mbl.is
Musk semur um tístið
Elon Musk
Áætlað er að tekjur af miðasölu á
frumsýningarviku hasarmyndar-
innar The Avengers: Endgame hafi
numið 1,2 milljörðum dala á heims-
vísu. Er kvikmyndin sú fyrsta sem
nær að hala inn meira en milljarði
dala á fyrstu viku sýninga en fyrra
metið, 640 milljónir dala, átti síðasta
myndin í Avengers-seríunni, Aven-
gers: Infinity War.
Segir CNN að á sumum stöðum
hafi aðsóknin verið svo mikil að kvik-
myndahús þurftu að grípa til þess
ráðs að hafa Endgame í sýningum
allan sólarhringinn. ai@mbl.is
Avengers slær öll met
Stemning Aðdáendur klæddir eins
og Avengers-hetjur á frumsýning-
arviðburði í Los Angeles.
AFP