Morgunblaðið - 29.04.2019, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2019
HRINGDU Í BÓTARÉTT Í SÍMA 520 5100 OG ÞÚ FÆRÐ ÞITT.
Slys valda heilsutjóni og þjáningum. En það er ekki síður sárt þegar starfsorkan
skerðist og áætlanir um framtíðina bregðast. Því fylgir óvissa og áhyggjur.
Ef þú hefur orðið fyrir slysi þá skaltu hafa samband við Bótarétt sem fyrst.
Það kostar ekkert að kanna málið. Við metum stöðu þína og skoðum síðan málin
ofan í kjölinn. Þú getur látið þér batna á meðan við sækjum rétt þinn.
ER BROTIÐ Á ÞÉR?
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
B
O
T
70
22
7
08
/1
4
botarettur.is
Fellibylurinn Kenneth lagði íbúðabyggð í Ma-
comia-héraðinu í Mósambík í rúst svo sem hér
má sjá. Í gær, sunnudag, jókst vandi íbúa í norð-
urhéruðum landsins er gríðarleg úrkoma olli
flóðum. Heilsu hundraða þúsunda manna er sagt
ógnað. Flóðvatnið náði fólki víða í mittishæð. Út-
lit var fyrir áframhaldandi úrkomu næstu daga.
Fátt stóðst kraft straumvatnsins og því er búist
við mikilli eyðileggingu í flóðunum. agas@mbl.is
AFP
Eyðilegging og hörmungar
Verkamannaflokkurinn breski ætlar
að reyna í þessari viku að knýja fram
atkvæðagreiðslu um yfirlýsingu um
neyðarástand í andrúmsloftinu um
gjörvallt Bretland.
Flokkurinn ætlar að krefjast þess
í þinginu á miðvikudag að breska
þjóðin hefji tafarlausar aðgerðir til
að minnka loftmengun þannig að ár-
ið 2030 verði hún aðeins sem svarar
45% af menguninni 2010. Áfram
verði svo haldið á sömu braut og
menguninni komið niður í ekki neitt
árið 2050, að sögn breska vikublaðs-
ins Observer.
Leiðtogi Verkamannaflokksins,
Jeremy Corbyn, hefur látið svo um
mælt að nýleg mótmæli fólks sem
lætur sig loftmengun varða sé
„meiriháttar og nauðsynleg upp-
vakning“. Færi svo að þingið styddi
frumvarpstillögu flokksins yrði það
fyrsta þjóðþingið í veröldinni til að
lýsa yfir neyðarástandi í loftslags-
málum. Hann bætti við að slíkt
myndi síðan leiða til „öldu aðgerða af
hálfu ríkisstjórna um heim allan“.
Útspil Verkamannaflokksins er
viðbrögð við trúnaðargögnum sem
blaðið hafði séð og leiddu í ljós að
breska stjórnin hafði í október sl. að-
eins varið 2,82 milljónum sterlings-
punda af 100 milljónum punda sem
eyrnamerktar voru aðgerðum í
vegakerfinu gegn loftmengun. Nýta
átti féð að fullu fyrir árslok 2020.
Stofnunin segir að mun meira sé
komið í framkvæmd nú frá því í
haust og ætlunin sé að fjárfestingar í
aðgerðum á vegunum, samkvæmt
áætlun yfirvalda, verði komnar í 75
milljónir punda á næsta ári. „Frá því
á árinu 2015 höfum við unnið að
nauðsynlegum rannsóknum til að
átta okkur á því hvaða ráðstafanir
gætu reynst þýðingarmiklar og skil-
virkar við að bæta loftgæði
Tillaga Verkamannaflokksins fel-
ur í sér kröfu um ný viðmið varðandi
sjálfbærni og kolefnasnauða orku-
vinnslu; hæfilegar fjárveitingar til
umhverfisverndar, viðsnúning í
hnignun dýrategunda og áætlanir
um úrgangslaust hagkerfi.
Hin áhrifamikla unga sænska bar-
áttukona Greta Thunberg hefur lýst
yfir stuðningi við framangreind
áform Verkamannaflokksins, en hún
heimsótti breska þingið í fyrri viku.
Skotar munu bregðast við
Fyrsti ráðherra Skotlands, Nicola
Sturgeon, lýsti yfir loftslagsneyð í
ræðu á þingi Skoska þjóðarflokksins
(SNP) í gær. Sagði hún Skota myndu
bregðast við og takast á við neyðina
af ábyrgð. „Fyrir nokkrum vikum
hitti ég unga baráttumenn fyrir
betra andrúmslofti. Þeir höfðu farið í
verkfall í skólum sínum til að vekja
fólk til vitundarvakningar um mál-
stað þeirra. Þeir vilja að ríkisstjórnir
um heim allan lýsi yfir neyðar-
ástandi í lofthjúpnum. Þeir sögðu
það sem vísindin segja okkur. Og
þau hafa rétt fyrir sér. Því lýsi ég,
sem fyrsti ráðherra Skotlands, yfir
neyðarástandi í loftslagsmálum.
Skotar munu rísa undir ábyrgð og
takast á við ástandið.“ agas@mbl.is
Þingið lýsi yfir loftslagsneyð
Fyrsti ráðherra Skotlands, Nicola Sturgeon, lýsti yfir loftslagsneyð í landinu í gær Á miðvikudag
verður reynt að fá breska þingið til samsvarandi ákvörðunar Myndi leiða til „öldu aðgerða“ víðar
AFP
Í ræðustól Nicola Sturgeon lýsti yfir neyðarástandi í loftslagsmálum.
Volodimír Selenskí
Úkraínuforseti
sagði að Vladímír
Pútín færi betur að
tala ekki til Úkra-
ínumanna í hót-
unum. Hæddist Sel-
enski að tilboði
Rússa um að gefa
þeim Úkraínu-
mönnum sem vildu
rússneskt vegabréf og sagði það
varða fangelsi að taka við slíkum
skilríkjum. Í fésbókarfærslu sagðist
hann í staðinn myndu veita „þjáð-
um Rússum“ ríkisborgararétt í
Úkraínu.
Pútín undirritaði forseta-
tilskipun í vikunni um vegabréf
handa úkraínskum aðskilnaðar-
sinnum í austurhluta landsins.
Selenskí hirtir Pútín
Volodimír
Selenskí
SPENNA Í SAMSKIPTUM
Íbúar í nágrenni Frúarkirkjunnar í
París hafa verið varaðir við blý-
mengun og hvattir til að þrífa híbýli
sín sérstaklega af því tilefni. Lög-
reglan lagði að íbúunum að strjúka
borð, bekki, gólf, skápa og annað yf-
irborð þar sem blýmengað ryk frá
kirkjubrunanum 15. apríl hefur sest.
Engar tilkynningar hafa borist
um blýeitrun eftir brunann. Segir
lögregla að blýmengun sem fundist
hefur við Notre Dame sé afar stað-
bundin og takmörkuð en allur sé
varinn góður. agas@mbl.is
Varað við blýmengun
PARÍS