Morgunblaðið - 29.04.2019, Síða 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2019
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Bókhald
Bókhald
Bókari með reynslu úr banka-
geiranum og vinnu á bókhalds-
stofu, getur tekið að sér bók-
halds-, launa- og VSK vinnslur
fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.
Uppl. í síma 852-3536.
Ýmislegt
Bátar
Fundir/Mannfagnaðir
Ísfélags Þorlákshafnar ehf.
kt. 430285-0179, Hafnarskeiði 12, 815 Þorlákshöfn, verður
haldinn þriðjudaginn 14. maí 2019 kl. 11:00 á kaffistofu
félagsins.
Dagskrá
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag félagsins og rekstri þess á
liðnu starfsári.
2. Staðfesting ársreiknings fyrir síðastliðið rekstrarár.
3. Kosning stjórnar félagsins.
4. Kosning endurskoðanda félagsins.
5. Ákvörðum um hvernig fara skal með hagnað eða tap og um
arð og framlög í varasjóð.
6. Ákvörðun um greiðslur til stjórnarmanna og endurskoðenda
fyrir störf þeirra á starfsárinu.
7. Heimild til stjórnar um kaup á eigin hlutum.
8. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem
löglega eru upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur, ársreikningur, skýrsla stjórnar
og skýrsla endurskoðanda verða hluthöfum til sýnis í síðasta
lagi sjö dögum fyrir aðalfund á skrifstofu félagsins. Afhending
fundargagna fer fram að ósk skráðra hluthafa. Vilji hluthafi
koma dagskrárefni til umfjöllunar á aðalfundi skal tilkynna
stjórn félagsins skriflega um tillöguna eigi síðar en sjö dögum
fyrir aðalfund. Framboð til stjórnar skal tilkynna skriflega eigi
síðar en fimm dögum fyrir dagsetningu aðalfundar. Upplýs-
ingar um frambjóðendur verða aðgengilegar til skoðunar á
skrifstofu félagsins tveimur dögum fyrir aðalfund.
Þorlákshöfn, 29. apríl 2019
Stjórn Ísfélags Þorlákshafnar hf.
Aðalfundur
Lindakirkja
Aðalsafnaðarfundur Lindasóknar
verður haldinn í Lindakirkju, Kópavogi,
þriðjudaginn 7. maí nk. kl. 17:00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Sóknarnefnd Lindakirkju
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Opin smíðastofa kl. 9-16. Leikfimi með Maríu kl. 9 -9.45.
Handavinna með leiðbeinanda kl. 12.30-16. Félagsvist með vinning-
um kl. 13. Myndlist með Elsu kl. 16-19. Opið fyrir innipútt. Hádegis-
matur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni.
Allir velkomnir. S. 535-2700.
Boðinn Félagsvist kl. 13. Vatnsleikfimi kl. 14.30. Spjallhópur kl. 15.
Dalbraut 18-20 Brids kl. 13, félagsvist kl. 13.30.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffispjall og blöðin við hring-
borðið kl. 8.50. Opin listasmiðja kl. 9-12. Byrjendanámskeið í línu-
dansi kl. 10. Hádegismatur kl. 11.30. Félagsvist kl.13. Handavinnuhorn-
ið kl. 13-15. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Kóræfing kl. 19.30-21.45. Hug-
myndabankinn opinn kl. 9-16. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari
upplýsingar í síma 411-2790.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Leirmótun kl. 8.30-12.30, Núvitund kl.
10.30-11.30, Handaband kl. 13-15.30, fjráls spilamennska kl. 13-16.30,
Bókabíllinn á svæðinu kl. 13.10-13.30, Söngstund við píanóið kl.
13.30-14.15. Kaffisala frá kl. 14.30-15.30. Verið velkomin á Vitatorg,
Lindargötu 59, síminn er 411-9450.
Furugerði 1 Bókmenntahópur kl. 10, leikfimi kl. 11, hádegismatur kl.
11.30-12.30, ganga kl. 13, botsía kl. 14, kaffisala kl. 14.30-15.30. Annan
hvern mánudag sirka: Helgistund í staðinn fyrir botsía. Annan hvern
mánudag: Opin fjöliðja með leiðbeinanda / opin fjöliðja frá kl. 10-16.
Garðabær Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.30 /8.15 /15. Kvennaleikfimi
Sjálandi kl. 9.30. Liðstyrkur Sjálandi kl. 10.15. Kvennaleikfimi Ásgarði
kl. 11.15. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Stólajóga kl. 11. Brids í
Jónshúsi kl. 13. Zumba í Kirkjuhvoli kl. 16.15.
Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofan kl. 8.30-16. Útskurður með
leiðbeinanda kl. 9-16. Leikfimi Maríu kl. 10-10.45. Leikfimi Helgu Ben
kl. 11-11.30. Kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl.
10.50 jóga, kl. 13.15 kanasta.
Gullsmári Postulínshópur kl. 9, jóga kl. 9.30, handavinna kl. 13, jóga
kl. 17, félagsvist kl. 20.
Hraunsel Kl. 9 myndmennt, kl. 11 Gaflarakórinn, kl. 13 félagsvist
Hjallabraut, kl. 10-16 Fjölstofan.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, jóga með Carynu kl. 9,
útvarpsleikfimi kl. 9.45, jóga með Carynu kl. 10 og samverustund kl.
10.30. Hádegismatur er kl. 11.30, tálgun kl. 13, frjáls spilamennska kl.
13, liðleiki á stólum og slökun með Önnu kl. 13.30, kaffi kl. 14.30.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga með Ingibjörgu kl. 9 í Borgum.
Gönguhópar kl. 10 frá Borgum og Grafarvogskirkju, dans í Borgum kl.
11 og prjónað til góðs kl. 13 í dag í Borgum. Félagsvist kl. 13 í Borgum
og tréútskurður með Gylfa á Korpúlfsstöðum í dag kl. 13. Minnum á
sölu og handverksýningu Korpúlfa laugardaginn 4. maí e.h. í Borgum.
Seltjarnarnes Gler og bræðsla á neðri hæð Félagsheimilisins kl. 9
og 13. Leir Skólabraut kl. 9. Billjard Selinu kl. 10. Krossgátur og kaffi í
króknum kl. 10.30. Jóga salnum Skólabraut kl. 11. Handavinna Skóla-
braut kl. 13. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Spiluð er félagsvist
sem byrjar kl. 13.15. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30–15.30.
Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Smá- og raðauglýsingar
Vantar þig
pípara?
FINNA.is
✝ Gunnar fædd-ist í Reykjavík
27. ágúst 1934.
Hann lést 10. apríl
2019.
Foreldar hans
hétu Marta Þor-
geirsdóttir hjúkr-
unarkona frá Ak-
ureyri og Freidar
Johansen sjómaður
og kokkur frá Nor-
egi. Foreldrar
Gunnars skildu þegar hann var
fimm ára. Gunnar átti einn al-
bróður sem hét Hans.
Hann lærði flugvirkjun en
starfaði lengst af sem bílstjóri.
Hann er nú látinn. Gunnar og
Hans voru nánir
bræður og héldu
alltaf sambandi
meðan báðir lifðu.
Gunnar á nokkur
hálfsystkini föð-
urmegin, sem búa í
Noregi, Danmörku
og einnig hér á
landi. Móðir Gunn-
ars giftist aftur og
eignaðist tvö börn,
Erlu og Svavar, en
þau eru bæði látin. Viktoría
Skúladóttir er eftirlifandi sam-
býliskona Gunnars.
Útför Gunnars fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag, 29.
apríl 2019, klukkan 13.
Ég kynntist nafna mínum
Gunnari Johansen þegar ég
sjálfur var varla orðinn fullorð-
inn. Ekki voru liðin mörg ár síð-
an pabbi okkar bræðra hafði fall-
ið frá. Við vissum að missirinn
hafði ekki verið auðveldur fyrir
Viktoríu móður okkar, enda var
hún aðeins 53 ára gömul. Gunnar
átti eftir að reynast henni góður
og traustur maður.
Með Gunnari upplifði hún stór
ævintýri, að flytja til Noregs og
Danmerkur um árabil og ferðast
með honum á framandi staði.
Ferðalögin voru þeirra stóra
ástríða í mörg ár en auk þess
nutu þau þess að bjóða fjölskyld-
unni í mat á Frakkastígnum þeg-
ar Gunnar var enn við góða
heilsu. Þar áttu þau mikil sæluár
og þangað var alltaf gott að
koma.
Það hrúgast yfir mann marg-
ar skemmtilegar minningar frá
samverunni við nafna og sér-
staklega hvað hann var barngóð-
ur og gekk barnabörnum
mömmu í afa stað. Fyrir það á
hann skilið endalaust þakklæti
frá okkur bræðrum.
Það læðist að manni örlítið
samviskubit að hafa stundum
strítt mömmu með því að þykj-
ast vera nafni minn í símanum
þegar þau voru nýfarin að hitt-
ast, en ég reyndist vera lunkinn
við að ná norska hreimnum hans
í síma. Svo vel tókst mér til að
mér tókst alltaf að plata mömmu
en það hefur stundum verið sagt
að ég sé dálítið stríðinn. Það er
léttir að mamma skuli geta
minnst þessa með bros á vor og
sjálfsagt hefur hún bara haft
gaman af uppátækinu svona þeg-
ar langt er um liðið, fyrst henni
tókst ekki að venja mig af stríðn-
inni.
Gunnar varð fyrir heilsutjóni
fyrir um 16 árum og óhætt að
segja að hann hefur ekki verið
samur maður síðan. Síðustu árin
hrakaði heilsunni mjög og í raun
er viðskilnaðurinn líkn í þessu
tilfelli eins og stundum er. Hann
virtist þó fylgjast betur með því
sem í kringum hann gerðist en
þátttaka hans í daglegum um-
ræðum gaf tilefni til að halda.
Því er erfitt er að gera sér í hug-
arlund hvernig líf Gunnars hefur
í reynd verið síðustu árin.
En eitt er víst að hann var
maður með hjartað á réttum
stað og það breyttist ekkert á
síðustu árum. T.a.m. hélt fjöl-
skyldan honum afmælisveislu á
áttræðisafmælinu fyrir nokkrum
árum og var sérlega ánægjulegt
að sjá gleðina í andliti hans við
það tækifæri.
Það er full ástæða til að þakka
Gunnari fyrir að hafa veitt
mömmu svo ákaflega góð ár eftir
að pabbi fór frá okkur. Óhætt er
að segja að líf mömmu hefði orð-
ið annað ef þessara dýrmætu
kynna hefði ekki notið við.
Ég bið almættið um að vaka
yfir nafna mínum og þakka hon-
um samfylgdina og allt það góða
sem hann gerði fyrir mömmu.
Hvíl í friði, elsku Gunnar.
Gunnar Guðbjörnsson.
Mig langar að minnast í örfá-
um orðum fóstra míns Gunnars
B. Johansen múrarameistara.
Það var fyrir um 33 árum að
Gunnar kom inn í fjölskyldu okk-
ar. Mamma, Viktoría Skúladótt-
ir, og Gunnar höfðu kynnst á
gömlu dönsunum og þótti móður
minni mikið til Gunnars koma,
bæði hversu myndarlegur hann
var og mikill heimsmaður. Okk-
ur bræðrum fannst skemmtilegt
að fylgjast með móður okkar, þá
orðinni 57 ára, verða jafn ást-
fangin og hún var. Upp úr þessu
óx gagnkvæm ást, virðing og
kærleikur, sem fór ekki framhjá
neinum. Gunnar var jafnan kall-
aður „Norðmaðurinn“ í fjöl-
skyldu okkar og við bræður og
tengdadætur höfðum gaman af
syngjandi íslenskunni sem hann
talaði svo skemmtilega. Því mið-
ur hvarf þetta eftir að hann kom
heim til Íslands.
Fyrir móður mína varð úr
þessum kynnum af Gunnari heil-
mikið ævintýri því hún flutti til
Noregs, nánar tiltekið í lítið hús í
jaðri þorpsins Tomter í nágrenni
Osló. Móðir mín tók ásamt
Gunnari til við ýmsar fram-
kvæmdir í húsinu og varð það á
nokkrum mánuðum hið vistleg-
asta. Hvar sem þau Gunnar og
mamma bjuggu sköpuðu þau
saman hlýlegt umhverfi enda
nauðsynlegt þar sem þau voru
bæði mjög heimakær. Minning-
arnar eru fallegar, hvort sem
það var í Tomter, Moss, Esbjerg
eða í Reykjavík. Alls staðar var
fallegt heimili, góður og kær-
leiksríkur andi og frábær matur
sem gladdi okkur bræðurna auð-
vitað alveg sérstaklega.
Á þessum tíma var ég við nám
í Austur-Berlín en að því loknu
tók við nám í Sviss og vinna í
Kiel, Trier, Bayreuth og Ham-
borg í sameinuðu Þýskalandi.
Þær voru óteljandi heimsóknir
mömmu og fóstra til okkar og
einnig heimsóknir okkar til Nor-
egs og Danmerkur. Á þessum
tíma kynntust börnin mín fóstra
mínum og ömmu. Gunnar var
ákaflega barnelskur maður og
segja má að barnabörnin hafi
eiginlega ættleitt hann sem afa
sinn og hann barnabörnin sem
afabörn sín. Þessi kærleikur
barnabarnanna og afa þeirra
stóð í rúm 30 ár og stendur enn.
Ævintýraþrána og ferðabakt-
eríuna áttu mamma og fóstri
minn Gunnar sameiginlega.
Gunnar var menntaður múrara-
meistari og með stýrimannapróf,
en á síðari helmingi starfsævi
sinnar var hann atvinnubílstjóri.
Hann ók um allan Noreg og varð
ég þeirrar gæfu aðnjótandi að fá
að ferðast með honum um Noreg
þveran og endilangan þar sem
hann útskýrði fyrir mér það sem
fyrir augu bar. Kunnátta hans á
landi og þjóð var mikil, enda var
hann hálfur Norðmaður og hafði
búið í Noregi stóran hluta ævi
sinnar eða um 30 ár. Gunnar og
móðir mín ferðuðust um Noreg
og alla Evrópu á stórri vörubif-
reið hans. Síðar ók Gunnar eins
og herforingi um stóran hluta
Taílands þar sem þau hrifust
mjög af landi og þjóð. Síðar ferð-
uðust þau í fríum sínum á bíla-
leigubíl, húsbíl og með hjólhýsi
um Evrópu og Norður-Ameríku,
meðal annars með Steina og
Ingu, systur mömmu.
Við bræðurnir, tengdadætur
og barnabörn þökkum Gunnari
fyrir að hafa verið á gömlu döns-
unum fyrir rúmum þrjátíu árum
því að öðrum kosti hefðum við
ekki fengið að kynnast þessum
yndislega og hjartagóða manni.
Guð blessi minningu Gunnars B.
Johansen.
Guðbjörn Guðbjörnsson.
Gunnar Johansen
Í Vopnfirðingasögu er lýst
fornum köppum sem riðu um
héruð og mæltu spaklega. Þær
má spegla í glaðbeittum sagna-
mönnum eins og Óla Valgeirs
sem látinn er um aldur fram líkt
og sumar söguhetjurnar sem
hann kunni að segja frá. Ég
kynntist Óla gegnum fornsög-
urnar því að leiðir okkar lágu
Ólafur Björgvin
Valgeirsson
✝ Ólafur BjörgvinValgeirsson
fæddist 20. janúar
1955 á Akureyri.
Hann andaðist á
heimili sínu 6. apríl
2019.
Útför Ólafs
Björgvins fer fram
frá Vopnafjarð-
arkirkju í dag, 16.
apríl 2019, og hefst
athöfnin klukkan 13.
saman í Samtökum
í söguferðaþjón-
ustu. Á þeim vett-
vangi var Óli
fulltrúi Vopnfirð-
ingasögu, sat um
skeið í stjórn sam-
takanna og var
virkur að sækja
fundi, ráðstefnur
og fræðsluferðir. Á
sama tíma lagði
hann stund á ferða-
málafræðin við Hólaskóla og
hafði því margt gott til málanna
að leggja, úr fræðunum en ekki
síður frá eigin brjósti. Þau eru
nokkur ferðalögin okkar Aust-
firðinganna kringum þetta sögu-
lega samstarf sem koma upp í
hugann. Eftirminnilegust er góð
ferð sem félagar í samtökunum
fóru til eyjunnar Manar í Írlands-
hafi örfáum dögum eftir banka-
hrunið í október 2008. Við stjórn-
armenn þurftum að fara með
drjúga sjóði skotsilfurs í evrum
frá Íslandi og freista þess að fá
þeim skipt í pund þegar á áfanga-
stað var komið enda öll greiðslu-
kort ónothæf. Þá var gott að hafa
kappa eins og Óla sér við hlið.
Innilegur hlátur hans og bein-
skeyttar athugasemdir endur-
óma í minningarleiftrum frá þeim
fornu víkingaslóðum. Það var
skarð fyrir skildi þegar Óli hætti
að fóstra Vopnfirðingasögu á
vettvangi samtakanna en vinátta
hans við félagana hélst. Okkar
leiðir lágu saman oft eftir það og
alltaf var Óli boðinn og búinn að
veita aðstoð sína þegar eftir var
leitað enda virkur í félagsstörfum
og hjálpfús.
Góður drengur er genginn en
orðstír deyr aldrei. Persónulega
kveð ég kappann með þessum fá-
brotnu orðum og þakka góð
kynni. Fyrir hönd okkar sem
störfuðum með Óla í Samtökum
um söguferðaþjónustu færi ég
fjölskyldunni innilegar samúðar-
kveðjur.
Skúli Björn Gunnarsson.