Morgunblaðið - 29.04.2019, Page 22
22 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2019
60 ára Ingveldur
fæddist á Siglufirði,
ólst upp í Hafnarfirði
og býr á Seltjarnarnesi.
Hún er lögfræðingur að
mennt og er lands-
réttardómari.
Maki: Ársæll Friðriks-
son, f. 1953, íslenskukennari í Fjölbrauta-
skólanum við Ármúla.
Börn: Friðrik, f. 1982, og Eiríkur, f. 1992.
Barnabörn: Benedikt, f. 2011, Inga Þóra,
f. 2015, og Hera , f. 2018.
Foreldrar: Einar Ingimundarson, f. 1917,
d. 1996, alþingismaður og síðast sýslu-
maður og bæjarfógeti í Hafnarfirði, og
Erla Axelsdóttir, f. 1924, d. 1985, hús-
móðir og skrifstofumaður.
Ingveldur
Einarsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Annríkið verður mikið næstu sex
vikurnar. Farðu eftir hugboði þínu varð-
andi vinnuna. Allt hefur sinn tíma.
20. apríl - 20. maí
Naut Þetta ætti að verða góður dagur.
Ekki vera píslarvottur, þú getur ekki hjálp-
að öðrum nema þú hjálpir sjálfum/sjálfri
þér fyrst.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú hefur báða fæturna á jörðinni
og vilt framkvæma hlutina að vel hugsuðu
máli. Gættu þess vel, sem þú vilt ekki að
aðrir komist í.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Reyndu ekki að byrgja hlutina inni,
heldur ræddu málin við þann/þá sem þú
treystir. Þér hættir til að ofhugsa hlutina,
reyndu að slaka á.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Álit annarra á gjörðum þínum skiptir
engu máli því þú veist að þú ert að gera
rétt. Reyndu að halda dampi þótt það
reyni á þolrifin.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Litlu kraftaverkin halda áfram að
gerast. Hugsaðu þig tvisvar um áður en þú
tekur ákvarðanir sem kunna að varða fjár-
málin.
23. sept. - 22. okt.
Vog Hafðu í huga að þú getur ekki byggt
sjálfsmynd þína á skoðunum annarra,
sama hversu mikla virðingu þú berð fyrir
þeim. Litlu hlutirnir gleðja oft mest, bros,
hrós eða klapp á bakið.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er mannlegt eðli að leita
að göllum hjá öðrum til að líða betur með
sjálfan sig. Ekki draga lappirnar þegar öðr-
um liggur á.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Reyndu að sýna umburð-
arlyndi þótt einhver komi illa fram við þig,
þó ekki um of. Allur er varinn góður þegar
gylliboð detta inn um lúguna.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þér er gefið að taka eftir hlut-
um sem fara fram hjá öðrum. Þú svífur um
á bleiku skýi og getur ekki hugsað þér að
koma niður af því.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er hætt við að áhyggjur af
fjármálunum og ábyrgð þinni gagnvart
öðrum hellist yfir þig í dag. Njóttu sam-
vista við gott fólk.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Frestaðu því ekki til morguns sem
þú getur klárað í dag. Láttu ekki telja þér
hughvarf, heldur haltu þínu striki af festu.
inga. „Við hjónin höfum ferðast
töluvert um landið á húsbílum sem
ég hef gert upp. En úr slíkum störf-
um fór fljótt að draga og sneri ég
mér nær eingöngu að uppstoppun
dýra og fugla. Það áhugamál mitt
átti í fyrstu að vera til skemmtunar
ey og Grímsey á Steingrímsfirði.
Hjónin fluttu til Akureyrar 2008
þar sem Kristján stundaði bíla- og
vélaviðgerðir sem og smíðar hvers-
konar, var þá búinn að innrétta
marga húsbíla, bíla af eldri gerð
sem höfðu verið hafðir til fólksflutn-
K
ristján Stefánsson
fæddist 29. apríl 1944 í
Gilhaga í Neðribyggð
í Skagafirði. „Ég ólst
upp við hin algengu
sveitastörf, en bústofninn var þá
sauðfé og hross, sem og kýr til
heimilisnota, en mjólkursala hófst
ekki fyrr en ég var fullvaxinn.
Skólaganga mín hófst er ég var
tíu ára, kennsla var þá hafin í hálf-
byggðum Steinsstaðaskóla. Ég átti
þá strax auðvelt með nám og var
færður upp um deild. Fulln-
aðarprófi lauk ég aðeins 12 ára frá
Steinsstaðaskóla vorið 1957.“
Haustið 1965 fór Kristján til náms í
Bændaskólann á Hvanneyri og tók
meðfram því minnapróf bifreið-
arstjóra 1966. Hann lauk búfræði-
prófi 1967 með 1. einkunn 8,92, sem
var hæsta einkunn í skólanum það
vorið. Kristján hlaut vinnuvélarétt-
indi 1970, fyrir jarðýtur, drátt-
arvélar og minni jarðvinnslutæki,
lauk prófi frá Iðnskólanum á Ak-
ureyri 1973 og sveinsprófi í rafsuðu
1974. Meirapróf bifreiðarstjóra og
rútupróf 1973, vélstjórapróf 1. stigs
frá Verkmenntaskólanum á Sauð-
árkróki vorið 2008, og skip-
stjóraréttindi smábáta með farþega
sumarið 2008.
Kristján hóf að stunda rjúpna-
veiðar fyrir fermingu og fór síðan í
grenjavinnslu og stundaði hana í
rúmlega 20 ár. Sumarið 1967 réð
hann sig á jarðýtu hjá Ræktunar-
sambandi Austur-Héraðs og vet-
urinn eftir Hvanneyrardvölina
kenndi hann almenn fög við ung-
lingadeild Steinsstaðaskóla. „Síðar
eftir að ég var fluttur í Varmahlíð
kenndi ég aftur og nú handavinnu
tvo vetur við Steinsstaðaskóla.“
Kristján hóf 1971 vinnu við Slipp-
stöðina á Akureyri, var þar á vet-
urna og á sumrin hjá Ræktunar-
sambandi Skagafjarðar. Sauðfjárbú
hafði Kristján alltaf átt og verið í
sambýli við móður sína á Gilhaga en
árið 1988 ákvað Kristján að hætta
búskap og flytja ásamt konu sinni í
Varmahlíð. Næstu þrjú árin vann
hann við byggingu Blönduvirkjunar.
Á Varmahlíðarárunum smíðaði
hann bát og fór að stunda eggjatöku
og lundaveiði vor og sumur í Drang-
en varð fljótt að mikilli starfsemi
þar sem verkefnin bárust mér til
þess hvaðanæva af landinu, en
kindahausarnir eru orðnir nokkur
hundruð talsins.“
Kristján er tónlistarmaður og
hefur samið lög og ljóð og gefið út.
„Fljótlega var mér gefin harmonika,
ég náði strax tökum á henni, og var
ekki nema tíu ára þegar ég spilaði
fyrst fyrir dansi á kvenfélags-
samkomu í Steinsstaðaskóla.“ Árið
1995 gaf Kristján út geisladiskinn
Mitt hjartans mál og ári síðar kom
út diskurinn Minningamál og þá
kom líka út Söngbók Kristjáns frá
Gilhaga með nótum að flestum þess-
ara laga. „Útsetti ég þau fyrir fjöl-
breyttan söng, fyrir einsöng, karla-
kór og blandaðan kór, píanó-
undirleikur líka víðast með. Eftir þá
kynningu sem ég fékk með þessari
útgáfu réð ég mig sem tónlistar-
mann og skemmtanastjóra hjá Sam-
vinnuferðum/Landsýn til utanfarar
með eldri borgara til Benidorm.
Veturinn 1962 byrjaði ég að syngja
með Karlakórnum Heimi, það tíma-
Kristján Stefánsson frá Gilhaga, tónlistarmaður og uppstoppari – 75 ára
Á vinnustofu sinni Kristján stoppar upp dýr og fugla og var þessi hrútur sendur til Bandaríkjanna.
Fjölbreytt störf og listsköpun
Skemmtikrafturinn Kristján þenur nikkuna á Bryggjuhátíð Drangnesinga.
50 ára Sigrún er
Reykvíkingur og ólst
upp í Álfheimum. Hún
er leikskólakennari frá
Fósturskólanum 1992
og kláraði B.ed. í leik-
skólafræðum frá Há-
skóla Íslands 2018.
Hún er leikskólasérkennari í Sunnufold-
Loga í Grafarvogi.
Maki: Sigurjón Bragason, f. 1959, starfs-
maður í BYKO.
Börn: Vilborg Vala, f. 1995, og Eva
Hrund, f. 1997.
Foreldrar: Einar Sverrisson, f. 1928,
deildarstjóri í fjármálaráðuneytinu, bú-
settur í Reykjavík, og Vilborg Þorgeirs-
dóttir, f. 1929, d. 2017, kennari í Lang-
holtsskóla.
Sigrún Unnur
Einarsdóttir
Til hamingju með daginn
Smiðjuvegi 66 • 580 5800 • landvelar.is
Loftpressur af öllum
stærðum og gerðum
SKRÚFUPRESSUR
Mikð úrval af aukahlutum
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is