Morgunblaðið - 29.04.2019, Blaðsíða 23
DAGBÓK 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2019
Í klípu
„ÉG HEF EKKERT Á MÓTI SAMRUNANUM.
MÉR FINNST ÞÚ BARA VERA AÐ VAXA OF
HRATT.”
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞÚ ERT ALLTAF AÐ LÁNA MÉR ÞETTA
GAMLA DRASL! HVERS VEGNA KAUPIRÐU
EKKI RAFMAGNSKLIPPUR?”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að eiga saman
dekurdaga.
ÉG VEIT HVAR
OSTURINN ER
ÞÚ ERT
AÐALMÚSIN
ÞAÐ ER
SATT
ÞESSI BÓK ER AÐ GERBYLTA LÍFI MÍNU!
DÁLEIÐS
LA
FYRIR
BYRJEN
DUR
bil spannaði rúmlega 50 ár, með
fjölmörgum söngferðum um Ísland
og til allt að tíu landa erlendis.“
Haustið 2014 gaf Kristján út bók-
ina Stökur ljóð og sagnasafn og
haustið 2015 kom út bókin Sögur
kvæði og kviðlingar. Kristján skrif-
aði líka mikið af Æviminningum fyr-
ir útgáfu á Skagfirskum æviskrám í
ritstjórn Hjalta Pálssonar fyrir
tímabil ábúenda 1910-1950. „Ég var
einn af stofnendum Hagyrðinga-
móta sem árlega voru haldin víða
um land og kom einnig fram í fjöl-
mörgum hagyrðingaþáttum.“
Fjölskylda
Eiginkona Kristjáns er Rósa
Helgadóttir, f. 30. ágúst 1943, hús-
móðir og fyrrverandi bóndi. Hún á
fjögur börn af fyrra hjónabandi.
Foreldrar Rósu voru Helgi
Aðalsteinsson, f. 14.3. 1922, d. 3.11.
1955, bóndi á Másstöðum í Skíðadal,
og Ester Jósavinsdóttir, f. 26.8.
1925, d. 4.10. 2005, húsfreyja á Más-
stöðum, síðar á Akureyri.
Sonur Kristjáns með Matthildi
Egilsdóttur er Kristján Vilmundur,
f. 26.4. 1975, járniðnaðarmaður bú-
settur á Akureyri, í sambúð með
Kristínu Kjartansdóttur, dóttir
hans er Unnur Eyrún, f. 21.11.
1999, nemi í Noregi.
Systkini Kristjáns: Sigurlaug
Stefánsdóttir, f. 22.8. 1934; Guð-
mundur Sigurberg Stefánsson, f.
16.9. 1936, d. 29.11. 1963; Rósa Stef-
ánsdóttir, f. 18.9. 1938, d. 10.3. 1991;
Indriði Stefánsson, f. 11.1. 1948;
Hörður Stefánsson, f. 5.5. 1952, og
Margrét Stefánsdóttir, f. 12.4. 1955.
Foreldrar Kristjáns voru Stefán
Rósantsson, f. í Reykjaseli á Mæli-
fellsdal 28.6. 1895, d. 19.5. 1974, og
Helga Guðmundsdóttir, f. í Gilkoti
(nú Steintúni) 6.4. 1912, d. 19.12.
1985.
Kristján Hreinn
Stefánsson
Sigurlaug Kristjánsdóttir
húsfreyja á Gvendarstöðum og Ketu
Sveinn Jónsson
bóndi á Gvendarstöðum
á Staðarfjöllum og Ketu í
Hegranesi, Skag.
Sigurbjörg Sveinsdóttir
húsmóðir í Gilkoti
Helga Guðmundsdóttir
húsmóðir og bóndi í Gilhaga
Guðmundur Þorvaldsson
bóndi í Gilkoti á
Neðribyggð, Skag.
Helga Jónsdóttir
húsfreyja í Stapa
Þorvaldur Kristjánsson
bóndi í Stapa í
Tungusveit, Skag.
Jóhanna Þorkelsdóttir
húsfreyja á Geirmundarhóli
og víðar í Skagafirði
Guðmundur Stefánsson
bóndi á Geirmundarhóli
í Hrolleifsdal og víðar í
Skagafirði
Stefanía Guðmundsdóttir
húsmóðir í Ölduhrygg
Rósant Pálsson
bóndi síðast í Ölduhrygg
í Svartárdal, Skag.
Rósa Jónasdóttir
húsfreyja Kolgrímastöðum
Páll Pálsson
bóndi á Kolgrímastöðum
í Eyjafjarðarsveit
Úr frændgarði Kristjáns Stefánssonar frá Gilhaga
Stefán Rósantsson
bóndi í Gilhaga
Í Vísnahorni 20. apríl urðu línu-brengl í skýringarvísu Guð-
mundar Arnfinnssonar á laug-
ardagsgátunni og er beðist
velvirðingar á því. Þannig er gátan:
Á Bergþórshvoli logi lék.
Löngum brann í eldi sprek.
Heiti þetta halur ber.
Hárbeitt líka vopnið er.
Rétt er svarvísa Guðmundar
svona:
Forðum Hvoll í brandi brann.
Brandur er sprek, sem loga nærir.
Áðan bóndann Brand ég fann.
Brandur er sverð, sem ýta særir.
Á sumardaginn fyrsta orti Guð-
mundur:
Sumarkveðju senda vil
sólskinsbörnum öllum.
Lifið heil við ljós og yl,
linni veðrasköllum.
Sólin gyllir grund og móa,
gleði fyllir huga minn,
sönginn hyllir heiðalóa,
hörpu stillir vorblærinn.
Ég hringdi í Friðrik Stein-
grímsson í Mývatnssveit, spurði
frétta og óskaði honum gleðilegs
sumars. Hann svaraði að bragði:
Ég viðurkenni vísnaskort
að vanda þótt ég striti.
Hef ég nánast ekkert ort
og allra síst af viti.
Nokkrum mínútum síðar hringdi
síminn. Það var Friðrik og sagði:
„Þú kveiktir í mér“:
Sól á himni skærust skín,
skýin fjarri gista,
svona heilsar sveitin mín
á sumardaginn fyrsta.
Á miðvikudaginn skrifaði Pétur
Stefánsson á Leir:
Lífið skánar, léttast brár,
loksins vor ég eygi.
Hægur vindur, himinn grár
á hinsta vetrardegi.
Og Ólafur Stefánsson svaraði:
Hinsti dagur hverfur eins og hélogs-
reykur.
Siglir Pétur sæll á sæinn,
segir bless og þakkar daginn.
Sigmundur Benediktsson segir
að íslensk tunga nærist á hag-
mælskunni:
Rjóða skjáinn raddir slyngar,
ríma óð með geði fínu,
heilsa sumri hagyrðingar,
hugur fylgir hverri línu.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af vísnaskorti og
sumarkveðjur