Morgunblaðið - 29.04.2019, Side 24
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2019
HANDBOLTI
Olís-deild kvenna
Þriðji úrslitaleikur:
Valur – Fram ........................................ 25:21
Valur vann 3:0 og er Íslandsmeistari.
Umspil kvenna
Þriðji úrslitaleikur:
HK – Fylkir........................................... 32:22
Staðan er 2:1 fyrir HK.
Þýskaland
Magdeburg – RN Löwen .................... 29:32
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 6 mörk
fyrir Löwen en Alexander Petersson er
meiddur.
Kiel – Bergischer................................. 32:24
Gísli Þorgeir Kristjánsson hjá Kiel er frá
keppni vegna meiðsla. Alfreð Gíslason
þjálfar liðið. Arnór Þór Gunnarsson
skoraði 3 mörk fyrir Bergischer.
Gummersbach – Erlangen ................. 25:27
Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Erlangen.
B-deild:
Hagen – Lübeck-Schwartau .............. 24:28
Sigtryggur Daði Rúnarsson var ekki
með Lübeck-Schwartau.
Nordhorn – Hamburg......................... 32:29
Aron Rafn Eðvarðsson varði 12 skot í
marki Hamburg.
Hüttenberg – Balingen....................... 26:24
Ragnar Jóhannsson skoraði 3 mörk fyrir
Hüttenberg. Oddur Gretarsson skoraði
10 mörk fyrir Balingen.
A-deild kvenna:
Dortmund – Neckarsulmer................ 24:18
Hildigunnur Einarsdóttir skoraði 1
mark fyrir Dortmund.
Birna Berg Haraldsdóttir skoraði 1
mark fyrir Neckarsulmer.
Frakkland
Umspilskeppni um sæti í efstu deild:
Bourg De Peage – Dijon..................... 20:26
Helena Rut Örvarsdóttir var ekki á með-
al markaskorara Dijon.
Svíþjóð
Ungverjaland
Pick Szeged – Vecses.......................... 38:24
Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði 5
mörk fyrir Pick Szeged sem varð deildar-
meistari með sigrinum.
Austurríki
8-liða úrslit, fyrsti leikur:
Alpla Hard – Schwaz .......................... 17:19
Ísak Rafnsson skoraði 2 mörk fyrir
Schwaz.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Þriðji úrslitaleikur karla:
DHL-höllin: KR – ÍR (1:1)................... 19.15
HANDKNATTLEIKUR
Umspil karla, fyrsti úrslitaleikur:
Víkin: Víkingur – HK ........................... 19.30
Í KVÖLD!
Á HLÍÐARENDA
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
Valur er Íslandsmeistari kvenna í
körfuknattleik árið 2019 eftir 87:64-
sigur á Keflavík á Hlíðarenda í
þriðja leik liðanna í úrslitum á
laugardaginn. Valsarar eru því þre-
faldir meistarar, en þeir urðu bik-
ar- og deildarmeistarar fyrr á tíma-
bilinu. Valskonur voru grátlega
nærri sínum fyrsta Íslandsmeist-
aratitli í fyrra þegar þær máttu
þola tap í oddaleik gegn Haukum í
úrslitum en í ár fóru þær alla leið
og það með glæsibrag. Valur vann
fyrsta leikinn nokkuð þægilega,
mátti svo hafa mikið fyrir naumum
sigri í Keflavík í leik tvö áður en
svo sannfærandi sigur vannst í
þriðja og síðasta leiknum að ekki
fer á milli mála að Valsliðið er ein-
faldlega það besta á landinu.
Langbesta liðið
Helena Sverrisdóttir, ein besta
körfuknattleikskona sem þjóðin
hefur alið af sér, var máttarstólpi
Hauka í úrslitunum í fyrra og því
ekki furðulegt að Valsarar hafi
stokkið til þegar hún sneri heim úr
atvinnumennsku snemma á þessari
leiktíð. Það þarf þó meira en einn
góðan leikmann og hjá Val er nóg
til. Lengi mætti telja þá leikmenn
sem hafa spilað frábærlega fyrir
Val í vetur en þó ber að nefna hina
bandarísku Heather Butler sem
einnig gekk til liðs við Val á miðju
tímabili en hún gerði Keflvíkingum
skráveifu með snerpu sinni og
hæfileikum. „Við erum með valinn
leikmann í hverri stöðu og þar að
auki öflugar stelpur sem koma af
bekknum. Það er uppskriftin að
góðu liði og ég er stolt af því að
vera þáttur af þessu,“ sagði Butler
skreytt glitpappír og gullmedalíu
er blaðamaður náði tali af henni í
miðjum fagnaðarlátunum. „Það
vantar ekki góða leikmenn hérna,
en það er liðsheildin sem skilar ár-
angri, ekki einstaklingar.“
Keflvíkingar númeri of litlir
Ungt lið Keflavíkur náði sér
aldrei á strik gegn ógnarsterkum
Völsurum í tveimur leikjum á Hlíð-
arenda. Suðurnesingar spiluðu sinn
besta leik á heimavelli og voru þar
hársbreidd frá sigri en allt kom
fyrir ekki. Keflvíkingar geta gengið
stoltir frá tímabilinu, með ungt lið
og aðeins einn erlendan leikmann,
en næsta vetur reynir á hvort liðið
geti tekið þetta næsta skref.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Meistarar Guðbjörg Sverrisdóttir og Hallveig Jónsdóttir lyfta Íslandsmeistarabikarnum, fyrstar Valskvenna frá upphafi, í ósvikinni gleðivímu.
Valur í fyrsta sinn
Þrefaldir meistarar sópuðu Keflavík úr úrslitum Helena sú allra besta
Liðunum fjórum sem berjast um
3.-4. sæti í ensku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu, og Meistaradeild-
arsætin mikilvægu sem því fylgja,
hefur gengið skelfilega í deildinni
síðustu vikur. Tottenham, sem
stimplaði sig út úr titilbaráttunni
með hræðilegum kafla í febrúar og
mars, hefur náð mestu út úr þrem-
ur síðustu deildarleikjum sínum eða
3 stigum. Chelsea hefur fengið 2,
Manchester United 1 og Arsenal 0
af 9 mögulegum stigum í síðustu
leikjum.
United á sáralitla von um að leika
í Meistaradeildinni á næstu leiktíð
eftir 1:1-jafntefli við Chelsea í gær.
United er í 6. sæti, þremur stigum á
eftir Chelsea sem er í 4. sæti og með
mun betri markatölu þegar tvær
umferðir eru eftir. Chelsea á eftir
heimaleik við Watford og útileik við
Leicester og mætti mest fá 1 stig úr
þeim leikjum til að United gæti
mögulega náð 4. sæti. Arsenal er
tveimur stigum á eftir Chelsea og á
eftir heimaleik við Brighton og úti-
leik gegn Burnley. Tottenham er
þrátt fyrir allt í fínni stöðu í 3. sæti.
Öfugt við United eiga svo
Chelsea, Arsenal og Tottenham
aukamöguleika á að komast í Meist-
aradeildina, nái þau ekki einu af
fjórum efstu sætunum, með því að
vinna Evrópudeildina eða Meist-
aradeildina nú í vor.
Manchester City er stigi fyrir
ofan Liverpool fyrir síðustu tvær
umferðirnar í titilbaráttunni eftir
1:0-sigur á Burnley þar sem boltinn
fór rétt inn fyrir marklínuna í
sigurmarki Sergio Agüero. City á
eftir leiki við Leicester (h) og
Brighton (ú), en Liverpool leiki við
Newcastle (ú) og Wolves (h).
Þrautaganga Man.
Utd heldur áfram
AFP
Raunamæddir Ashley Young og
Ole Gunnar Solskjær eftir jafnteflið.
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 1001 - VÍÐÞEKKT ÞÆGINDI
Byggt á fyrsta DUX rúminu sem var framleitt árið 1926, þetta er sannarlega það sem draumar eru byggðir á.