Morgunblaðið - 29.04.2019, Side 25
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2019
Dominos-deild kvenna
Þriðji úrslitaleikur:
Valur – Keflavík.................................... 87:64
Valur vann, 3:0, og er Íslandsmeistari.
Spánn
Gipuzkoa – Obradoiro ....................... 85:72
Tryggvi Snær Hlinason skoraði 4 stig og
tók 1 frákast á 8 mínútum fyrir Obradoiro.
Úrslit um sæti í A-deild:
Celta Zorka – Leganés........................ 74:77
Hildur Björg Kjartansdóttir tók 7 frá-
köst á 13 mínútum fyrir Celta Zorka.
Celta Zorka – Campus Promete ........ 54:85
Hildur Björg Kjartansdóttir skoraði 4
stig og tók 2 fráköst fyrir Celta Zorka sem
með tapinu missti af sæti í efstu deild.
Frakkland
Chalon/Saone – Nanterre ................. 94:97
Haukur Helgi Pálsson skoraði 21 stig
fyrir Nanterre, tók 3 fráköst og gaf 2 stoð-
sendingar á 32 mínútum fyrir Nanterre.
B-deild:
Chartres – Evreux .............................. 72:92
Frank Aron Booker skoraði 18 stig, tók 1
frákast og gaf 2 stoðs. fyrir Evreux.
Austurríki
Flyers Wels – Swans Gmunden ......... 85:80
Dagur Kár Jónsson skoraði 14 stig, tók 1
frákast og gaf 1 stoðsendingu fyrir Wels.
Úrslitakeppni NBA
Austurdeild, undanúrslit:
Toronto – Philadelphia ...................... 108:95
Staðan er 1:0 fyrir Toronto.
Milwaukee – Boston ........................... 90:112
Staðan er 1:0 fyrir Boston.
Vesturdeild, 8-liða úrslit:
LA Clippers – Golden State ............ 110:129
Golden State vann einvígið, 4:2.
Denver – San Antonio .......................... 90:86
Denver vann einvígið 4:3.
Vesturdeild, undanúrslit:
Golden State – Houston................... 104:100
Staðan er 1:0 fyrir Golden State.
KÖRFUBOLTI
Danmörk
Umspilsriðill um sæti í efstu deild:
Kolding – Ribe-Esbjerg ...................... 24:29
Ólafur Gústafsson var ekki á meðal
markaskorara Kolding.
Rúnar Kárason skoraði 8 mörk fyrir
Ribe-Esbjerg og Gunnar Steinn Jónsson 2.
Úrslitaleikur um sæti í efstu deild:
Ajax – Bjerringbro.............................. 30:27
Eva Björk Davíðsdóttir skoraði 3 mörk
fyrir Ajax.
EHF-bikar karla
8-liða úrslit, seinni leikur:
Füchse Berlín – H-Burgdorf.............. 30:28
Bjarki Már Elísson skoraði 0 mörk fyrir
Füchse sem vann 64:54 samanlagt.
Tatabánya – Tvis Holstebro .............. 26:23
Vignir Svavarsson er meiddur en lið
hans Holstebro vann, 52:50 samanlagt.
Á HLÍÐARENDA
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Valur er Íslandsmeistari kvenna í
handknattleik í sautjánda sinn eftir
25:21-sigur liðsins gegn Fram í
þriðja leik liðanna í úrslitum Ís-
landsmótsins á Hlíðarenda í gær.
Valur vann viðureignina 3:0 en liðið
hafði áður tryggt sér bikarmeist-
aratitil og deildarmeistaratitil, og
Valsliðið vann því þrefalt í ár.
Valsonur mættu gríðarlega öflug-
ar til leiks í gær og það var ljóst frá
fyrstu mínútu að liðið ætlaði sér
ekki að fara í fjórða leikinn gegn
Fram í baráttunni um Íslands-
meistaratitilinn. Valskonur leiddu
með sex mörkum í hálfleik, 15:9, en
Framliðið neitaði að gefast upp og
tókst að jafna metin í 16:16 þegar
tuttugu mínútur voru til leiksloka.
Staðan var 21:21 þegar fimm mín-
útur voru til leiksloka en þá gekk
allt upp í sóknarleik Vals á meðan
Íris Björk Símonardóttir lokaði
búrinu í marki Vals og Hlíð-
arendaliðið fagnaði fjögurra marka
sigri í leikslok.
Valsarar duglegir að ógna
Sóknarleikur Valsliðsins var
ákveðinn hausverkur í upphafi
tímabilsins en hann hefur fallið eins
og flís við rass á undanförnum vik-
um. Allir leikmenn liðsins voru
ákveðnir og óragir við að keyra á
vörn Framara í gær og þær upp-
skáru eins og þær sáðu. Þá var
varnarleikur liðsins afar öflugur
sem fyrr, með þær Önnu Úrsúlu
Guðmundsóttur og Gerði Ar-
inbjarnar fremstar í flokki. Íris
Björk Símonardóttir lokaði mark-
inu og varði 16 skot, þar af þrjú
vítaköst. Valsliðið skoraði auðveld
mörk í gær og þar sem allir leik-
menn liðsins voru ákveðin ógn í
sóknarleiknum gekk Framliðinu illa
að stoppa þær.
Framarar mættu illa stemmdar
til leiks og eftir að Íris Björk Sím-
onardóttir varði vel frá þeim á
fyrstu mínútum leiksins virtist allur
vindur vera úr liðinu. Það segir
mikið um spilamennsku Framliðs-
ins í gær að þær leiddu aðeins einu
sinni í leiknum, á annarri mínútu, í
stöðunni 2:1. Þær sýndu hins vegar
ákveðinn karakter í seinni hálfleik
þegar þær komu til baka eftir að
hafa verið sex mörkum undir en
þrátt fyrir að ná að jafna leikinn
tókst þeim aldrei að komast yfir
aftur. Leikmenn liðsins fóru illa
með nokkur dauðafæri og undirrit-
aður fékk það á tilfinninguna að
þær væru skíthræddar við Írisi
Björk í marki Vals.
Annar leikurinn áfall
Það má leiða líkur að því að ann-
ar leikur liðanna í Safamýrinni hafi
setið í Frömurum. Framkonur
leiddu þar með tveimur mörkum
þegar tæpar tvær mínútur voru til
leiksloka. Valur fagnaði sigri eftir
framlengingu og áfallið mikið fyrir
Framarar. Það var ákveðið vonleysi
í leik Framara, framan af í gær, og
það var eins og leikmenn liðsins
væru búnir að missa trú á verkefn-
inu þegar flautað var til leiks í gær.
Valskonum tókst ekki að vinna
Fram í deildarkeppninni í vetur en
enduðu, þrátt fyrir það, uppi sem
deildarmeistarar. Valsliðið er vel að
sigrinum komið og er, eins og
Steinunn Björnsdóttir, fyrirliði
Fram, benti blaðamanni réttilega á,
besta handknattleiks lið landsins í
dag.
Sautjándi hjá Val
Íris Björk Símonardóttir lokaði markinu Framarar vonleysið uppmálað
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bestar Valskonur stigu sigurdans á Hlíðarenda eftir að hafa fullkomnað þrennuna með öruggum sigri á Fram.
Origo-höllin, þriðji úrslitaleikur
kvenna, sunnudag 28. apríl 2019..
Gangur leiksins: 3:2, 7:4, 10:7, 10:7,
12:8, 15:9, 16:13, 16:16, 18:17, 20:19,
22:21, 25:21.
Mörk Vals: Lovísa Thompson 4,
Morgan Marie Þorkelsdóttir 4,
Sandra Erlingsdóttir 4/3, Íris Ásta
Pétursdóttir 3, Alina Molkova 2, Ás-
dís Þóra Ágústsdóttir 2/2, Díana
Dögg Magnúsdóttir 2, Anna Úrsúla
Guðmundsdóttir 2, Ragnhildur Edda
Þórðardóttir 2.
Varin: Íris Björk Símonardóttir 16/3.
Valur – Fram 25:21
Utan vallar: 2 mínútur.
Mörk Fram: Ragnheiður Júlíusdóttir
7/3, Karen Knútsdóttir 7, Unnur Óm-
arsdóttir 2, Hildur Þorgeirsdóttir 2,
Steinunn Björnsdóttir 2, Þórey Rósa
Stefánsdóttir 1.
Varin skot: Erla Rós Sigmarsdóttir
11/2.
Utan vallar: 2 mínútur.
Dómarar: Anton Gylfi Pálsson og
Jónas Elíasson.
Áhorfendur: 749.
Valur vann einvígið 3:0 og er Ís-
landsmeistari.
Íslensk kraftlyftingakona, sleggjukastari og skauta-
kona voru í metgír um helgina. Sóley Margrét Jóns-
dóttir, 17 ára Akureyringur, setti heimsmet þegar hún
varð Evrópumeistari í +84 kg flokki í kraftlyftingum á
EM í Tékklandi. Sóley setti heimsmetið í hnébeygju
þegar hún lyfti 265,5 kílóum. Hún lyfti 200 kg í rétt-
stöðulyftu og 155 kg í bekkpressu, eða samanlagt
620,5 kg. Hún hjó nærri heimsmeti í samanlagðri
þyngd.
Hilmar Örn Jónsson úr FH bætti 11 ára gamalt Ís-
landsmet Bergs Inga Péturssonar í sleggjukasti með
75,26 metra kasti á móti í Bandaríkjunum, þar sem
hann stundar nám og keppir fyrir háskólann í Virginíu. Hilmar hafði áð-
ur best kastað 73,13 en það var fyrir rúmri viku. Met Bergs Inga var
74,48 metrar svo Hilmar bætti það um 78 sentimetra.
Aldís Kara Bergsdóttir, úr Skautafélagi Akureyrar, bætti Íslandsmet
sitt þegar hún fékk 118,81 stig í listdansi á skautum á Vormóti Skauta-
sambands Íslands og fagnaði sigri í unglingaflokki.
Ný heimsmet og Íslandsmet
Hilmar Örn
Jónsson Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is
PLÍ-SÓL GARDÍNUR
alnabaer.is
Þrjár gerðir: þunnar, með sólarvörn og myrkvunar.
Henta mjög vel í skáglugga og þakglugga.
Við erum sérhæfð í gluggatjöldum