Morgunblaðið - 29.04.2019, Page 27
Ólafsson í marki HK af 35 metra
færi og úrslitin þar með ráðin.
Hafnfirðingar gerðu vel í leiknum,
og stjórnuðu ferðinni frá fyrstu mín-
útu til þeirra síðustu. Þeir hafa oft
spilað betur og þurfa að spila mun
betur, ef þeir ætla sér að berjast um
Íslandsmeistaratitilinn. Að sama
skapi var þetta fyrsti leikur í Ís-
landsmótinu og það tekur menn
stundum smátíma að spila sig í
gang. Þetta er leikur sem FH hefði
að öllum líkindum ekki klárað, síð-
asta sumar, og því virðast vera
ákveðin batamerki á liðinu frá síð-
ustu leiktíð.
HK-ingar reyndu hvað þeir gátu í
gær en þeir áttu aldrei möguleika í
Kaplakrika. Sóknarleikur liðsins var
afar slakur og liðið var í miklum
vandræðum með að skapa sér afger-
andi marktækifæri. Emil Atlason
var í vandræðum á hægri vængnum
og maður spyr sig hvort hann hefði
ekki nýst betur í fremstu víglínu í
stað Brynjars Jónassonar sem gerði
ekkert í leiknum. Þá hefði Ásgeir
Börkur Ásgeirsson nýst liðinu vel á
miðsvæðinu enda einn af fáum leik-
mönnum HK sem er með reynslu í
efstu deild.
FH-ingar unnu afar þægilegan
sigur, þrátt fyrir að vera langt frá
sínu besta, sem er styrkleikamerki
góðra liða. HK-ingar þurfa að spýta
í lófana eftir þessa frammistöðu og
finna svör hjá sér í sóknarleiknum
því þú færð ekki mörg stig ef þú
skorar ekki mörk.
Hewson breytti gangi leiksins
Eyjamenn tóku á móti Fylk-
ismönnum á Hásteinsvelli í tals-
verðu roki. Fylkismenn fóru heim
með 3 stig þar sem þeir unnu slakt
lið ÍBV 3:0. Leikurinn byrjaði ekki
svo vel fyrir Fylki þar sem ÍBV leit
út fyrir að verða talsvert sterkara
liðið. Leikurinn snerist síðan við eft-
ir að Ásgeir Eyþórsson nýtti sér
mistök Halldórs Páls Geirssonar
þegar hann missti boltann í teign-
um. Það tók Fylkismenn ekki lang-
an tíma til að bæta við öðru marki
en Sigurður Arnar Magnússon
hjálpaði til með það með sjálfsmarki
rétt fyrir hálfleik. Sigurður Arnar
ætlaði að skalla boltann burt eftir
aukaspyrnu en var svo óheppinn að
boltinn endaði í hans eigin marki.
Seinni hálfleikurinn byrjaði með
krafti þar sem bæði liðin sóttu á
markið. Sam Hewson gerði síðan út
um leikinn með þrumuskoti á 57.
mínútu en þá var Fylkir kominn í
3:0.
Hewson kom inn á á 30. mínútu
eftir að Emil Ásmundsson haltraði
af velli og er óhætt að segja að þessi
skipting hafi breytt leiknum. Eftir
þriðja markið róaðist yfir leiknum
og vindurinn varð meiri með tím-
anum. Guðmundur Magnússon kom
síðan inn á á 57. mínútu, en hann var
í miklu stuði með Fram í Inkasso-
deildinni í fyrra. Hann kom með
Pedro Hipolito þjálfara til Eyja frá
Fram og var óheppinn tvívegis er
hann fékk færin til að minnka mun-
inn fyrir ÍBV.
Fyrir lið sem er spáð 8. sæti í
Pepsi Max-deildinni telst það frekar
sterk byrjun að ferðast til Vest-
mannaeyja og vinna 3:0 og vera þá
efst í deildinni. En að taka á móti
liði sem er spáð 8. sæti og tapa 3:0 á
heimavelli ætti að hringja ein-
hverjum viðvörunarbjöllum hjá
Eyjamönnum. ÍBV-liðið virkaði
brothætt og má ekki við mörgum
svona töpum á heimavelli í sumar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Einbeittir Ólafur Ingi Skúlason og Jonathan
Glenn með augun á boltanum í Eyjum.
í Garðabæ
M
Aron Bjarnason (Breiðabliki)
Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðabliki)
Damir Muminovic (Breiðabliki)
Kolbeinn Þórðarson (Breiðabliki)
Elias Tamburini (Grindavík)
Gunnar Þorsteinsson (Grindavík
Rodrigo Mateo (Grindavík)
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson – 7
FH – HK 2:0
1:0 Jónatan Ingi Jónsson 9.
2:0 Brandur Olsen 65.
MM
Jónatan Ingi Jónsson (FH)
Guðmundur Kristjánsson (FH).
M
Brandur Olsen (FH)
Björn Daníel Sverrisson (FH)
Arnar Freyr Ólafsson (HK)
Birkir Valur Jónsson (HK)
Ólafur Örn Eyjólfsson (HK)
Dómari: Helgi Mikael Jónasson – 8
ÍBV – Fylkir 0:3
0:1 Ásgeir Eyþórsson 40.
0:2 Sigurður A. Magnússon
(sjálfsm.) 45.
0:3 Sam Hewson 57.
MM
Sam Hewson (Fylki)
M
Matt Garner (ÍBV)
Guðmundur Magnússon (ÍBV)
Aron Snær Friðriksson (Fylki)
Ásgeir Eyþórsson (Fylki)
Hákon Ingi Jónsson (Fylki)
Orri Sveinn Stefánsson (Fylki)
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson – 7
og M-gjöfin
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2019
England
Crystal Palace – Everton........................ 0:0
Gylfi Þór Sigurðsson var í liði Everton
fram á 86. mínútu.
Burnley – Manchester City .................... 0:1
Jóhann Berg Guðmundsson kom inn á
hjá Burnley á 76. mínútu.
Fulham – Cardiff ..................................... 1:0
Aron Einar Gunnarsson var í liði Cardiff
fram á 87. mínútu.
Tottenham – West Ham .......................... 0:1
Southampton – Bournemouth................. 3:3
Watford – Wolves..................................... 1:2
Brighton – Newcastle .............................. 1:1
Leicester – Arsenal .................................. 3:0
Manchester United – Chelsea................. 1:1
Staðan:
Manch.City 36 30 2 4 90:22 92
Liverpool 36 28 7 1 84:20 91
Tottenham 36 23 1 12 65:36 70
Chelsea 36 20 8 8 60:39 68
Arsenal 36 20 6 10 69:49 66
Manch.Utd 36 19 8 9 64:51 65
Wolves 36 15 9 12 46:44 54
Leicester 36 15 6 15 51:47 51
Everton 36 14 8 14 50:44 50
Watford 36 14 8 14 51:52 50
West Ham 36 13 7 16 45:54 46
Cr. Palace 36 12 7 17 43:48 43
Newcastle 36 11 9 16 36:45 42
Bournemouth 36 12 6 18 52:65 42
Burnley 36 11 7 18 44:63 40
Southampton 36 9 11 16 44:61 38
Brighton 36 9 8 19 33:55 35
Cardiff 36 9 4 23 30:66 31
Fulham 36 7 5 24 34:76 26
Huddersfield 36 3 5 28 20:74 14
B-deild:
Middlesbrough – Reading ...................... 2:1
Jón Daði Böðvarsson var ekki með
Reading vegna meiðsla.
Leeds – Aston Villa.................................. 1:1
Birkir Bjarnason var á varamannabekk
Aston Villa.
Staða efstu liða:
Norwich 45 26 13 6 91:56 91
Sheffield Utd 45 26 10 9 76:39 88
Leeds 45 25 8 12 71:47 83
WBA 45 23 11 11 86:59 80
Aston Villa 45 20 16 9 81:59 76
Derby 44 19 13 12 65:52 70
Norwich og Sheff. Utd eru komin upp.
Bandaríkin
Orlando Pride – Utah Royals................. 0:1
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék allan
leikinn fyrir Utah Royals.
Danmörk
Bröndby – Esbjerg .................................. 0:1
Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn
fyrir Bröndby.
SönderjyskE – Vejle................................ 4:1
Eggert Gunnþór Jónsson var í liði Sön-
derjyskE fram á 59. mínútu. Kjartan
Henry Finnbogason hjá Vejle var í banni.
Svíþjóð
Hammarby – Djurgården....................... 2:1
Viðar Örn Kjartansson skoraði mark
fyrir Hammarby og lék allan leikinn.
KNATTSPYRNA
Keppni í 1. umferð úrvalsdeildar karla
lauk á laugardag með fimm leikjum.
Stjarnan missti Baldur Sigurðsson
af velli vegna meiðsla í fyrri hálfleik
gegn KR. Óttast var að um höfuð-
meiðsli væri að ræða en í samtali við
Morgunblaðið sagði Baldur svo ekki
vera. Hann væri hins vegar mjög stífur
í hálsinum en það kæmi betur í ljós á
næstu dögum hvernig batinn yrði.
KA verður væntanlega án Hallgríms
Jónassonar í allra næstu leikjum eftir
að hann tognaði í nára í tapinu gegn
ÍA. Hallgrímur sagði að um litla tognun
væri að ræða en hann fer í nánari
skoðun í dag.
Ágúst Gylfason, þjálfari Breiða-
bliks, staðfesti við mbl.is eftir sigurinn
á Grindavík að bakvörðurinn Jonatah-
an Hendrickx færi að öllum líkindum
frá félaginu til belgísks félags í júlí.
Verið væri að skoða möguleika á að fá
leikmann í hans stað.
Molar úr
1. umferð
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Fyrir líkama og sál
Laugarnar í Reykjavík
Frá
morgnifyrir alla
fjölskylduna
í þínu
hverfi t i l kvölds
Hólmfríður
Magnúsdóttir,
næstmarkahæsta
landsliðskona Ís-
lands frá upp-
hafi, hefur
ákveðið að taka
fram skóna og
spila með Sel-
fossi á komandi
knattspyrnu-
tímabili.
„Ég ætlaði ekki að spila fótbolta í
sumar, en þegar grasið fór að
grænka þá fór mig að kitla í tærn-
ar. Ég finn að áhuginn er enn fyrir
hendi þannig að ég er ekki tilbúin
til að hætta strax,“ segir Hólm-
fríður, sem er 34 ára og lék síðast
með KR 2017, en eignaðist son í
fyrrasumar. Hún hefur áður leikið
með KR, Val, ÍBV, Avaldsnes í Nor-
egi, Kristianstad í Svíþjóð og Phila-
delphia Independence í Bandaríkj-
unum. Leiktíðin hefst á fimmtudag.
Hólmfríður
snýr aftur
Hólmfríður
Magnúsdóttir