Morgunblaðið - 29.04.2019, Qupperneq 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2019
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Geta ljóð á vef veitt sömu lestrar-
upplifun og þau sem birtast í bók?
„Já,“ svarar Anton Helgi Jónsson,
ljóðskáld og rithöfundur, þegar hann
að gefnu tilefni er spurður. Á al-
þjóðadegi ljóðsins 21. mars síðastlið-
inn setti hann í loftið endurbætta út-
gáfu af vefsíðunni anton.is þar sem
öll hans ljóð eru samankomin; heild-
arljóðasafnið. Og meira til. Auk
þeirra sem birst hafa í bókum og
tímaritum eru þar ljóð sem hvergi
hafa sést áður, til dæmis þau fyrstu
sem hann orti á unglingsárum og
lausavísur og tækifæriskvæði frá
ólíkum tímum.
„Hvað mig áhrærir að minnsta
kosti,“ heldur hann áfram. „Ég les
mjög mikið, bæði prentaðar bækur
og á tölvuskjá. Eftir að ég eignaðist
Kindle-lesbretti fyrir nokkrum árum
fór ég í alveg nýjan lestrargír. Ég er
orðinn svolítið eins og unglingur
hvað það varðar að kjósa frekar les-
bretti en bók ef því væri að skipta.
Margir eru mjög fastheldnir á prent-
uðu bókina, en unga fólkið er vanara
að lesa af skjá en pappír. Í sumum
grunnskólum er varla notast við
kennslubækur lengur, bara spjald-
tölvur, og allt efni sótt af netinu og
prentað út eftir þörfum. Ljóðin
þurfa að ná til kynslóðarinnar sem
nú er að vaxa úr grasi.“
Alþýðlegur gáski og bók-
menntalegur þungi
Á vefsíðunni eru ljóð sett saman í
alls konar syrpur og einnig látin í
myndrænt samhengi „sem ber keim
af óskólaðri sköpunargleði“, eins og
þar stendur. Með vefnum og fram-
setningu á honum segist Anton
Helgi vilja reyna að fanga andann
sem ríki í ljóðaheimi sínum sem
skálds og einkennist frekar af alþýð-
legum gáska en listrænni sýn og
bókmenntalegum þunga.
„Fyrir margt löngu, þegar ég
byrjaði að birta ljóð og annan skáld-
skap á samfélagsmiðlum, náði ég
skyndilega til fólks sem hefði
ábyggilega aldrei látið sér detta í
hug að kaupa ljóðabók. Sumir komu
beinlínis til mín og þökkuðu mér fyr-
ir, játuðu um leið að þeir læsu aldrei
ljóð, en mikið hefði þó verið gaman
að lesa ljóðin mín. Reyndar gleym-
um við því oft að birtingarmyndir
ljóða eru margvíslegar og fólk er
ómeðvitað sífellt að meðtaka ljóð í
umhverfinu án þess að lesa þau endi-
lega í bók. Ljóð eru sungin með tón-
list og flutt víðsvegar með einum eða
öðrum hætti. Einungis þröngur hóp-
ur nær sér í ljóðabækur á bókasafni
eða -búð. Þótt mörgum spurningum
sé vissulega ósvarað um vefsíður
sem vænlegan farveg fyrir ljóð
finnst mér að fleiri höfundar ættu að
fara þessa leið, sem einnig er góð
fyrir þá sjálfa til að halda verkunum
til haga á einum aðgengilegum stað.“
Antoni Helga finnst eðlilegt að
ýmsar spurningar vakni þegar stöðu
hinnar hefðbundnu ljóðabókar ber á
góma. Á hún undir högg að sækja?
Telst birting ljóða og ljóðasafna á
vefsíðu marktæk útgáfa sem verð-
skuldar umfjöllun líkt og í prent-
uðum bókum? Hentar vefurinn sum-
um ljóðum en öðrum ekki? Hann
telur að tíminn leiði svörin í ljós og
er sjálfur á því að pláss sé fyrir hvort
tveggja; ljóðabækur og ljóðavefsíð-
ur.
Hvorki auðgast né tapað
Spurður hvort ljóðskáldin yrðu af
tekjum ef vefsíður kæmu í stað bóka
segir hann að meirihluti ljóðabóka
sem gefnar séu út á Íslandi gefi lítið
af sér. Örfá skáld fái kannski ein-
hverja smápeninga fyrir.
Sjálfur hefur Anton Helgi hvorki
auðgast né tapað á ljóðabókum sín-
um, tíu talsins, sem komu út á ár-
unum 1974 til 2015. Auk þess að
yrkja ljóð hefur hann sent frá sér
skáldsögu, nokkrar smásögur, skrif-
að allmörg sviðs- og útvarpsleikrit
og þýtt önnur. Af verðlaunum og
viðurkenningum má nefna að hann
hefur tvisvar hampað Ljóðstaf Jóns
úr Vör, 2009 og 2014. Þessar upplýs-
ingar og fleiri um skáldið má lesa á
vefsíðunni anton.is. Einnig að hann
hafi numið heimspeki og bók-
menntafræði við Stokkhólmshá-
skóla.
„Ég hef starfað við eitt og annað
um dagana, til dæmis var ég sviðs-
maður hjá Leikfélagi Reykjavíkur í
nokkur ár, vann lengi við auglýs-
ingagerð og almannatengsl og rak
um skeið fyrirtæki á því sviði. Und-
anfarið hef ég verið lausamaður í alls
konar harki með því að stunda rit-
störf; þýðingar, ritstjórn og fleira.“
Anton Helgi viðurkennir að hafa
sjálfur ekki átt hugmyndina að vef-
síðunni, heldur ungur kollegi hans í
auglýsingabransanum um aldamót-
in. „Hann sagði einfaldlega að ég
yrði að hafa vefsíðu ef ég ætlaði að
verða skáld. Slíkt hafði aldrei hvarfl-
að að mér, en ábendingin varð til
þess að ég tryggði mér lén, þótt að-
eins séu tvö ár síðan ég ákvað að fara
alla leið og hóf að vinna að síðunni af
einhverri alvöru.“
Samtal bókar og vefs
Við blasir að vefsíða er meira lif-
andi en bók að því leyti að hægt er að
breyta, bæta og laga, setja inn hljóð-
skrár, myndbönd og þar fram eftir
götunum. „Helga Óskarsdóttir,
myndlistarkona og vefritstjóri, ann-
aðist innviðina og síðan mótuðum við
útlitið í sameiningu. Ég er búinn að
setja inn þrjár hljóðskrár og mynd-
band, en hef þegar fengið beiðnir frá
vinum mínum úti í heimi – sem er
svosem ekki mjög stór hópur – um
að setja inn fleiri. Mér finnst
skemmtilegt að geta gert ljóðin mín
aðgengileg fyrir aðra og um leið að
eiga með sama hætti aðgengi að ljóð-
um annarra skálda á öllum aldri,
sem að vísu eru ennþá aðallega bara
bresk og bandarísk. Norræn skáld
hafa ekki tileinkað sér í sama mæli
útgáfu af þessu tagi.“
Að mati Antons Helga er hvergi
nærri nóg af íslenskri ljóðlist og bók-
menntum á netinu. Hann saknar
þess að geta ekki í einum hvelli flett
upp á öllum atómskáldunum okkar,
svo eitthvað sé nefnt. „Það þarf að
auka samtal milli bókarinnar og
vefsins og nýta á fjölbreyttari hátt
en gert er. Mér fannst til fyr-
irmyndar í haust þegar Forlagið gaf
út ítarefni á vefnum samhliða útgáfu
bókarinnar Skúla fógeta eftir Þór-
unni Jörlu Valdimarsdóttur.“
„Óttalegar tiktúrur“
Til marks um mátt rafrænnar út-
gáfu lætur Anton Helgi þess til gam-
ans getið að eitt af hans mest lesnu
ljóðum sé „Kvíðasöngur að hausti“,
að minnsta kosti fékk ljóðið ótal
„like“ þegar hann smellti því á face-
book um það leyti sem jarðskjálfta-
hrinan í Bárðarbungu stóð sem hæst
fyrir nokkrum árum. „Í ljóðinu
speglast öðruvísi viðbrögð við veru-
leikanum. Stundum getur maður
ekkert sagt nema bulla eitthvað í
þessu formi, létta á sér eða syngja.“
Anton Helgi segir að félögum
hans í skáldakreðsum hafi þótt mis-
mikið til stofnunar ljóðavefsíðu hans
koma. „Þeir skiptust alveg í tvö
horn, sumir voru mjög hrifnir en
öðrum fannst framtakið óttalegar
tiktúrur hjá mér. Sjálfur er ég
ánægður og finnst síðan hafa heppn-
ast mjög vel. Bæði er fljótlegt að
fletta upp í henni og myndræna út-
færslan er með ágætum.“
Ekki aðeins er ljóðavefsíðan sem
slík nýbreytni heldur líka hvernig
ljóðin eru sett fram. Skjáborðaljóðin,
40 talsins, eru gott dæmi, en þau eru
um leið leikur með letur, sem situr í
alls konar útfærslum á táknrænni
grunnmynd; teikningu eða ljósmynd
– og vekur fyrir vikið trúlega önnur
hughrif en ef ljóðið stæði eitt og sér.
„Skjáborðsljóðin eru hugsuð til að
hlaða niður og hafa sem skjámynd.
Megnið af þessu hef ég verið að
föndra við sjálfur, en svo hef ég líka
kvabbað í vinum mínum sem eru
grafískir hönnuðir. Hugsunin að
baki er kannski ekki ólík þeirri hug-
mynd sem ég fékk þegar ég var
yngri, að prenta ljóð á póstkort til
þess að þau mættu fara sem víðast.
Augljóslega væri ekki mikið vit í því
núna.“
Það sem liggur í loftinu
Þótt hvor miðillinn um sig, ljóða-
bókin og ljóðavefurinn, hafi sína sér-
stöðu og líka takmarkanir segir Ant-
on Helgi vefinn augljóslega hafa það
framyfir að bjóða upp á auðveldara
aðgengi fyrir fleiri. Mörgum finnist
hins vegar fátt jafnast á við þá til-
finningu að lesa ljóð í bók. Raunar
kveðst hann engar áhyggjur hafa af
því að áhugi á ljóðum og ljóðlist sé á
undanhaldi. Þvert á móti. Það liggur
eitthvað í loftinu, segir hann.
„Í löndunum í kringum okkur fylla
ungskáldin stóra sali með áhuga-
sömu fólki sem vill hlusta á ljóð.
Sums staðar njóta þau gífurlegra
vinsælda eftir að hafa birt ljóð sín á
netinu og gefið síðan út í bókum, sem
seljast í bílförmum. Til marks um
áhugann hér á landi eru ljóða-
upplestrar sem efnt er til nánast í
hverri viku einhvers staðar á höf-
uðborgarsvæðinu.“
Anton Helgi telur að aukinn
áhuga megi rekja til þess að ljóð-
skáld nútímans yrki um ýmislegt í
samfélaginu, sem hreyfir við fólki og
skiptir það máli. „Þau leyfa sér að
nota ljóðið til að tjá sig um hvaðeina
sem liggur þeim á hjarta,“ segir
hann. Svo vita ungskáldin mörg hver
líka hvernig best er að miðla sínum
verkum.
Morgunblaðið/Hari
Skáldið Með vefsíðunni segist Anton Helgi reyna að fanga andann sem ríkir í ljóðaheimi hans sem skálds.
Ljóð handa nýrri kynslóð?
Verða ljóðabækur vefsíður í framtíðinni? Hentar vefurinn sumum ljóðum en öðrum ekki?
Ljóðskáldið Anton Helgi Jónsson hefur sett í loftið myndræna vefsíðu með heildarljóðasafni sínu
Leikur að ljóðum Skjáborðsljóð eru dæmi um nýstárlega framsetningu ljóðanna. Leikur með letur í ýmsum útfærslum á ljósmynd eða teikningu vekur önnur hughrif en ef ljóðið stæði eitt og sér.
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150
Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju
Fyrir ökuskírteinið,
passann, ferilskrána o.fl.
Góð passamynd
skiptir máli
Engar tímapantanir
Skjót
og hröð
þjónusta