Morgunblaðið - 29.04.2019, Blaðsíða 32
Dömukórinn Graduale Nobili heldur
stórtónleika í Langholtskirkju
klukkan 17 á miðvikudag, 1. maí. Þá
munu þær aðeins flytja karlakórs-
slagara. Stjórnandi er Þorvaldur
Örn Davíðsson.
Í tilkynningu segist kórinn vilja
hrista upp í hefðinni. Þá ætla þær
að klæða sig upp á fyrir tilefnið og
finna sína innri tenóra og bassa.
Dömukórinn heldur
karlakórstónleika
MÁNUDAGUR 29. APRÍL 119. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Valskonur urðu Íslandsmeistarar í
körfubolta í fyrsta sinn um helgina
þegar þær unnu öruggan sigur á
Keflavík og þar með einvígi liðanna
einnig af öryggi, 3:0. Valur hafði
áður orðið bikarmeistari og
deildarmeistari í vetur. Eftir tap í úr-
slitunum í fyrra var lið Vals óstöðv-
andi í vetur með Helenu Sverris-
dóttur í broddi fylkingar. »24
Lönduðu þeim fyrsta
af miklu öryggi
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Stjarnan og KR skildu jöfn í stórleik
1. umferðar úrvalsdeildar karla í
fótbolta þar sem misvísandi skila-
boð voru send um hvort
liðin væru í stakk búin til
að berjast um
Íslandsmeistaratitilinn
fram á haust. Fylkismenn
hófu leiktíðina á flottum
sigri í Eyjum og nýliðar ÍA
nýttu sér mistök KA-manna
og unnu góðan sigur.
FH átti ekki í neinum
vandræðum gegn HK
og Breiðablik tefldi
fram nýju þrí-
eyki í
nokk-
uð
þægilegum sigri á
Grindvíkingum. »26
Misvísandi skilaboð
í fyrstu umferðinni
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Okkur berast kynstrin öll af fatnaði
sem nýtist til góðra verkefna. Í raun
er merkilegt hvað fólk er gjarnt á að
tapa fötunum sínum; oft spánnýjum
flíkum sem maður hélt að flestir
gættu vel,“ segir Steinunn Þorfinns-
dóttir, formaður Hveragerðisdeildar
Rauða kross Íslands. Á opnu húsi í
Garðyrkjuskólanum á Reykjum í
Ölfusi sumardaginn fyrsta fékk
deildin umhverfisviðurkenningu
Hveragerðisbæjar fyrir fatasöfnun
sem fólk í deildinni hefur sinnt. Lilja
Dögg Alfreðsdóttir menntamála-
ráðherra afhenti verðlaunin og í
ávarpi við það tilefni setti hún
vefnað og klæði í samhengi við lofts-
lagsmálin.
Kaupum meira en aðrar þjóðir
„Á tímum hnattrænna loftslags-
breytinga og vakningar í umhverfis-
málum er fólk farið að átta sig á
áhrifum fataiðnaðar á umhverfi,“
sagði ráðherrann. Vék hún að þeirri
staðreynd að árlega eru framleiddir
150 milljarðar flíka eða um 20 flíkur
á hvern jarðarbúa. Þessi iðnaður
skilar 1,2 milljörðum tonna af
koltvíoxíðígildum út í andrúmsloftið
auk ýmissa efna sem oft eru skaðleg
umhverfinu, svo sem skordýraeitur.
Við Íslendingar kaupum 17 kíló af
fötum árlega á mann, sem sé þrisvar
sinnum meira en jarðarbúar gera að
jafnaði. Höfum til skamms tíma hent
16 kílóum af vefnaðarvöru á ári og
minna en helmingur af því hefur far-
ið í endurvinnslu.
Sauma poka
Rauði kross Íslands hefur um ára-
bil verið leiðandi í fatasöfnun og tek-
ur við þúsundum tonna af fatnaði
sem er endurnýttur. „Hér í Hvera-
gerði hittast sjálfboðaliðar alla
fimmtudaga til þess að flokka,
sauma og þrífa föt sem berast en
einnig er unnið á öðrum tímum við
að þrífa það sem kemur frá Reykja-
dal og taka á móti því sem kemur frá
skólum og íþróttahúsum,“ segir
Steinunn Þorfinnsdóttir. „Mikið af
fatnaði hefur verið sent til Hvíta-
Rússlands í hjálparverkefni sem Ís-
lendingar stóðu þar að og nefndist
Föt sem framlag. Nú er því verkefni
lokið en áfram verður mikil þörf fyr-
ir fatnaðinn. Núna eru sjálfboðaliðar
deildarinnar að sauma og útbúa inn-
kaupa- og grænmetispoka úr af-
gangsefni sem deildin fær gefins.
Þar segi ég okkur vera að slá tvær
flugur í einu höggi, það er
umhverfismál og fjáröflun.“
Fötin koma úr Reykjadal
Inn af Hveragerði er Reykjadal-
ur, sem er vinsælt útivistarsvæði
með gönguleiðum og náttúrulaug-
um. „Hjálparsveit skáta hér í Hvera-
gerði fer oft þarna um og tínir upp
föt sem hafa glatast. Við fáum þaðan
mikið af útivistarfatnaði, hand-
klæðum, sundfötum og slíku. Deildin
sinnir að auki neyðarvörnum, heldur
skyndihjálparnámskeið, hefur tekið
á móti flóttafólki og er með heim-
sóknarvinaverkefni. Við erum stolt
af starfi okkar og þakklát fyrir starf
sjálfboðaliðanna,“ segir Steinunn.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Viðurkenning Frá vinstri: Höskuldur Þorbjarnarson, umhverfisfulltrúi Hveragerðisbæjar, Bryndís Eir Þorsteins-
dóttir, formaður umhverfisnefndar, Steinunn Þorfinnsdóttir og Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra.
Fötin fyrir umhverfið
Rauði krossinn fékk umhverfisverðlaun Hveragerðis
Allir kettir
þurfa gott fóður
– fyrir dýrin þín