Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.05.2019, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 30.05.2019, Qupperneq 4
Veður Norðlæg átt, yfirleitt 5-10 m/s. Rigning eða slydda með köflum um landið NA-vert og dálítil snjó- koma á heiðum, en víða léttskýjað S- og V-lands. Hiti 1 til 14 stig, mildast sunnan heiða. SJÁ SÍÐU 24 Rjómablíða í Reykjavík Íbúar höfuð borgar svæðisins hafa nú í marga daga í röð notið mikillar sumar blíðu. Ekkert lát varð á í gær og þegar ljós myndarar blaðsins fóru um bæinn mátti sjá full orðna og börn njóta sín í góða veðrinu. Spár gera ráð fyrir áframhaldandi veðurblíðu í borginni í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Erum með mikið úrval af allskonar bílaverkfærum á frábæru verði! ViAir 12V loftdælur í miklu úvali. Hleðslutæki 12V 6A 6T Búkkar 605mm Par Jeppatjakkur 2.25t 52cm. Omega Viðgerðarkollur 4.995 9.999 17.995 7.495 Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Verkfæralagerinn STJÓRNSÝSLA Skjálfandi sund- krakkar jafnt sem fullorðið fólk í vatnsleikfimi kvarta sáran undan kulda í innisundlauginni í Mýrinni í Garðabæ. Guðríður Jóna Örlygsdótt- ir íþróttakennari, sem hefur sérhæft sig í þjálfun fullorðinna einstaklinga í vatnsleikfimi, biðlar til bæjaryfir- valda að ráðast í úrbætur á lauginni því kúnnar hennar flýi nú kuldann. Yfirvöld í bænum segja að verið sé að vinna að lausn vandans með hönnun og endurnýjun á loftræstisamstæðu sundlaugarinnar. Erindi Guðríðar Jónu var lagt fram á fundi bæjarráðs Garðabæjar á þriðjudag. Þar segist hún hafa verið með starfsemi í Mýrinni frá árinu 2007 við að kenna fólki vatns- leikfimi. Fólki með hreyfiskerðingu eða minnkandi getu til þjálfunar vegna stoðkerfisverkja, gigtarsjúk- dóma eða slysa. Hitastig laugar og loftræsting í húsinu hafi þó verið versnandi vandamál. Í byrjun var hún í kringum 31-31,5 gráður sem þyki mikið til þjálfunar en á móti hafi komið að loftið var frekar kalt og rakt svo það jafnaðist út. „Á síðastliðnum árum hefur laug- in verið kæld töluvert, á sama tíma hefur loftræstingin ekki verið lag- færð til að koma til móts við laugar- hitann og andrúmsloftið hefur farið versnandi. Mælitæki á vegg sund- laugar sýna að vatnið sé á bilinu 29,2- 29,6 en með vatnsmæli ofan í laug mælist raunhiti laugarinnar núna um 28 gráður. Úr loftinu kemur svo ískaldur, rakur gustur, sem er veru- lega óþægilegt fyrir axlir og brjóst- kassa sem standa upp úr vatninu. Það er auðvitað augljóst að þetta er ekki einungis slæmt fyrir fólk, held- ur er þetta ekki gott fyrir húsnæðið sjálft, of mikill raki leiðir auðvitað til margvíslegra vandamála,“ segir Guðríður í erindi sínu. Þar kveðst hún hafa fengið þau svör að lítið sé hægt að gera. Loftræstikerfið anni ekki því sem það á að gera. Yfir- maður sunddeildar Stjörnunnar hafi einnig verið henni sammála um að úrbóta væri þörf og það fyrir löngu. „Yngstu iðkendurnir hjá sund- deildinni eru oft skjálfandi og kaldir meðan á æfingum stendur þannig að ánægjan af sundiðkun verður ekki sem skyldi. Íþróttakennarar skólanna hafa einnig lengi kvartað undan lélegum loftgæðum, raki í sundlaugarsalnum er allt of mikill og loftið þungt. Búningsklefarnir eru kaldir og óþægilegt að koma þar inn eftir veruna í sundlauginni. Þetta ástand hefur farið versnandi nú seinnipart vetrar. Aldrei fyrr hef ég heyrt jafn margar kvartanir um kulda og óþægindi og því miður hafa fjölmargir hætt í þjálfun hjá mér vegna þessara aðstæðna,“ segir Guðríður sem kveðst hafa fengið þær upplýsingar að Starfsendurhæfingin Virk, sem hún hafi átt í samstarfi við, sé farin að fækka verulega beiðnum til hennar vegna kuldans. „Ég veit að allir helstu fræðingar bæjarins á þessu sviði vita af vanda- málinu og hafa gert í mörg ár. Með þessu bréfi vil ég hvetja til þess að varanlegar útbætur verði gerðar sem allra fyrst.“ Bæjarráð færir til bókar á fundi sínum svör bæjarverkfræðings sem boðar endurnýjun á búnaði. mikael@frettabladid.is Iðkendur skjálfa í of kaldri innisundlaug Íþróttakennari segir innilaug í Garðabæ svo kalda og loftræstingu svo slæma að þáttakendur í vatnsleikfimi flýi nepjuna. Kvartað undan því að yngstu sundiðkendur Stjörnunnnar skjálfi á æfingum. Bærinn boðar úrbætur. Sundgestir hafa kvartað undan hitastiginu í kennslulauginni í Mýrinni og loftræstingu. Þessar létu þó engan bilbug á sér finna. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Yngstu iðkendurnir hjá sunddeildinni eru oft skjálfandi og kaldir meðan á æfingum stendur. Guðríður Jóna Örlygsdóttir, íþróttakennari STJÓRNMÁL Árlegur sumarfundur ríkisstjórnarinnar verður haldinn í Mývatnssveit um miðjan júní – að því gefnu að þingið hafi lokið störf- um. Sumarfundirnir eru haldnir á landsbyggðinni en í fyrra fundaði stjórnin á Snæfellsnesi og hitti við það tækifæri sveitarstjórnarmenn á svæðinu. Sveitarfélögum á Eyþings- svæðinu í nágrenni Mývatns hefur verið gert viðvart um fyrirhugaða komu stjórnarinnar. Heimildir blaðsins herma að tvær grímur séu þegar farnar að renna á ráðherra í ríkisstjórn. Mögulega þurfi að blása fundinn af vegna tafa sem eru að verða áþinglokum. – aá Málþóf gæti eyðilagt Mývatnsferð Katrín Jakobs- dóttir, forsætis- ráðherra. DÓMSMÁL Helgi Steinarsson og Brynjar Guðmundsson eiga yfir höfði sér þunga dóma fyrir að hafa f lutt með sér mikið magn af kóka- íni til borgarinnar Melbourne í Ástralíu í nóvember síðastliðnum. Þeir játuðu sök fyrir dómi í gær þar sem dómari málsins sagði þá aðeins tannhjól í gangvirki alþjóðlegra glæpasamtaka. Ástralski f jölmiðillinn Blue Mountains Gazette greinir frá þessu í gær. Brynjar, sem er 26 ára, var handtekinn á f lugvellinum í Melbourne í byrjun nóvember eftir að tollverðir fundu 2,1 kíló af kókaíni í tösku hans. Söluandvirði efnisins er metið á 145 milljónir íslenskra króna. Rannsókn leiddi í ljós að ferða- bókanir Brynjars voru nánast sam- hljóða bókunum annars Íslendings sem hafði komið til borgarinnar nokkrum dögum fyrr, Helga Stein- arssonar sem er þrítugur. Lögregla handtók Helga á hóteli í borginni og fundust 1,5 kíló af hreinu kókaíni í herberginu sem er metið á um 103 milljónir króna. John Carmody héraðsdómari sagði í samtali við ástralska fjöl- miðla að það yrði sífellt algengara að ungt menntafólk af góðum heimilum væri notað til að smygla fíkniefnum. Fjölskyldur beggja mannanna voru viðstaddar réttarhöld yfir þeim í gær. Þeir játuðu sök. Dómur hefur enn ekki verið kveðinn upp en Brynjar gæti átt yfir höfði sér lífstíðarfangelsisdóm. Helgi allt að 25 ár. Verjandi Brynjars segir hann hafa tekið að sér að gerast burðardýr til að greiða fíkniefnaskuld upp á 1,7 milljónir króna. Verjandi Helga segir svipaða sögu en Helgi hafði þá safnað upp um helmingi lægri skuld aðallega til að greiða fyrir fíkniefna- notkun kærustu sinnar. – ókp Gætu átt þunga dóma yfir höfði sér í Ástralíu 3 0 . M A Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 3 0 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :5 4 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 2 1 -E 3 4 0 2 3 2 1 -E 2 0 4 2 3 2 1 -E 0 C 8 2 3 2 1 -D F 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 6 4 s _ 2 9 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.