Fréttablaðið - 30.05.2019, Qupperneq 44
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Gísli Guðmundsson
húsasmíðameistari,
Bergsmára 13, Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Lindakirkju í
Kópavogi mánudaginn 3. júní kl. 13.
Sólveig Margrét Ásmundsdóttir
Ásmundur Óli Gíslason
Aron Freyr Gíslason Katla Sif Friðriksdóttir
Hafdís Gerður Gísladóttir Bjartmar Ingi Sigurðsson
Lilja Björg Gísladóttir Jón Baldvin Jónsson
Erla Guðrún Gísladóttir Finnur Dellsén
Guðmundur Garðar Gíslason
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, systir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Sigurbjörg G. Karlsdóttir
lést að Hrafnistu Ísafold Garðabæ
sunnudaginn 26. maí. Útför hennar
fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
miðvikudaginn 12. júní klukkan 13.
Guðrún Björg Einarsdóttir
Hera Ósk Einarsdóttir
Þorsteinn Pálmar Einarsson
og aðrir aðstandendur.
Elskulegur eiginmaður minn
og besti vinur, faðir okkar,
tengdafaðir, besti afi og bróðir,
Albert Sigurjónsson
Ásvöllum 2, Grindavík,
lést í faðmi stórfjölskyldunnar
miðvikudaginn 22. maí. Útförin fer fram
frá Grindavíkurkirkju, mánudaginn 3. júní kl. 14.
Svanhvít Daðey Pálsdóttir
Þórkatla Sif Albertsdóttir Þorleifur Ólafsson
Þórey Tea, Albert, Jóhann Daði, Sif
Margrét Albertsdóttir Steinn Freyr Þorleifsson
Þorleifur Freyr
Sigurpáll Albertsson Katarzyna Kujawa
Hallgrímur Sigurjónsson og Rúnar Sigurjónsson
Mark mið Vöku er að styrkja þjóðlagasenuna á Íslandi og deila tónum og sporum,“ segir Linus Orri Gunnarsson sem
er talsmaður þjóðlagahelgarinnar
Vöku sem haldin verður í Dósaverk-
smiðjunni, Borgartúni 1 í Reykjavík, og
hefst í kvöld. Tvennir tónleikar verða
haldnir, í kvöld og annað kvöld, þar
sem fram koma: Ragnheiður Gröndal,
Skuggamyndir frá Býsans, Voces Thules,
Umbra, Funi, Mandólín og Gýa.
Sjálfur er Linus í síðasttalda bandinu.
„Ég hef stússast í alls konar músík og
held ég geti spilað hvaða tónlist sem er
en lenti alveg óvart í þjóðlagatónlistinni
og það er gaman, menningin í kringum
hana er svo lýðræðisleg, maður bara
kemur og spilar. Stemningin snýst ekki
um að verða frægur, meika’ða, komast
á samning hjá plötufyrirtæki eða neitt
svoleiðis. Allt snýst bara um tónlistina
og hvenær við getum hist og spilað.“
Linus telur þjóðlagahefðina á Íslandi
lítið áberandi miðað við í löndunum í
kringum okkur. „Hér hefur aldrei verið
sú hljóðfærahefð sem víða er. Sterkasta
hefðin okkar er kringum kvæðin og
rímurnar og hún rétt heldur lífsmarki.
Við sem höfum ánetjast henni grínumst
stundum með það að Ísland ætti að vera
miðstöð fyrir þjóðlagatónlist Norður-
Atlantshafslandanna, það mundi passa
svo vel landfræðilega að við héldum
utan um tónlistararf Norður-Ameríku
og Norður-Evrópu.“
Gýa, hópurinn sem Linus Orri er í
hittist vikulega og spilar á Bar-Ananas
á Klapparstíg. „Við höfum gert það
næstum í fjögur ár og það er opið hús.
Þar spilum við mikið af írskri tónlist. En
á Vöku annað kvöld erum við í rauninni
að koma í fyrsta skipti opinberlega fram
og frumflytja það sem við höfum verið
að búa til og það er rammíslenskt. Ég hef
verið að taka alls konar stef úr íslenskri
sönghefð og búa til hljóðfæratónlist
úr því. Meðal þess sem ég hef notað er
stemma úr Hænsna-Þórisrímum og líka
sönglag úr Melódíu sem er handrit frá
1666. Við hlökkum til að kynna þessa
afurð. Það er alltaf áhugavert þegar
maður fær strax tilfinninguna fyrir því
að eitthvað sé íslenskt, að það sé þannig
bragur á því.“
Vaka stendur sem sagt í þrjá daga.
„Þess vegna köllum við þetta þjóðlaga-
helgi en ekki hátíð,“ segir Linus Orri.
„Við fengum inni í tungumálaskólan-
um Dósaverksmiðjunni. Hljómsveitin
Mandólín hefur haldið tvenna tónleika
þar og gengið vel. Það sem ég er spennt-
astur fyrir um helgina er dansinn. Því að
á laugardeginum eru tvö dansnámskeið
og þá getur fólk lært sporin og eftir tón-
leikana um kvöldið verður spilað fyrir
dansi svo þá gefst því tækifæri til að
spreyta sig og nýta þekkinguna.“ Hann
segir stemninguna um helgina verða
heimilislega. „Það er meira að segja
kvöldmatur fyrir tónleikana og ef ég
mætti ráða mundum við öll bara gista
þarna! Ég vil að þetta sé þannig að fólk
komi í dag og verði fram á sunnudag!“
Fram að þessu hefur Vaka verið
haldin á Akureyri og Linus segist eiga
góðar minningar þaðan, meðal annars
af stuðinu á tjaldstæðinu. „En við reyn-
um að hafa prógrammið okkar þannig
að fólk geti mætt og verið alla helgina.“
Dagskrána í heild sinni má kynna sér á
vakareykjavik.is. gun@frettabladid.is
Deila tónum og sporum
Dillandi tónlist og fjörugir dansar munu fylla gamla niðursuðuverksmiðju nú þegar
þjóðlagahelgin Vaka verður haldin í fimmta sinn, en í fyrsta skipti sunnan heiða.
Linus Orri hlakkar til að læra dans. Á Vöku verða evrópskir þjóðdansar og íslenskir sagnadansar. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Söngkonan Ragnheiður Gröndal er
meðal þeirra sem koma fram á Vöku.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
1768 Eggert Ólafsson, skáld og varalögmaður, ferst á Breiðafirði
ásamt konu sinni og sex öðrum á leið sinni úr vetursetu í Sauð-
lauksdal.
1829 Jónas Hallgrímsson flytur prófræðu sína í Bessastaðakirkju.
1836 Paul Gaimard kemur með leiðangur sinn til Reykjavíkur sem
fer víða um land. Einn leiðangursmanna, August Mayer, teiknar
fjölda mynda hérlendis.
1851 Jón Sigurðsson er kosinn forseti Kaupmannahafnardeildar
Hins íslenska bókmenntafélags og gegnir þeirri stöðu til dauðadags.
Af því er hann nefndur Jón forseti.
1894 Eldey er klifin í fyrsta
skipti. Þar er að verki Eldeyjar-
Hjalti (Hjalti Jónsson) og tveir
aðrir Vestmannaeyingar. Þetta er
hættuför hin mesta.
1919 Fyrsti íslenski ríkisráðs-
fundurinn er haldinn í Fredens-
borgarhöll í Danmörku.
1940 Róstur verða eftir knatt-
spyrnuleik milli Fram og Víkings
í Reykjavík. Þrjátíu manns eru
handteknir.
1962 HM í knattspyrnu hefst í
Síle.
1977 Kvikmynd Hrafns Gunn-
laugssonar, Blóðrautt sólarlag, er frumsýnd. Deilur verða um hana.
1979 Brúðubíllinn hefur starfsemi sína í Reykjavík.
1984 Alþingismönnum er fjölgað úr 60 í 63 á Íslandi og kosninga-
aldur lækkaður úr 20 árum í 18 ár.
1996 Hoover-stofnunin lætur frá sér bjartsýnisskýrslu þar sem
ályktað er að hnattræn hlýnun muni draga úr dánartíðni í Norður-
Ameríku.
Merkisatburðir
Vinnuhelgi er fram undan hjá sjálf boðaliðum í Selárdal í Arnarfirði. Hafist verður handa
strax í dag við að lagfæra lóð og hús
listamannsins Samúels Jónssonar
(1884-1969) og gera það heimilislegt.
Söfnun á heimilistækjum í húsið stend-
ur yfir á fésbók, vöff lujárni, brauðrist,
pottum, pönnum, hraðsuðukatli, hnífa-
pörum, bollum og tilheyrandi. Haldið
verður áfram næstu daga við tiltekt og
f leiri komast að, en þeir sem vilja mæta
eru varaðir við að Breiðafjarðarferjan
Baldur verður ekki í förum á sunnu-
daginn. Frí gisting og fæði er í boði í
Selárdal en hafa þarf samband við Ólaf
J. Engilbertsson í síma 698-7533. – gun
Vinnuhelgi í Selárdal í Arnarfirði
Listaverk-
unum hefur
verið gert
til góða
og allt að
komast í
topplag.
3 0 . M A Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R22 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
3
0
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:5
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
2
1
-F
B
F
0
2
3
2
1
-F
A
B
4
2
3
2
1
-F
9
7
8
2
3
2
1
-F
8
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
2
9
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K