Fréttablaðið - 20.07.2019, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 20.07.2019, Blaðsíða 2
Veður Norðaustan 5-13 m/s. Súld eða rigning með köflum norðan- og austanlands, en skýjað með köflum og þurrt að mestu sunnan- og vestanlands. Heldur hægari vindur. SJÁ SÍÐU 32 Götubitar á Miðbakka Millimál í fernu VÍTAMÍN & STEINEFNI PRÓTEIN GLÚTENS LAKTÓSAORKA ÁN ÁN STJÓRNSÝSLA Seðlabankinn telur mikilvægt að fá úrlausn dómstóla um aðgang að upplýsingum um mál- efni starfsmanna ríkisins og túlkun á ákvæði upplýsingalaga þar að lútandi, meðal annars með vísan til reikulla úrskurða úrskurðarnefndar um upplýsingamál um ákvæðið. Þetta kemur fram í athugasemd frá Seðlabankanum til Fréttablaðs- ins vegna umfjöllunar um náms- styrki bankans til starfsmanns og til frekari skýringar á kröfu bank- ans um frestun á réttaráhrifum úrskurðar um afhendingu samnings við fyrrverandi starfsmann. Í erindi bankans er vísað til þeirr- ar meginreglu í upplýsingalögum að réttur til aðgangs að upplýsingum taki almennt ekki til umsókna um störf, framgang í starfi eða starfs- sambandið að öðru leyti. Frá þeirri reglu séu undanþágur sem lúti að upplýsingum um umsækjendur starfa hjá hinu opinbera, nöfn opin- berra starfsmanna og starfssvið, föst launakjör annarra starfsmanna en æðstu stjórnenda, launakjör æðstu stjórnenda og áherslu og kröfur um árangur í starfi æðstu stjórnenda sem fram koma í ráðningarsamningi eða öðrum gögnum, og upplýsingar um menntun þeirra. Að mati bankans taka framan- greindar undanþágur ekki til mál- efna fyrrverandi framkvæmda- stjóra gjaldeyriseftirlitsins. Vegna hagsmuna bankans, annarra opin- berra aðila og starfsmanna sem kunni að verða skertir sé aðgangur veittur að upplýsingum sem varða starfsamband þeirra, sé mikilvægt að fá úrskurð dómstóla um túlkun ákvæðisins. Athugasemd bankans í heild er á frettabladid.is. – aá / sjá síðu 4 Dómstóll túlki ákvæði um málefni starfsfólks VIÐSKIPTI „Þetta eru ákveðin kafla- skil þegar vélin fer frá Íslandi. Það breytir náttúrulega stöðunni tals- vert,“ segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, en Airbus-þota bandaríska félagsins ALC hélt af landi brott í gær. Vélin hafði þá verið kyrrsett á Kef lavíkurf lugvelli frá því í lok mars sem trygging fyrir ógreiddum skuldum WOW við Isavia upp á um tvo milljarða króna. Sveinbjörn segir stöðu Isavia til að innheimta skuld- ina eiga eftir að skýrast en hún hafi veikst. „Þá stöndum við bara frammi fyrir því að þurfa að afskrifa þessa fjár- muni. Það mun ekki hafa einhver afgerandi áhrif á rekstur Isavia til framtíðar. Við stöndum fjárhagslega mjög vel og þolum það vel að afskrifa þessa fjármuni,“ segir Sveinbjörn. Vissulega sé um risastóra upphæð að ræða en það skipti miklu máli að þarna sé ekki um fjármuni að ræða sem Isavia þurfi að reiða fram heldur einfaldlega tekjur sem ekki náist að innheimta. Ekki megi heldur gleyma því að á síðustu níu mánuðunum í lífi WOW sem oft séu kallaðir hinir krítísku mánuðir hafi Isavia haft óf lug- tengdar tekjur af farþegum WOW. „Við erum búin að reikna það út að það eru líka tveir milljarðar. Það skilar sér inn á bankareikninginn.“ Aðspurður segir Sveinbjörn að hægt sé að draga lærdóma af mál- inu. „Ég efast um það að við munum nokkurn tímann aftur fara með van- skil upp í þessa tölu. Ég held líka að við munum ekki aftur láta líða svona langan tíma þangað til við grípum inn í.“ Sveinbjörn segir að miðað við þær upplýsingar sem legið hafi fyrir á hverjum tíma myndi hann taka sömu ákvörðun aftur. „Það þarf að setja allt þetta mál í stærra sam- hengi. Þetta er of boðslega langur tími sem líður frá því að WOW air byrjar sitt fjármögnunarverkefni þangað til félagið fer endanlega á hliðina.“ Allar ákvarðanir hafi verið teknar með upplýstum hætti og verið við- skiptalegs eðlis. „Við sjáum bara áhrifin hérna þegar WOW air fellur. Það er mjög einfalt fyrir okkur að réttlæta það að þessar ákvarðanir voru viðskiptalega réttar.“ Það hafi verið margir kröfuhafar í kringum WOW sem hafi einhvern veginn verið samstiga um það að verða ekki þúfan sem velti hlassinu. Sveinbjörn tók við starfi forstjóra Isavia fyrir rúmum mánuði. Þá hafði hann gegnt starfinu tímabundið ásamt Elínu Árnadóttur aðstoðar- forstjóra frá því að Björn Óli Hauks- son lét af störfum um miðjan apríl. Áður var Sveinbjörn framkvæmda- stjóri fjármálasviðs Isavia. „Ég ætla alls ekkert að skafa utan af því að ég var upp fyrir haus í öllum þessum ákvörðunum frá a til ö. Ég held alls ekki að það sé hægt að kalla einhvern einn eða einhverja hópa til einhverrar sérstakrar ábyrgðar. Ég tel enn þá að við höfum verið réttu megin við strikið.“ sighvatur@frettabladid.is Forstjóri segir einfalt að réttlæta ákvarðanir Ákveðin kaflaskil hafa orðið með því að vél ALC er farin úr landi að sögn for- stjóra Isavia. Staðan til að innheimta skuld WOW hafi versnað. Hægt sé að draga lærdóm af málinu en ekki sé hægt að kalla einstaklinga til sérstakrar ábyrgðar. Airbus-þota ALC yfirgefur Keflavíkurflugvöll í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Þá stöndum við bara frammi fyrir því að þurfa að afskrifa þessa fjármuni. Sveinbjörn Ind- riðason, forstjóri Isavia Fyrsta götubitahátíðin á Íslandi – Street Food Festival – er haldin um helgina á Miðbakkanum í Reykjavík. Þar fer fram keppnin „Iceland Street Food Award“. Sigurvegarinn keppir síðan ytra fyrir Ísland. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Fleiri myndir frá Miðbakka er að finna á +Plússíðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Frétta- blaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS ÍRAN Breska olíu f lutninga skipið Stena Impero var í gær tekið yfir af íranska hernum á Persaflóa. CNN segir að olíuflutningaskipið Mezdar frá Líberíu hafi einnig verið tekið. Segir í frétt BBC að Íranar beri því við að áhöfnin haf brotið þrjár reglur við siglingu í land helgi Írans. Breska þjóðar öryggis ráðið hefur verið kallað saman og er at vikið talið graf alvar legt. – oæg Íranar hertóku breskt olíuskip Stena Impero á siglingu. 2 0 . J Ú L Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 0 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 2 F B 0 7 2 s _ P 0 7 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 7 3 -C B 9 4 2 3 7 3 -C A 5 8 2 3 7 3 -C 9 1 C 2 3 7 3 -C 7 E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 7 2 s _ 1 9 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.