Fréttablaðið - 20.07.2019, Side 45
Á Kjarvalsstöðum er vinsælt kaffihús. MYND/SIGTRYGGURARI
Verk Williams Morris eru vel þekkt í dag því enn er verið að framleiða ýmsa
muni sem eru skreyttir með munstrum eftir hann. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Á Kjarvalsstöðum er hálfgert blómaþema um þessar mundir. MYND/SIGTRYGGUR ARI
Á Listasafni Reykjavíkur er hægt að skoða mikinn fjölda glæsilegra mál-
verka. Í einum salnum eru glæsileg verk eftir Erró. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Árið 2019 er tileinkað list í almannarými og því hefur safnið lagt áherslu á að vekja athygli á þeim fjölmörgu lista-
verkum sem eru í borginni. Um alla borg er hægt að skoða falleg listaverk sem gleðja. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Á Ásmundarsafni eru verk Ásmundar til sýnis ásamt verkum eftir starfandi listamenn sem eiga verk í borgarlandinu.
Þar er nú verið að sýna upprunalegar skissur og afsteypur af verkum í borgarlandinu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
1820 og var alþýðulistamaður,
f lakkari og utangarðsmaður sem
fór sínar eigin leiðir. Það er í raun
ótrúlegt hvernig honum tókst að
varðveita verk sín, því hann virðist
hvergi hafa átt heima, blessaður.
Við hliðina á Sölva er sýning á
verkum eftir breskan samtíma-
mann hans, William Morris.
Hans verk eru vel þekkt í dag
því enn er verið að framleiða til
dæmis húsbúnað og fatnað sem
er skreyttur með munstrum eftir
hann, til dæmis flísar, veggfóður,
slæður, regnhlífar og fleira. H&M
gaf líka nýlega út línu sem var
undir áhrifum hans,“ segir Áslaug.
„Morris lærði íslensku og kom
hingað árin 1871 og 1873. Hann
þýddi Íslendingasögurnar og talið
er að þannig hafi J.R.R. Tolkien
kynnst þeim.
Þetta eru allt mjög áhugaverðar
sýningar og það var einn gestur
sem sagði „ég held að þið gerið
ykkur ekki grein fyrir hvað Kjar-
valsstaðir eru mikill „blockbuster“
núna!“
Hægt að sjá hljóð og Erró
„Í Hafnarhúsinu er verið að sýna
verk eftir Erró sem eru sívinsæl,
ekki síst meðal erlendra ferða-
manna. Nú er verið að sýna meðal
annars Kínversku seríuna, sem
kom honum á kortið erlendis,“
segir Áslaug. „Hann málaði fullt
af myndum af Maó að ferðast um
heiminn, en í raun fór Maó aldrei
út fyrir Kína nema í tvær ferðir til
Moskvu. Kínverjar hafa sérstak-
lega gaman af þessari sýningu.
Í aðalsalnum er verk eftir Finn-
boga Pétursson, sem hefur unnið
í myndlist í 40 ár, mikið með
hljóðverk. Hann byggði stóra laug
og undir henni eru þrír öflugir
hátalarar sem gefa frá sér tíðni sem
myndar gárur á vatninu, þannig að
maður sér hljóðið, ef svo má segja,“
segir Áslaug. „Salurinn er myrkv-
aður og ljóskastarar lýsa á vatnið
þannig að gárurnar endurspeglast
á veggjunum. Þetta er rosalega
flott og það er gaman að dvelja í
þessum sal. Það er líka gaman að
velta fyrir sér hvað myndlist getur
verið fjölbreytt.
Í D-sal eru svo sýningar lista-
manna sem hafa ekki áður sýnt í
opinberu safni, en það er yfirleitt
ungt fólk. Lengi vel hafa starfs-
menn valið listamenn til að sýna
þarna en í fyrra auglýstum við
eftir hugmyndum og það komu
130 umsóknir frá starfandi lista-
fólki sem er á þessum stað í lífinu,
sem sýnir hvað það er mikil gróska
í listalífinu hér. Við fengum alveg
sjokk,“ segir Áslaug og hlær.
Svo er stór sýning á ýmsum
verkum úr safninu okkar. Sýning-
arnar eru þematískar og núna er
þemað tilvist mannsins, svo þar
eru verk eftir marga ólíka lista-
menn sem fjalla um mannlegt eðli
hver á sinn hátt,“ segir Áslaug.
Alltaf eitthvað um að vera
„Það er heilmikil dagskrá í hverri
viku og á heimasíðunni okkar
eru allir viðburðir skráðir,“ segir
Áslaug. „Við héldum nýlega nám-
skeið fyrir börn og það er reglu-
lega boðið upp á leiðsagnir á bæði
íslensku og ensku, stundum frá
listamönnum. Það er alltaf eitt-
hvað um að vera.
Á hverju safni er verslun og
fólk getur stutt við myndlist og
listastarf með því að versla þar.
Við höfum fengið mjög góðar
viðtökur við vörum sem tengjast
William Morris-sýningunni á
Kjarvalsstöðum. Slæðurnar okkar
seldust upp á tveimur dögum,“
segir Áslaug. „Svo erum við líka
með fullt af skemmtilegu dóti
fyrir krakka.
Listasafnið selur þrjár gerðir
af árskortum, en það vinsælasta
leyfir fólki að taka með sér gest.
Það kostar 6.500 krónur og veitir
aðgang að öllum leiðsögnum og
afslátt í búðunum og á kaffihúsinu
á Kjarvalsstöðum,“ segir Áslaug.
„Það er ekki lengur frítt fyrir eldri
borgara, en þeir þurfa bara að
kaupa árskort á 1.800 krónur einu
sinni og svo er það endurnýjað
endurgjaldslaust.“
Það er hægt að fá allar nánari
upplýsingar á heimasíðunni
www.listasafnreykjavikur.is og
Listasafn Reykjavíkur er að sjálf-
sögðu að finna bæði á Facebook
og á Instagram.
XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXKYNNINGARBLAÐ 7 L AU G A R DAG U R 2 0 . J Ú L Í 2 0 1 9 SÖFN Á ÍSLANDI
2
0
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
7
4
-1
A
9
4
2
3
7
4
-1
9
5
8
2
3
7
4
-1
8
1
C
2
3
7
4
-1
6
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
7
2
s
_
1
9
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K