Fréttablaðið - 20.07.2019, Blaðsíða 22
Skilja áhyggjurnar
eftir í sjónum
Þær stunda stífar æfingar þessa dagana og stefna á tveggja klukkutíma sund á næstunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Marglytturnar eru mættar í Naut-hólsvík til að æfa. Þær eru sex talsins og æfa stíft þessa dag-
ana fyrir boðsundið yfir Ermarsund
í september og á næstunni ætla þær
allar að taka tveggja tíma langa
sund æfingu í sjónum. Ermarsundið,
sem stundum er kallað „Mount Eve-
rest sjósundfólks“, er 34 km leið á
milli borganna Dover í Englandi og
Cap Gris í Frakklandi.
Sundhópurinn samanstendur
af miklum afrekskonum sem allar
stunda fjölbreytta útivist og íþróttir
í náttúrunni.
Marglytturnar eru Birna Braga-
dóttir, ráðgjafi hjá Capacent og
Íslandsmeistari í 1.000 m sjósundi,
Sigrún Þ. Geirsdóttir sem er eina
íslenska konan sem hefur synt ein
yfir Ermarsundið og reyndar líka
fyrsti Íslendingurinn sem gerði það
í fyrstu tilraun, Brynhildur Ólafs-
dóttir fjallaleiðsögumaður, Sigur-
laug María Jónsdóttir sundkona,
Þórey Vilhjálmsdóttir, útivistar-
kona og ráðgjafi hjá Capacent, og
Halldóra Gyða Matthíasdóttir þrí-
þrautarkona. Fimm kvennanna eru
landvættir, þær Þórey, Sigurlaug
María, Brynhildur, Halldóra og
Birna. Landvættirnar er fjölþrauta-
félag en til að geta orðið vættur þarf
að ganga 50 km skíðagöngu á Ísa-
firði, hlaupa 32,7 km frá Dettifossi í
Ásbyrgi, synda 2,5 km í Urriðavatni
og hjóla 60 km frá Hafnarfirði, svo-
kallaðan Bláalónshring.
Birna, þú varðst Íslandsmeistari
í sjósundi í fyrra, hefurðu æft lengi?
Birna: Ég byrjaði að æfa fyrir
þremur árum og varð nú eiginlega
alveg óvart Íslandsmeistari í sjó-
sundi. Fyrir tveimur árum varð ég
í öðru sæti og kom sjálfri mér ræki-
lega á óvart. Mér finnst ég frekar
vera Íslandsmeistari í þrautseigju
því ég neita að gefast upp.
Það er ótrúlega skammur tími
síðan. Hvað með ykkur hinar?
Þórey: Ég byrjaði líka að æfa sjó-
sund fyrir þremur árum, ég held
það eigi við um okkur flestar nema
Sigrúnu og Sillu sem eru meistar-
arnir í hópnum. Sigrún er auð-
vitað almeistari því hún hefur synt
Ermar sundið ein.
Silla: Ég byrjaði fyrir fjórum mán-
uðum að æfa sjósund en er mikil
sundkona, ég byrjaði sex ára að æfa
sund og hef synt mikið í vötnum. Ég
er fædd og uppalin í Lúxemborg og
æfði þar.
Halldóra: Ég hef heldur ekkert æft
sund að ráði og hef einbeitt mér að
öðrum íþróttagreinum hingað til, en
sund er partur af þríþrautinni og ég
hef að sjálfsögðu æft fyrir hana.
Sigrún: Ég lærði skriðsund fyrst
árið 2012, það er nú ekki lengra
síðan. Ég fór svo fyrsta boðsundið í
Marglytturnar
Birna Bragadóttir
er tvöfaldur land
vættur, land
vættaþjálfari
og silfurhafi á
Íslandsmeist
aramótinu
í 3.000 m
sjósundi 2017 og
Íslandsmeistari í 1.000 m
sjósundi 2018 og stundar einnig
hjólreiðar, allar skíðategundir,
náttúruhlaup og fjallgöngur.
Sigrún Þ. Geirsdóttir
er fyrsta og eina
íslenska konan
sem synt hefur
yfir Ermarsund
ein og fyrsti
Íslendingurinn
sem það gerði í
fyrstu tilraun. Að
auki hefur hún tvisvar
synt boðsund yfir Ermarsund og
mörg sjósund við Ísland.
Brynhildur Ólafsdóttir
er landvætta
þjálfari, fjalla
leiðsögumaður
og annar þátta
stjórnenda
sjónvarps
þáttanna
Úti á RÚV og
útvarpsþáttarins Útivarpsins
á Rás 2. Hún er á fjórða land
vættaári sem snýst um keppni
í skíðagöngu, fjallahjólreiðum,
vatnasundi og fjallahlaupi.
Sigurlaug María Jónsdóttir
er landvættur,
tvöfaldur
Laugavegs
hlaupari og
vann Urriða
vatnssundið
2017. Fyrir utan
það að synda
mikið þá stundar hún
náttúruhlaup, fjallgöngur og
svig og gönguskíði.
Halldóra Gyða Matthíasdóttir
hefur hlaupið 170
km utanvega
hlaup, farið
sjö utanvega
hlaup lengri
en 100 km, er
eina íslenska
konan sem hefur
klárað Mt. Esja Ultra
Iceland, sem eru 11 ferðir upp
að Steini, auk þess hefur hún
klárað fimm Ironmankeppnir og
nokkur maraþon.
Þórey Vilhjálmsdóttir
er tvöfaldur land
vættur og hefur
tekið þátt í
fjölda íþrótta
og útivistar
keppna. Hún
stundar
sjósund, fjalla
hlaup, fjalla og götu
hjólreiðar, allar skíðategundir og
fjallgöngur.
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
Sex afrekskonur
ætla að synda boð
sund yfir Ermar
sund í september.
Markmiðið með
sundinu er að vekja
athygli á áhrifum
plastmengunar
á lífríki sjávar en
ástand þess í Ermar
sundi er slæmt.
sjósundi yfir Ermarsund árið 2013
og svo aftur ári síðar. 2015 synti ég
ein yfir Ermarsund.
Hvað er það eiginlega við sjó-
sundið sem heillar ykkur?
Sigrún: Það er hreinlega bara eitt-
hvað yfirnáttúrulegt.
Þórey: Sjórinn er svo heilandi.
Að fara í nokkrar mínútur í sjósund
er eins og að fara á þriggja tíma
æfingu. Maður fær sömu líðanina á
eftir og skilur allar áhyggjur eftir í
sjónum. Ef maður er eitthvað leiður
eða þreyttur þá er langbest að fara
í sjóinn.
Og var fyrsta skiptið ekkert erfitt?
Að yfirstíga kuldann?
Birna: Jú, það var erfitt og mér
finnst alltaf erfitt að fara í sjóinn. En
það er hluti af þessu og er áskorun.
Þegar maður kemst yfir það og er
búinn að synda þá líður manni allt-
af eins og sigurvegara. Maður hefur
náð að sigrast á sjálfum sér.
Brynhildur: Þetta ræsir líkam-
ann, maður fyllist orku á fáeinum
mínútum. Þetta er bara dásamlegt.
En fyrsta skiptið hjá mér, áhrifin
voru svo rosaleg. Ég kom upp úr, ég
hafði bara rétt dýft mér ofan í og
fannst eins og húðin hefði skroppið
saman um eitt númer. Ég fann fyrir
auknum krafti í öllum líkamanum
og fannst ég þess vegna geta hlaupið
maraþon þegar ég kom upp úr,
maður sækir í þessi áhrif, aftur og
aftur.
Birna: Sumir spyrja hvort þetta sé
ekki eins og að fara í köldu pottana í
sundlaugunum. En það er alls ekki
hægt að líkja því saman. Í sjósundi
er maður með náttúrunni, í f læði.
Það er ekkert sem truflar og maður
hugsar aðeins um líðandi stund.
Hvernig varð þetta verkefni að
veruleika?
Þórey: Við vorum fjórar saman í
Landvættunum og þessi hugmynd
kviknaði fyrir tveimur árum. Við
vildum finna mestu naglana með
okkur og það var draumur að fá
Halldóru og Sigrúnu með. Við
hugsuðum með okkur, hvaða konur
munu alls ekki klikka, ekki hætta
við og eru bara eiturharðar og það
eru þær!
Sig rún: Ég þekkti Halldóru
aðeins en hinar lítið sem ekkert.
Ég er því að fara svolítið út fyrir
þægindarammann. Ég byrjaði árið
2008 að synda sjósund og þá var ég í
slæmu ásigkomulagi. Ég var við það
að verða offitusjúklingur og þurfti
að gera eitthvað róttækt í mínum
málum. Lífið tók stakkaskiptum,
það er svo margt sem lagast and-
lega og líkamlega við það að synda
sjósund. Þetta er svo heilsueflandi
sport, nokkrar mínútur í sjónum
eru eins og að öðlast nýtt líf. Þetta
gerir mikið fyrir mann og ég hvet
alla til þess að prófa. Ég bý í Mos-
fellsbæ og sumir spyrja: hvernig
nennir þú að keyra alla leiðina úr
Mosó til þess að synda nokkrar
mínútur í sjónum? Þetta er svarið.
Markmið Marglyttanna er fyrst
og fremst að komast yfir Ermarsund
og safna áheitum fyrir Bláa herinn
og þær vilja sporna gegn plastmeng-
un í sjónum. En líka að hvetja aðrar
konur til þess að lifa ævintýralegu
lífi og gefa sér tíma til að njóta úti-
vistar og náttúrunnar.
Þórey: Við erum allar konur
sem höfum ákveðið að fara óhefð-
bundnar leiðir. Við erum allar
að gera alls konar skemmtilegt,
hlaupa, synda, hjóla og fara á skíði.
Við leyfum okkur að gera þetta og
viljum hvetja aðrar konur til þess
að leyfa sér líka að lifa ævintýra-
legu lífi því það má! Við erum líka
að vekja athygli á umhverfismálum
og ætlum að styrkja Bláa herinn,
safna áheitum og vinna gegn plast-
mengun í sjónum.
Og hvers vegna heitið þið Mar-
glytturnar?
Birna: Við heitum eftir þeim
dýrum sem við hræðumst mest.
Þórey: Það er eiginlega okkar
helsti ótti að synda inn í torfu af
marglyttum.
Sigrún: Við eigum alveg örugg-
lega eftir að synda í gegnum heilu
ættarmótin.
Birna: Þær eru líka hér á Íslandi,
ég fékk bruna í gær.
Sigrún: En besta lækningin er
bara að vera í sjónum.
Þórey: Og vera bara einar af
þeim!
Sigrún: Í svona sundi þá þarf
maður að horfast í augu við óttann.
Það eru ekki bara marglytturnar,
það eru alls kyns önnur sjávardýr,
skipaumferð og myrkrið. Þetta er
leikur við hausinn. Það getur verið
mjög stressandi að taka sundsprett
í niðamyrkri en maður hefur gott
af því.
Brynhildur: Sjósundið gefur svo
marga möguleika, við viljum líta á
strandlengjuna við Ísland sem leik-
svæði.
Þórey: Og við viljum hafa strand-
lengjuna hreina til að geta synt þar.
2 0 . J Ú L Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R22 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
0
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
7
3
-E
4
4
4
2
3
7
3
-E
3
0
8
2
3
7
3
-E
1
C
C
2
3
7
3
-E
0
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
7
2
s
_
1
9
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K