Fréttablaðið - 20.07.2019, Qupperneq 43
Pakkhúsið að Vesturgötu 6
Í Pakkhúsinu eru að öllu jöfnu þrjár sýningar í gangi í
einu, fastasýning um sögu bæjarins, leikfangasýning
og þemasýning. Fastasýningin tekur á sögu Hafnar-
fjarðar og nágrennis í máli og myndum. Sagan er rakin
frá landnámi til okkar daga. Þar er meðal annars hægt
að fræðast um þýska og enska tímabilið, verslunar-
söguna, útgerðarsöguna, íþróttasöguna, hernámið
og kvikmyndahúsin. Leikfangasýningin er vinsæl og
þá sér í lagi meðal barna. Þar má skoða fjöldann allan
af leikföngum sem skipt er út reglulega þannig að
alltaf er eitthvað nýtt og ferskt að sjá. Þemasýningin
í forsal Pakkhússins þetta sumarið ber nafnið Í skjóli
klausturs og er henni ætlað að varpa ljósi á 80 ára sögu
Karmelklaustursins í Hafnarfirði og starfsemi þess
með mjög myndrænum og áhugaverðum hætti.
Sex frábærir
safnstaðir í miðbæ
Hafnarfjarðar
Byggðasafn Hafnarfjarðar er minja- og ljósmyndasafn bæjar-
ins. Safnið hefur það mikilvæga hlutverk að safna og skrásetja,
varðveita, forverja og rannsaka muni og minjar sem tengjast
menningarsögu svæðisins og kynna fyrir gestum og gangandi.
Starfsemi Byggðasafnsins nær til sex safnstaða.
Safnstaðir í miðbæ Hafnarfjarðar eru sex talsins, sjö með Hafnarborg.
Á Strandstígnum má finna ljós-
myndasýningu sem varpar ljósi á
dagleg störf og sögu fólksins sem
bæinn byggði.
Sívertsenshúsið að Vesturgötu 6
er elsta hús Hafnarfjarðar, byggt á árunum 1803-1805
af Bjarna Sívertsen. Hann var mikill athafnamaður
í Hafnarfirði á árunum 1794-1830 og rak þá útgerð,
verslun og skipasmíðastöð í bænum. Húsið hefur
verið gert upp í upprunalega mynd og er þar sýnt
hvernig yfirstéttarfjölskylda í Hafnarfirði bjó í byrjun
19. aldar, auk þess sem varpað er ljósi á merkilega sögu
Bjarna Sívertsens og fjölskyldu hans.
Bungalow að Vesturgötu 32
var byggt sem íbúðarhús
fyrir skosku bræðurna
Harry og Douglas Book-
less árið 1918. Þeir ráku
umfangsmikla útgerð frá
Hafnarfirði á fyrri hluta
20. aldar. Bræðurnir voru
áhrifamiklir og lang-
stærstu atvinnurekend-
urnir í bænum um árabil.
Eftir daga Bookless Bros
tók annað breskt fyrir-
tæki, Hellyer Bros Ltd frá Hull, við eignum fyrirtækis-
ins og rak blómlega útgerð um tíma. Húsið var opnað
eftir endurbætur árið 2008 og er þar að finna sýningu
um tímabil erlendu útgerðanna í Hafnarfirði á fyrri
hluta 20. aldar. Þar að auki má sjá þar stássstofu þeirra
Bookless-bræðra.
Beggubúð að Vesturgötu 6
er verslunarminjasafn Byggða-
safns Hafnarfjarðar. Húsið, sem
byggt var árið 1906, stóð áður við
aðalverslunargötu bæjarins. Húsið
var síðan flutt á lóð safnsins, gert
upp og opnað sem sýningahús árið
2008.
Siggubær að Kirkjuvegi 10
Erlendur Mar-
teinsson sjó-
maður byggði
Siggubæ árið
1902. Dóttir
hans, Sigríður
Erlendsdóttir,
var tíu ára
gömul þegar
hún flutti í
húsið og bjó
þar allt til
ársins 1978, þegar hún fluttist á
elli- og hjúkrunarheimilið Sól-
vang. Bær hennar er varðveittur
sem sýnishorn af heimili verka-
manns og sjómanns í Hafnarfirði
frá fyrri hluta 20. aldar, þar sem
hægt er að upplifa og kynnast því
hvernig alþýðufólk í bænum bjó á
þeim tíma.
Strandstígurinn
Á Strandstígnum meðfram höfninni í
Hafnarfirði er Byggðasafn Hafnarfjarðar
með sýningaraðstöðu fyrir ljósmynda-
safn sitt. Þar eru settar upp ljósmynda-
sýningar er varpa ljósi á dagleg störf og
sögu fólksins sem bæinn byggði.
Uppskrift að góðum degi!
Auðvelt er að skipuleggja heilan dag með fjölskyldu
eða vinum í Hafnarfirði. Tilvalið er að byrja daginn á
sundferð í Ásvallalaug eða Suðurbæjarlaug, skella sér
á kaffihús eða í bakarí að sundferð lokinni og upplifa
svo miðbæinn eða upplandið, hjólandi eða gangandi.
Það er hægur leikur að rölta safna á milli í miðbænum,
síðan eru álfar og ævintýri í Hellisgerði í aðeins fimm
mínútna göngufjarlægð. Einstakt útsýni yfir mynni
Hafnarfjarðar er frá Norðurbakkanum, hönnun,
sköpun og handverk er alls ráðandi við Flensborgar-
höfn í bland við lífið á höfninni, báta og skip af öllum
stærðum og gerðum.
Húsið var
opnað eftir
endurbætur árið
2008 og er þar að
finna sýningu um
tímabil erlendu
útgerðanna.
Sýnis-
horn
af heimili
verkamanns
og sjómanns í
Hafnarfirði.
KYNNINGARBLAÐ 5 L AU G A R DAG U R 2 0 . J Ú L Í 2 0 1 9 SÖFN Á ÍSLANDI
2
0
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
7
4
-1
5
A
4
2
3
7
4
-1
4
6
8
2
3
7
4
-1
3
2
C
2
3
7
4
-1
1
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
7
2
s
_
1
9
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K