Fréttablaðið - 20.07.2019, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 20.07.2019, Blaðsíða 16
ekki getað komið með. Aðeins einn komist fyrir í traktornum sjálfum og ekki sé heimilt að sitja í hjólhýsinu á meðan það er á ferð. „Ef hún hefði komið með mér og þurft að sitja hér í hjólhýsinu alla ferðina þá held ég að hjónabandið myndi ekki eiga langt eftir,“ segir Kurt og brosir. „Þetta er ferð fyrir einn mann.“ Hann segir jafn framt að hún sé fyllilega sátt við ferðalög Kurts. Dóttir hans er nú uppkomin, með mann og barn. Á hjólhýsinu eru fjölmargar aug­ lýsingar af ýmsum toga og Kurt segir það gert til að fjármagna ferð­ ina. Þarna má finna auglýsingar frá traktorafyrirtækjum og litlum fyrirtækjum frá hans heimabæ. Þá heldur hann einnig úti eigin heima­ síðu og heldur fyrirlestra. Þegar hann er ekki að keyra situr hann gjarnan við tölvuna í hjólhýsinu og skrifar um ferðina. Þegar við hittum Kurt við Nor­ ræna húsið var ferðalagið hálfnað. Hann áætlaði að það tæki fimm vikur. Hann kom til landsins á Seyðis firði með Norrænu og var búinn að keyra um allt Norður­ land, Vestfirði og Snæfellsnes. Auk þess keyrði hann Kjalveg þvert yfir landið. Vélarafl traktorsins er 61 hestafl og Kurt hefur komið honum upp í 31 kílómetra hraða á klukkustund. Yfirleitt keyrir hann þó ekki á nema 25. Venjulegir bílar með hjólhýsi geta angrað aðra ökumenn, hvað þá hægfara traktor. Verða ökumenn ekki pirraðir á þér? „Nei, ég hef ekki lent í neinum vandræðum,“ segir Kurt. „Öku­ menn sýna mér stundum puttann, en aldrei löngutöngina heldur aðeins þumalinn upp. Fólki finnst þetta skemmtilegt og öðruvísi. Það kemur til mín og vill fá að taka mynd eða bjóða mér heim til sín í kaffi. Allir hafa verið mjög vinsam­ legir, bæði heimamenn og aðrir erlendir ferðamenn. Mér hefur til dæmis verið boðið að gista í garð­ inum við heimahús á Akureyri og fékk að skoða laxeldisbú.“ Á ferð sinni um Skandinavíu lenti Kurt tvisvar í vandræðum með traktorinn en segir að það hafi verið hans eigin sök. Hér á Íslandi hefur ekkert komið upp á. Stærsta áfallið var þegar poki af sykri rifnaði og sturtaðist yfir allt eldhúsið í hjól­ hýsinu. „Vegirnir hérna eru góðir. Mun betri en heima í Danmörku þar sem stjórnvöld eru óviljug til að leggja mikla peninga í viðhald. Traktorinn minn hefur hins vegar enga fjöðrun eins og bílar hafa. Á malarvegum þarf ég því að fara hægt og eftir að ég keyrði Kjalveginn varð ég mjög þreyttur. Sá vegur er mjög erfiður og mér er sagt að fólk keyri hann ekki á venjulegum fólksbílum. En á honum er margt að sjá fyrir ferðamenn.“ Kurt hikar lengi þegar hann er spurður út í fegursta staðinn sem hann hafi séð. „Ég get ekki svarað þessari spurningu. Allir staðir eru fallegir á Íslandi. En ég er hrifnari af sveitinni en þéttbýlinu,“ segir hann. „Sjáðu til, ég er svolítið hræddur við marg­ menni.“ Verður þú ekki einmana? „Nei, alls ekki. Ég hitti marga og hringi reglulega í konuna. En ég get vel skilið að þessi ferðamáti sé ekki fyrir alla. Ef einmanaleiki myndi hrjá mig þá væri ég ekki að þessu.“ Hvert ætlar þú næst? „Það er ekki alveg ákveðið. Ég hef hugsað um að keyra allan hringinn í kringum Eystrasaltið. Einnig um að flytja traktorinn yfir Atlantshaf til Kanada, keyra þaðan vestur til Kyrrahafs, suður eftir strönd Banda­ ríkjanna og síðan í gegnum Suður­ ríkin til baka. Þetta er allt saman í skoðun,“ segir Kurt sem er greini­ lega hvergi nærri hættur. Eftir viðkomu í Reykjavík mun Kurt halda ótrauður áfram austur eftir Suðurlandi og austur til Seyð­ isfjarðar. Þar mun hann taka Nor­ rænu aftur heim til Danmerkur. VEGIRNIR HÉRNA ERU GÓÐIR. MUN BETRI EN HEIMA Í DANMÖRKU ÞAR SEM STJÓRNVÖLD ERU ÓVILJUG TIL AÐ LEGGJA MIKLA PENINGA Í VIÐ- HALD. TRAKTORINN MINN HEFUR HINS VEGAR ENGA FJÖÐRUN. Kurt er 67 ára gamall og nýlega kominn á eftirlaun. Hann er doktor í norrænum bókmenntum, starf­aði sem kennari og átti lítinn bóndabæ við bæinn Reersö á vesturhluta Sjálands. Kurt og eiginkona hans seldu nýlega býlið en héldu eftir trakt­ ornum, sem er finnskur af gerðinni Valmet. En hann hafa þau átt í þrjá­ tíu ár. En af hverju er Kurt að keyra um Ísland? „Ég veit ekkert af hverju mér datt þetta í hug,“ segir Kurt. „Ég fór í sams konar ferð fyrir tveimur árum. Þá keyrði ég norður eftir Svíþjóð og Noregi, allt til Norðurhafsins, og síðan suður eftir Finnlandi og með ferju yfir Eystrasaltið.“ Í þeirri ferð var Kurt boðið að heimsækja verksmiðjuna þar sem traktorinn hans var framleiddur. „Þegar ég var að keyra um Skand­ inavíu hugsaði ég með mér: Hvert næst? Af hverju ekki til Íslands?“ Kurt er ekki ókunnugur hér á landi. Fyrir um 25 árum kom Kurt ásamt eiginkonu sinni og dóttur og keyrði hringveginn, en á bíl. Þá kom hann hingað stuttlega fyrir átta árum þegar hann var á leiðinni til Grænlands í tengslum við bókar­ skrif. Kurt hefur skrifað alls átta bækur, þar af þrjár skáldsögur og nokkrar ævisögur. Kurt segir að eiginkonan hafi Viðfangsefnið er eldri maður frá Danmörku sem er að keyra um Ísland á traktor. Hjólhýsi Kurts er þakið litríkum auglýsingum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Enginn pirraður á Kurt Á þjóðvegum landsins hafa margir tekið eftir manni á traktor með áfast hjólhýsi. Þetta er hinn danski Kurt L. Frederiksen sem er að aka hringinn í kringum Ísland og upp um fjöll og firnindi. Fréttablaðið ræddi við Kurt um þetta uppátæki, bakgrunn hans og viðbrögð fólks á vegum úti. Kristinn Haukur Guðnason kristinnhaukur@frettabladid.is 2 0 . J Ú L Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R16 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð HELGIN 2 0 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 2 F B 0 7 2 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 7 3 -E 9 3 4 2 3 7 3 -E 7 F 8 2 3 7 3 -E 6 B C 2 3 7 3 -E 5 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 7 2 s _ 1 9 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.