Fréttablaðið - 20.07.2019, Síða 16
ekki getað komið með. Aðeins einn
komist fyrir í traktornum sjálfum og
ekki sé heimilt að sitja í hjólhýsinu
á meðan það er á ferð. „Ef hún hefði
komið með mér og þurft að sitja hér
í hjólhýsinu alla ferðina þá held ég að
hjónabandið myndi ekki eiga langt
eftir,“ segir Kurt og brosir. „Þetta er
ferð fyrir einn mann.“ Hann segir
jafn framt að hún sé fyllilega sátt
við ferðalög Kurts. Dóttir hans er nú
uppkomin, með mann og barn.
Á hjólhýsinu eru fjölmargar aug
lýsingar af ýmsum toga og Kurt
segir það gert til að fjármagna ferð
ina. Þarna má finna auglýsingar
frá traktorafyrirtækjum og litlum
fyrirtækjum frá hans heimabæ. Þá
heldur hann einnig úti eigin heima
síðu og heldur fyrirlestra. Þegar
hann er ekki að keyra situr hann
gjarnan við tölvuna í hjólhýsinu og
skrifar um ferðina.
Þegar við hittum Kurt við Nor
ræna húsið var ferðalagið hálfnað.
Hann áætlaði að það tæki fimm
vikur. Hann kom til landsins á
Seyðis firði með Norrænu og var
búinn að keyra um allt Norður
land, Vestfirði og Snæfellsnes. Auk
þess keyrði hann Kjalveg þvert yfir
landið.
Vélarafl traktorsins er 61 hestafl
og Kurt hefur komið honum upp í
31 kílómetra hraða á klukkustund.
Yfirleitt keyrir hann þó ekki á nema
25. Venjulegir bílar með hjólhýsi
geta angrað aðra ökumenn, hvað
þá hægfara traktor.
Verða ökumenn ekki pirraðir á
þér?
„Nei, ég hef ekki lent í neinum
vandræðum,“ segir Kurt. „Öku
menn sýna mér stundum puttann,
en aldrei löngutöngina heldur
aðeins þumalinn upp. Fólki finnst
þetta skemmtilegt og öðruvísi.
Það kemur til mín og vill fá að taka
mynd eða bjóða mér heim til sín í
kaffi. Allir hafa verið mjög vinsam
legir, bæði heimamenn og aðrir
erlendir ferðamenn. Mér hefur til
dæmis verið boðið að gista í garð
inum við heimahús á Akureyri og
fékk að skoða laxeldisbú.“
Á ferð sinni um Skandinavíu lenti
Kurt tvisvar í vandræðum með
traktorinn en segir að það hafi verið
hans eigin sök. Hér á Íslandi hefur
ekkert komið upp á. Stærsta áfallið
var þegar poki af sykri rifnaði og
sturtaðist yfir allt eldhúsið í hjól
hýsinu.
„Vegirnir hérna eru góðir. Mun
betri en heima í Danmörku þar sem
stjórnvöld eru óviljug til að leggja
mikla peninga í viðhald. Traktorinn
minn hefur hins vegar enga fjöðrun
eins og bílar hafa. Á malarvegum
þarf ég því að fara hægt og eftir að
ég keyrði Kjalveginn varð ég mjög
þreyttur. Sá vegur er mjög erfiður og
mér er sagt að fólk keyri hann ekki á
venjulegum fólksbílum. En á honum
er margt að sjá fyrir ferðamenn.“
Kurt hikar lengi þegar hann er
spurður út í fegursta staðinn sem
hann hafi séð.
„Ég get ekki svarað þessari
spurningu. Allir staðir eru fallegir á
Íslandi. En ég er hrifnari af sveitinni
en þéttbýlinu,“ segir hann. „Sjáðu
til, ég er svolítið hræddur við marg
menni.“
Verður þú ekki einmana?
„Nei, alls ekki. Ég hitti marga og
hringi reglulega í konuna. En ég get
vel skilið að þessi ferðamáti sé ekki
fyrir alla. Ef einmanaleiki myndi
hrjá mig þá væri ég ekki að þessu.“
Hvert ætlar þú næst?
„Það er ekki alveg ákveðið. Ég hef
hugsað um að keyra allan hringinn
í kringum Eystrasaltið. Einnig um
að flytja traktorinn yfir Atlantshaf
til Kanada, keyra þaðan vestur til
Kyrrahafs, suður eftir strönd Banda
ríkjanna og síðan í gegnum Suður
ríkin til baka. Þetta er allt saman í
skoðun,“ segir Kurt sem er greini
lega hvergi nærri hættur.
Eftir viðkomu í Reykjavík mun
Kurt halda ótrauður áfram austur
eftir Suðurlandi og austur til Seyð
isfjarðar. Þar mun hann taka Nor
rænu aftur heim til Danmerkur.
VEGIRNIR HÉRNA ERU
GÓÐIR. MUN BETRI EN
HEIMA Í DANMÖRKU ÞAR
SEM STJÓRNVÖLD ERU
ÓVILJUG TIL AÐ LEGGJA
MIKLA PENINGA Í VIÐ-
HALD. TRAKTORINN MINN
HEFUR HINS VEGAR ENGA
FJÖÐRUN. Kurt er 67 ára gamall og nýlega kominn á eftirlaun. Hann er doktor í norrænum bókmenntum, starfaði sem kennari og
átti lítinn bóndabæ við bæinn
Reersö á vesturhluta Sjálands.
Kurt og eiginkona hans seldu
nýlega býlið en héldu eftir trakt
ornum, sem er finnskur af gerðinni
Valmet. En hann hafa þau átt í þrjá
tíu ár. En af hverju er Kurt að keyra
um Ísland?
„Ég veit ekkert af hverju mér datt
þetta í hug,“ segir Kurt. „Ég fór í
sams konar ferð fyrir tveimur árum.
Þá keyrði ég norður eftir Svíþjóð og
Noregi, allt til Norðurhafsins, og
síðan suður eftir Finnlandi og með
ferju yfir Eystrasaltið.“
Í þeirri ferð var Kurt boðið að
heimsækja verksmiðjuna þar sem
traktorinn hans var framleiddur.
„Þegar ég var að keyra um Skand
inavíu hugsaði ég með mér: Hvert
næst? Af hverju ekki til Íslands?“
Kurt er ekki ókunnugur hér á
landi. Fyrir um 25 árum kom Kurt
ásamt eiginkonu sinni og dóttur
og keyrði hringveginn, en á bíl. Þá
kom hann hingað stuttlega fyrir
átta árum þegar hann var á leiðinni
til Grænlands í tengslum við bókar
skrif. Kurt hefur skrifað alls átta
bækur, þar af þrjár skáldsögur og
nokkrar ævisögur.
Kurt segir að eiginkonan hafi
Viðfangsefnið
er eldri maður
frá Danmörku
sem er að keyra
um Ísland á
traktor.
Hjólhýsi Kurts er þakið litríkum auglýsingum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Enginn
pirraður
á Kurt
Á þjóðvegum landsins hafa margir tekið
eftir manni á traktor með áfast hjólhýsi.
Þetta er hinn danski Kurt L. Frederiksen
sem er að aka hringinn í kringum Ísland og
upp um fjöll og firnindi. Fréttablaðið ræddi
við Kurt um þetta uppátæki, bakgrunn
hans og viðbrögð fólks á vegum úti.
Kristinn Haukur
Guðnason
kristinnhaukur@frettabladid.is
2 0 . J Ú L Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R16 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
HELGIN
2
0
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
7
3
-E
9
3
4
2
3
7
3
-E
7
F
8
2
3
7
3
-E
6
B
C
2
3
7
3
-E
5
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
7
2
s
_
1
9
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K