Fréttablaðið - 20.07.2019, Page 22

Fréttablaðið - 20.07.2019, Page 22
Skilja áhyggjurnar eftir í sjónum Þær stunda stífar æfingar þessa dagana og stefna á tveggja klukkutíma sund á næstunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Marglytturnar eru mættar í Naut-hólsvík til að æfa. Þær eru sex talsins og æfa stíft þessa dag- ana fyrir boðsundið yfir Ermarsund í september og á næstunni ætla þær allar að taka tveggja tíma langa sund æfingu í sjónum. Ermarsundið, sem stundum er kallað „Mount Eve- rest sjósundfólks“, er 34 km leið á milli borganna Dover í Englandi og Cap Gris í Frakklandi. Sundhópurinn samanstendur af miklum afrekskonum sem allar stunda fjölbreytta útivist og íþróttir í náttúrunni. Marglytturnar eru Birna Braga- dóttir, ráðgjafi hjá Capacent og Íslandsmeistari í 1.000 m sjósundi, Sigrún Þ. Geirsdóttir sem er eina íslenska konan sem hefur synt ein yfir Ermarsundið og reyndar líka fyrsti Íslendingurinn sem gerði það í fyrstu tilraun, Brynhildur Ólafs- dóttir fjallaleiðsögumaður, Sigur- laug María Jónsdóttir sundkona, Þórey Vilhjálmsdóttir, útivistar- kona og ráðgjafi hjá Capacent, og Halldóra Gyða Matthíasdóttir þrí- þrautarkona. Fimm kvennanna eru landvættir, þær Þórey, Sigurlaug María, Brynhildur, Halldóra og Birna. Landvættirnar er fjölþrauta- félag en til að geta orðið vættur þarf að ganga 50 km skíðagöngu á Ísa- firði, hlaupa 32,7 km frá Dettifossi í Ásbyrgi, synda 2,5 km í Urriðavatni og hjóla 60 km frá Hafnarfirði, svo- kallaðan Bláalónshring. Birna, þú varðst Íslandsmeistari í sjósundi í fyrra, hefurðu æft lengi? Birna: Ég byrjaði að æfa fyrir þremur árum og varð nú eiginlega alveg óvart Íslandsmeistari í sjó- sundi. Fyrir tveimur árum varð ég í öðru sæti og kom sjálfri mér ræki- lega á óvart. Mér finnst ég frekar vera Íslandsmeistari í þrautseigju því ég neita að gefast upp. Það er ótrúlega skammur tími síðan. Hvað með ykkur hinar? Þórey: Ég byrjaði líka að æfa sjó- sund fyrir þremur árum, ég held það eigi við um okkur flestar nema Sigrúnu og Sillu sem eru meistar- arnir í hópnum. Sigrún er auð- vitað almeistari því hún hefur synt Ermar sundið ein. Silla: Ég byrjaði fyrir fjórum mán- uðum að æfa sjósund en er mikil sundkona, ég byrjaði sex ára að æfa sund og hef synt mikið í vötnum. Ég er fædd og uppalin í Lúxemborg og æfði þar. Halldóra: Ég hef heldur ekkert æft sund að ráði og hef einbeitt mér að öðrum íþróttagreinum hingað til, en sund er partur af þríþrautinni og ég hef að sjálfsögðu æft fyrir hana. Sigrún: Ég lærði skriðsund fyrst árið 2012, það er nú ekki lengra síðan. Ég fór svo fyrsta boðsundið í Marglytturnar Birna Bragadóttir er tvöfaldur land­ vættur, land­ vættaþjálfari og silfurhafi á Íslandsmeist­ aramótinu í 3.000 m sjósundi 2017 og Íslandsmeistari í 1.000 m sjósundi 2018 og stundar einnig hjólreiðar, allar skíðategundir, náttúruhlaup og fjallgöngur. Sigrún Þ. Geirsdóttir er fyrsta og eina íslenska konan sem synt hefur yfir Ermarsund ein og fyrsti Íslendingurinn sem það gerði í fyrstu tilraun. Að auki hefur hún tvisvar synt boðsund yfir Ermarsund og mörg sjósund við Ísland. Brynhildur Ólafsdóttir er landvætta­ þjálfari, fjalla­ leiðsögumaður og annar þátta­ stjórnenda sjónvarps­ þáttanna Úti á RÚV og útvarpsþáttarins Útivarpsins á Rás 2. Hún er á fjórða land­ vættaári sem snýst um keppni í skíðagöngu, fjallahjólreiðum, vatnasundi og fjallahlaupi. Sigurlaug María Jónsdóttir er landvættur, tvöfaldur Laugavegs­ hlaupari og vann Urriða­ vatnssundið 2017. Fyrir utan það að synda mikið þá stundar hún náttúruhlaup, fjallgöngur og svig­ og gönguskíði. Halldóra Gyða Matthíasdóttir hefur hlaupið 170 km utanvega­ hlaup, farið sjö utanvega­ hlaup lengri en 100 km, er eina íslenska konan sem hefur klárað Mt. Esja Ultra Iceland, sem eru 11 ferðir upp að Steini, auk þess hefur hún klárað fimm Ironman­keppnir og nokkur maraþon. Þórey Vilhjálmsdóttir er tvöfaldur land­ vættur og hefur tekið þátt í fjölda íþrótta­ og útivistar­ keppna. Hún stundar sjósund, fjalla­ hlaup, fjalla­ og götu­ hjólreiðar, allar skíðategundir og fjallgöngur. Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is Sex afrekskonur ætla að synda boð­ sund yfir Ermar­ sund í september. Markmiðið með sundinu er að vekja athygli á áhrifum plastmengunar á lífríki sjávar en ástand þess í Ermar­ sundi er slæmt. sjósundi yfir Ermarsund árið 2013 og svo aftur ári síðar. 2015 synti ég ein yfir Ermarsund. Hvað er það eiginlega við sjó- sundið sem heillar ykkur? Sigrún: Það er hreinlega bara eitt- hvað yfirnáttúrulegt. Þórey: Sjórinn er svo heilandi. Að fara í nokkrar mínútur í sjósund er eins og að fara á þriggja tíma æfingu. Maður fær sömu líðanina á eftir og skilur allar áhyggjur eftir í sjónum. Ef maður er eitthvað leiður eða þreyttur þá er langbest að fara í sjóinn. Og var fyrsta skiptið ekkert erfitt? Að yfirstíga kuldann? Birna: Jú, það var erfitt og mér finnst alltaf erfitt að fara í sjóinn. En það er hluti af þessu og er áskorun. Þegar maður kemst yfir það og er búinn að synda þá líður manni allt- af eins og sigurvegara. Maður hefur náð að sigrast á sjálfum sér. Brynhildur: Þetta ræsir líkam- ann, maður fyllist orku á fáeinum mínútum. Þetta er bara dásamlegt. En fyrsta skiptið hjá mér, áhrifin voru svo rosaleg. Ég kom upp úr, ég hafði bara rétt dýft mér ofan í og fannst eins og húðin hefði skroppið saman um eitt númer. Ég fann fyrir auknum krafti í öllum líkamanum og fannst ég þess vegna geta hlaupið maraþon þegar ég kom upp úr, maður sækir í þessi áhrif, aftur og aftur. Birna: Sumir spyrja hvort þetta sé ekki eins og að fara í köldu pottana í sundlaugunum. En það er alls ekki hægt að líkja því saman. Í sjósundi er maður með náttúrunni, í f læði. Það er ekkert sem truflar og maður hugsar aðeins um líðandi stund. Hvernig varð þetta verkefni að veruleika? Þórey: Við vorum fjórar saman í Landvættunum og þessi hugmynd kviknaði fyrir tveimur árum. Við vildum finna mestu naglana með okkur og það var draumur að fá Halldóru og Sigrúnu með. Við hugsuðum með okkur, hvaða konur munu alls ekki klikka, ekki hætta við og eru bara eiturharðar og það eru þær! Sig rún: Ég þekkti Halldóru aðeins en hinar lítið sem ekkert. Ég er því að fara svolítið út fyrir þægindarammann. Ég byrjaði árið 2008 að synda sjósund og þá var ég í slæmu ásigkomulagi. Ég var við það að verða offitusjúklingur og þurfti að gera eitthvað róttækt í mínum málum. Lífið tók stakkaskiptum, það er svo margt sem lagast and- lega og líkamlega við það að synda sjósund. Þetta er svo heilsueflandi sport, nokkrar mínútur í sjónum eru eins og að öðlast nýtt líf. Þetta gerir mikið fyrir mann og ég hvet alla til þess að prófa. Ég bý í Mos- fellsbæ og sumir spyrja: hvernig nennir þú að keyra alla leiðina úr Mosó til þess að synda nokkrar mínútur í sjónum? Þetta er svarið. Markmið Marglyttanna er fyrst og fremst að komast yfir Ermarsund og safna áheitum fyrir Bláa herinn og þær vilja sporna gegn plastmeng- un í sjónum. En líka að hvetja aðrar konur til þess að lifa ævintýralegu lífi og gefa sér tíma til að njóta úti- vistar og náttúrunnar. Þórey: Við erum allar konur sem höfum ákveðið að fara óhefð- bundnar leiðir. Við erum allar að gera alls konar skemmtilegt, hlaupa, synda, hjóla og fara á skíði. Við leyfum okkur að gera þetta og viljum hvetja aðrar konur til þess að leyfa sér líka að lifa ævintýra- legu lífi því það má! Við erum líka að vekja athygli á umhverfismálum og ætlum að styrkja Bláa herinn, safna áheitum og vinna gegn plast- mengun í sjónum. Og hvers vegna heitið þið Mar- glytturnar? Birna: Við heitum eftir þeim dýrum sem við hræðumst mest. Þórey: Það er eiginlega okkar helsti ótti að synda inn í torfu af marglyttum. Sigrún: Við eigum alveg örugg- lega eftir að synda í gegnum heilu ættarmótin. Birna: Þær eru líka hér á Íslandi, ég fékk bruna í gær. Sigrún: En besta lækningin er bara að vera í sjónum. Þórey: Og vera bara einar af þeim! Sigrún: Í svona sundi þá þarf maður að horfast í augu við óttann. Það eru ekki bara marglytturnar, það eru alls kyns önnur sjávardýr, skipaumferð og myrkrið. Þetta er leikur við hausinn. Það getur verið mjög stressandi að taka sundsprett í niðamyrkri en maður hefur gott af því. Brynhildur: Sjósundið gefur svo marga möguleika, við viljum líta á strandlengjuna við Ísland sem leik- svæði. Þórey: Og við viljum hafa strand- lengjuna hreina til að geta synt þar. 2 0 . J Ú L Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R22 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 0 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 2 F B 0 7 2 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 7 3 -E 4 4 4 2 3 7 3 -E 3 0 8 2 3 7 3 -E 1 C C 2 3 7 3 -E 0 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 7 2 s _ 1 9 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.