Fréttablaðið - 20.07.2019, Síða 12

Fréttablaðið - 20.07.2019, Síða 12
Selfoss reynir í þriðja skipti við bikarmeistaratitilinn Selfoss lagði Fylki að velli með einu marki gegn engu þegar liðin mættust í undanúrslitum Mjólkurbikars kvenna í knattspyrnu á Würth-vellinum í Árbænum í gærkvöldi. Það var enski miðjumaðurinn Grace Rapp sem skoraði sigurmark Selfyssinga. Selfoss mun annaðhvort mæta KR eða Þór/KA í úrslitum en liðin etja kappi á Meistaravöllum í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR FÓTBOLTI Knattspyrnukonan Cloé Lacasse sem leikið hefur með ÍBV frá árinu 2015 hefur gert samning við portúgalska liðið Benfica. Cloé lék 89 leiki með ÍBV og skoraði í þeim leikjum 60 mörk en hún varð bikarmeistari með liðinu sumarið 2017. Benfica verður nýliði í portúgölsku efstu deildinni á kom- andi keppnistímabili. Það er vonandi að Cloé, sem er fædd í Kanada en fékk nýlega íslenskan ríkisborgararétt og er orðin gjaldgeng með íslenska landsliðinu, gangi jafn vel að finna netmöskva andstæðinga sinna í Portúgal og hér heima. Þetta er hins vegar gríðarleg blóð- taka fyrir ÍBV sem missir sinn mesta markaskorara fyrir lokasprett deildarinnar. ÍBV situr í áttunda sæti Pepsi Max-deildarinnar með níu stig og tveimur stigum frá fallsæti. Eyjaliðið hefur hins vegar samið við bandaríska sóknarmanninn Brennu Loveru og fær hún það verðuga verkefni að fylla skarðið sem Cloé skilur eftir stig. – hó Cloé farin til Benfica  2 0 . J Ú L Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT GOLF Bandaríski kylf ingurinn Tiger Woods féll í gær úr leik á opna breska meistaramótinu í golfi, The Open, sem er fjórða risamót ársins. Tiger náði sér ekki á f lug á fyrstu tveimur hringjum  mótsins sem fram fer á Royal Portrush-vellinum á Norður-Írlandi að þessu sinni. Hann spilaði fyrsta hringinn á sjö höggum yfir pari vallarins en annar hringurinn var hins vegar betri en þar lék hann á einu höggi undir pari. Niðurskurðarlínan er miðuð við að leika hringina tvo á einu höggi yfir pari vallarins. Tiger vann sinn f immtánda risatitil þegar hann vann Masters- mótið í apríl fyrr á þessu ári. Þetta er í fyrsta skipti á þessari öld sem sigurvegari Masters-mótsins fer í kjölfarið ekki í gegnum niður- skurðinn á næstu tveimur risamót- um, það er PGA-meistaramótið og opna breska. Norður-ÍrinnRory Mcllroy sem ætlaði sér stóra hluti á heimavelli sínum komst ekki í gegnum niður- skurðinn en hann kom í hús eftir annan hringinn á tveimur höggum yfir pari vallarins eftir sveif lu- kennda frammistöðu sína. Bandaríkjamaðurinn JB Holmes og Írinn Shane Lowry eru efstir eftir fyrstu tvo hringina en þeir hafa báðir leikið þá á átta höggum undir pari vallarins.  E n g l e n d i n g a r n i r To m m y Fleetwood og Lee Westwood koma þar á eftir á sjö höggum undir pari vallarins. Cameron Smith, Justin Harding og Justin Rose eru svo í seilingarfjarlægð frá toppnum á sex höggum undir pari. Brooks Koepka, sem ásamt Tiger þótti sigurstranglegur fyrir mótið, er ásamt Jordan Spieth, Andrew Putnam og Dylan Frittelli á fimm höggum undir pari fyrir lokahring- ina tvo sem leiknir verða í dag og á morgun. Ítalinn Francesco Molinari sem á titil að verja á mótinu komst naum- lega í gegnum niðurskurðinn en hann hefur leikið fyrri hringina tvo á einu höggi yfir pari vallarins. – hó Tiger ekki í gegnum niðurskurðinn Cloé Lacasse leikur með Benfica. Bandaríski kylfingurinn JB Holmes er annar þeirra sem leiða eftir tvo hringi á opna breska. NORDICPHOTOS/GETTY Tiger Woods varð fyrsti kylfingurinn á þessari öld til að vinna Masters en fara svo ekki í gegnum niður- skurð á PGA og The Open. FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Spretthlauparinn Guðbjörg Jóna Bjarna dótt ir tryggði sér í gær farseðilinn í undanúrslit í 200 metra hlaupi á  á Evr ópu mótinu í frjálsum íþróttum hjá frjálsíþrótta- fólki 20 ára og yngri sem fram fer í Borås í Svíþjóð um helgina. Guðbjörg Jóna  hljóp á tíman- um 24,06 sek únd ur í undanrásum í gær og skilaði það henni í annað sæti í hennar riðli. Sá tími er um það bil  hálfri sek úndu frá Íslands meti henn ar. Tími Guðbjarg ar  var sá tí undi besti í und an rás un um, en 16 hlaup ar ar taka þátt í undanúr- slit un um í dag og átta keppendur komast í úrslitahlaupið. Íslands met Guðbjarg ar, 23,45 sek únd ur, er fjórði besti tími allra á mót inu og á hún því fína mögu leika á verðlaun um. Undanúr slit in byrja klukkan 8.40 í dag  og úr slita hlaupið fer fram klukkan 16.25 síðdegis. Valdimar Hjalti Erlendsson er kominn í úrslit í kringlukasti en hann kastaði 56,04 metra í undanúr- slitum og átti fimmta lengsta kastið. Til þess að komast í úrslit þurfti að kasta 59 metra eða enda á meðal tólf efstu í báðum keppnishópum. Í seinni keppnishóp köstuðu aðeins fjórir lengra en Valdimar og því varð hann níundi inn í úrslitin sem fara fram á morgun. Erna Sóley Gunnarsdóttir keppir í kúluvarpi í undanúrslitum klukkan 09.30 í dag. Erna á best 16,13 metra en til þess að komast í úrslit þarf hún að kasta 15,40 metra. Þórdís Eva Steinsdóttir komst ekki áfram í úrslit í 400 metra hlaupi. – hó Guðbjörg var nálægt meti 2 0 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 2 F B 0 7 2 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 7 3 -C 6 A 4 2 3 7 3 -C 5 6 8 2 3 7 3 -C 4 2 C 2 3 7 3 -C 2 F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 7 2 s _ 1 9 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.