Fréttablaðið - 20.07.2019, Síða 24
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Benedikt Bóas Hinriksson,
benediktboas@frettabladid.is, s. 550 5763 | Ásta Eir Árnadóttir, astaeir@frettabladid.is, s. 550 5764
| Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Sólrún Freyja Sen,
solrunfreyja@frettabladid.is, s. 550 5765 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Tómas hafði ekki heyrt af þessari samlíkingu en var stoltur af. „Báðir hafa verið í miklu
uppáhaldi hjá mér og þeir hafa
verið mínar fyrirmyndir,“ segir
hann. Tómas er aðeins 26 ára en
hann hefur leikið á píanó frá sjö ára
aldri. „Ég er yngstur þriggja systk
ina og þau eldri lærðu á píanó. Mér
fannst það eiginlega skylda mín að
gera það líka en þó ekki kvöð. Það
stóð píanó í stofunni heima og úr
því ég var orðinn sjö ára var eðlilegt
í mínum huga að læra á það eins
og fólk gerir,“ segir hann. „Pabbi
spilaði á munnhörpu fyrir okkur og
var í kirkjukór en annars var ekkert
sérstaklega mikil tónlist í minni
fjölskyldu. Reyndar voru báðir afar
mínir harmóníkuleikarar og mjög
músikalskir. Alnafni minn, Tómas
Jónsson, bjó á Þingeyri og var þar
allt í öllu. Kennari, skólastjóri,
sparisjóðsstjóri og stjórnandi
kirkjukórsins. Hann spilaði einnig
á melódiku en ég hélt alltaf að hann
væri saxófónleikari, það var leik
fangasaxófónn á heimilinu. Hinn
afi minn, Ólafur Helgi Friðjónsson,
var athafnamaður í Hafnarfirði.
Hann var áhugaleikari, járnsmiður
og radíóamatör. Í garðinum var
stórt útvarpsmastur sem sást um
allan bæ,“ útskýrir Tómas. „Ég
eignaðist harmóníkurnar þeirra.“
Ætlaði að verða rokkari
Tómas segir að mestu tónlistar
áhrifin hafi hann fengið frá vini
sínum Rögnvaldi Borgþórssyni.
„Við stofnuðum hljómsveit tíu ára
og spilum enn saman. Röggi er gít
arleikari en pabbi hans hafði mikil
áhrif á okkur. Hann var músíkant
og með eigið stúdíó. Við strákarnir
vorum í Hvaleyrarskóla í Hafnar
firði, fengum að troða þar upp og
mikla hvatningu. Ég hef sömuleiðis
alltaf verið þakklátur tónmennta
kennaranum mínum sem heitir
Stefán E. Petersen en hann er sjálfur
hljómborðsleikari. Hann sýndi
okkar myndbönd með Elvis Presley
og Led Zeppelin í bland við klassísk
tónskáld. Ég hafði ekki mikinn
áhuga á klassík á þeim tíma en það
hefur breyst í seinni tíð þótt ég hafi
aldrei haft áhuga á því að vera klass
ískur píanóleikari. Ég kaupi oft Best
of plötur með gömlum tónskáldum
til að fá yfirsýn yfir stíl hvers og
eins. Rakhmanínov og Wagner
finnst mér mjög áhugaverðir.
Annars er ég algjör nýgræðingur í
þeirra heimi,“ segir Tómas og bætir
við að djassmúsík og sú tónlist sem
hefur þróast út frá henni heilli hann
mest auk rokks og popps. „Tónlist
sem er lifandi og spunnin höfðar
mjög til mín. Ég ætlaði alltaf að vera
rokkari.“
Deep Purple hafði áhrif
Tómas uppgötvaði þegar hann var
ellefu ára að þessi píanómúsík sem
hann hafði verið að læra í nokkur ár
væri ekki í neinum takti við rokkið
sem hann dreymdi um. „Á tímabili
velti ég því fyrir mér að skipta um
hljóðfæri en uppgötvaði þá Deep
Purple. Í þeirri sveit var orgelleikari
sem hét Jon Lord og lék á Hamm
ondorgel. Hann hafði gríðarleg
áhrif á mig og ég ákvað að verða
rokkorgelleikari. Ég spila mikið á
Hamm ondorgel og það er orðið eitt
af mínum aðalhljóðfærum.
Tónlist Karls Sighvatssonar hefur
einnig haft áhrif á mig og ég hef
mikið stúderað hana. Það er merki
legt hvað hann gerði með Hamm
ondorgelið fyrir íslenska tónlist.
Ég er ákaflega stoltur af því að eiga
eitt af hans orgelum eða að minnsta
kosti er ég með það í eilífðarfóstri,“
segir Tómas.
Tómas á mikið safn gamalla hljóðfæra og þau eru í raun áhugamál hans. Hér situr hann við Hammond L-122. FRETTABLAÐIÐ/STEFÁN
Í góðu sumar-
veðri er upp-
lagt að fara
utanhúss með
nikkuna og
taka nokkur lög
FRETTABLAÐIÐ/
STEFÁN
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
taka fyrir allar sínar plötur. Þá
munu þeir einnig koma fram á
Bræðslunni.
Tómas er sömuleiðis í hljóm
sveitinni ADHD sem hefur verið
að leika víða um heim og verður
með tónleika í Norræna húsinu
14. ágúst. Í þeirri hljómsveit eru
bræðurnir, Ómar og Óskar Guð
jónssynir, Magnús Trygvason
Eliassen auk Tómasar. Að auki
hefur Tómas ferðast um með Júní
usi Meyvant á tónleikum og er á
leið til Bandaríkjanna með honum
síðar í sumar. Þá spilar Tómas
einnig með hinum og þessum tón
listarmönnum í stúdíóvinnu svo
hann kemur víða við.
Dellukarl
Tómas spilar mikið á hljóðgervla,
aðallega frá áttunda og níunda
áratugunum. „Í græjum leita ég til
fortíðar og nota mikið að þessum
hljóðgervlum á plötunum mínum.
Nýjar græjur eiga til að vera
karakterlausar. Á sjötta, sjöunda,
áttunda og níunda áratugunum
kom á markað ótrúlega mikið af
rafmagnshljóðfærum sem höfðu
einstakan karakter. Meira að
segja miklu fyrr því Hammond
orgel voru fyrst framleidd árið
1935. Ég hef orðið mér úti um
gömlu græjurnar hér á landi, á
netinu og á ferðalögum.
Í Japan er til fullt af spennandi
svona dóti, sér í lagi synthesiz
erum, því mikið af þeim var fram
leitt þar á sínum tíma. Japönsk
menning byggir á virðingu fyrir
hlutum og þeim er haldið vel
við. Það má kannski segja að ég
sé dellukarl. Þetta er mitt helsta
áhugamál sem samvefst auðvitað
tónlistinni. Stundum hlusta ég á
tónlist sem mér finnst leiðinleg en
hef áhuga fyrir tækjunum sem eru
notuð,“ útskýrir hann.
„Mér finnst ótrúlega skemmti
legt að vinna við tónlist og hlakka
til komandi viku. Vinnan getur
líka stundum verið þægileg þegar
maður er með lítið barn ef maður
er laus við á daginn, eins og núna
þegar allir eru í sumarfríi,“ segir
Tómas sem var á göngu með
barnavagninn þegar við ræddum
við hann. Gangan var til þess að
svæfa barnið og það tókst.
Saga um orgel Kalla Sighvats
Þegar hann er spurður hvernig það
hafi komi til að hann sé með orgelið
heima hjá sér, svarar hann með
sögu. „Ég bý í Þorlákshöfn og Kalli
var hér mikið á síðustu árum sínum.
Hann var organisti í kirkjunni og
var með aðstöðu í Hveragerði til að
geyma öll orgelin sem hann átti.
Þegar hann flutti sig um set borgaði
hann flutningabílstjóranum með
þessu orgeli. Ekki veit ég framhald
sögunnar nema að maður hér í Þor
lákshöfn var með það í bílskúrnum.
Hann sá mig spila á tónleikum á
svipað orgel, Farfisa, sem er „sixties“
og bauð mér sitt. Mér finnst stór
kostlegt að vera með orgel sem var í
höndum Kalla þótt það sé reyndar
bilað. Ég hef einhvers konar áráttu
fyrir gömlum græjum og hef sankað
þeim að mér. Fjölskyldu minni til
ama þá eru allar geymslur fullar
af gömlum græjum,“ segir Tómas
en upplýsir að mjög margt sé þó í
stöðugri notkun.
Plata á leiðinni
Tómas hefur gefið út eina plötu
undir eigin nafni og er með tvær á
leiðinni. Hann vonast til að koma
annarri þeirra út fyrir jólin. Kona
hans heitir Ása Berglind Hjálmars
dóttir og þau eiga eitt barn saman
en hún átti áður tvö.
Fjölskyldan er á leið í Borgar
fjörð eystra með tjaldvagn en
Tómas verður með Jónasi Sig og
ritvélum framtíðarinnar á mara
þontónleikum. Þar mun Jónas
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 0 . J Ú L Í 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
2
0
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
7
3
-D
0
8
4
2
3
7
3
-C
F
4
8
2
3
7
3
-C
E
0
C
2
3
7
3
-C
C
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
7
2
s
_
1
9
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K