Fréttablaðið - 20.07.2019, Síða 46

Fréttablaðið - 20.07.2019, Síða 46
Whales of Iceland hvala-sýningin úti á Granda er ein stærsta sýning sinnar tegundar í heiminum. Þar er hægt að skoða líkön hvala í fullri stærð en sýningin hefur verið mjög vinsæl síðan hún var opnuð árið 2014,“ segir Arinbjörn Hauksson, markaðsstjóri hvala- sýningarinnar. Nýja sýningarrýmið er tileink- að verndun hvala í úthöfunum en þar er meðal annars að finna lang- reyðarlíkan í fullri stærð. Í salnum eru kynntar allar helstu ógnir sem steðja að hvölum í dag en þær eru loftslagsbreytingar, reknet, árekstur við skip, hávaðamengun og hvalveiðar. Arinbjörn segir að einnig sé farið yfir þær lausnir sem fólki standa til boða hvað varðar verndun hvala í úthöfunum. „Við erum mjög stolt af þessari nýju sýningu,“ segir Arinbjörn „Hún er sett upp í samstarfi við Alþjóðadýravelferðarsjóðinn IFAW. Þar eru sýnd stutt neðan- sjávarmyndbönd úr myndinni Sonic Sea á risastórum 8 metra skjá, sem lætur gestum líða eins og þeir séu neðansjávar. Einu sinni á dag er myndin, sem er klukku- stundarlöng, sýnd í heild sinni. Myndin fjallar um verndun líf- ríkis sjávar gegn hljóðmengun.“ Hvalasýningin á Granda saman- stendur af 23 hvalalíkönum í raunstærð, af hvölum sem fundist hafa við strendur Íslands í gegnum söguna. Sýningin er ein sú stærsta sinnar tegundar í heiminum. Þar er til dæmis að finna bæði steypi- reyði og búrhval í fullri stærð og Íslandssléttbak sem nú er í bráðri útrýmingahættu og margt f leira. „Það var mikil vinna lögð í hönnun á líkönunum. Módelin eru öll handmáluð og er hægt að sjá á þeim persónuleg einkenni Ein stærsta sýning sinnar tegundar í heiminum Hvalasýningin samanstendur af 23 hvalalíkönum í raunstærð. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir opnaði nýtt gagnvirkt sýningarrými á hvalasýningunni.Neðansjávarmyndbönd eru sýnd á risastórum skjá. Gestir á opnun nýja sýningarýmisins prófa gagnvirknina. Nýtt gagnvirkt sýningarrými var nýlega opnað á hvalassýning- unni Whales of Iceland við Fiski- slóð í Reykja- vík. Þórdís Kol- brún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamála- og nýsköpunarráð- herra opnaði rýmið formlega. lifað sjávarlífið í návígi þegar það skoðar nákvæmar eftirlíkingar af þessum stórkostlegu sjávardýrum. Arinbjörn segir að starfsfólk hvalasýningarinnar sé drifið áfram af mikilli og djúpri virðingu fyrir hvölunum og lífríki þeirra. „Við trúum því að starf okkar breiði út þessa virðingu fyrir hvöl- um, bæði hér heima og erlendis,“ segir Arinbjörn að lokum. sem rekja má til raunverulegs hvals í hafinu,“ segir Arinbjörn og bætir við að líkönin séu mjúk og nokkuð raunveruleg í snert- ingu sem eykur upplifunargildi sýningarinnar. Með gagnvirkum upplýsinga- skjáum, róandi hvalahljóðum, neðansjávarlýsingu og svörtu og gulu sandgólfi er hvalasýningin, Whales of Iceland eins og draum- kenndur ævintýraheimur fyrir alla fjölskylduna. Whales of Iceland býður, auk sýningarinnar, upp á einstaka aðstöðu fyrir veislur, móttökur og fjölbreytta viðburði á borð við árshátíðir og tónlistarviðburði. „Upplifunin er svolítið eins og kvöldstund í undirdjúpunum. Það hafa ýmsir stórviðburðir átt sér stað hjá okkur eins og Iceland Airwaves, heimsmeistarakeppni barþjóna, kvikmyndahátíðir, árshátíðir, vörukynningar, fundir, stórafmæli og margt f leira,“ segir Arinbjörn. Hlutverk hvalasýningarinnar er að fræða almenning um hinn við- kvæma en um leið töfrandi heim hvala og höfrunga. Á sýningunni getur jafnt áhugafólk sem og sér- fræðingar um lífríki hafsins upp- 8 KYNNINGARBLAÐ 2 0 . J Ú L Í 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RSÖFN Á ÍSLANDI 2 0 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 2 F B 0 7 2 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 7 4 -1 5 A 4 2 3 7 4 -1 4 6 8 2 3 7 4 -1 3 2 C 2 3 7 4 -1 1 F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 7 2 s _ 1 9 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.