Fréttablaðið - 20.07.2019, Side 52
Við hittum Dóru Björt á kaffihúsi í mið-bænum. Hún á ekki bíl og notar því helst a l m e n n i n g s s a m -göngur þegar hún
þarf að ferðast lengri leiðir. Í þetta
skiptið var hún að flýta sér og fékk
því skutl hjá þingmanni Pírata. „Ég
vil kaffið mitt svart. Svart eins og
sál mín,“ segir hún og hlær hátt.
Húmorinn er mjög skammt
frá yfirborðinu, en það verður að
segjast að hann sé nokkuð óhefð-
bundinn. „Ég er komin af upp-
reisnarmönnum. Bæði vinstrafólki
að vestan og hörðum Sjálfstæðis-
mönnum. Þess vegna vil ég passa
að fyrirtæki fái að dafna og einka-
framtakið njóti sín, en á sama tíma
að passa að allir fái þann stuðning
sem þeir þurfa. Rautt og blátt sam-
einast í fjólublátt.“
Vill hún þó ekki meina að það
útskýri að fullu hvers vegna hún sé
pínu spes. „Það gæti verið af því að ég
er alin upp í Elliðaárdalnum. Það er
sveit í borg þannig að ég hafði mikið
rými til að vera ein. Fór upp í tré að
lesa eða var úti í skógi að dúlla mér.“
Dóra Björt tók við embættinu á
þrítugsafmælinu sínu síðasta sumar
og varð þar með yngsti borgarfull-
trúinn til að gegna embættinu frá
upphafi. „Þetta er klárlega erfiðara
starf en ég gerði mér grein fyrir
en starf sem býður þó upp á f leiri
möguleika til að koma hugsjónum
mínum til leiðar en ég hafði séð
fyrir. Hvílíkt ár,“ segir Dóra Björt.
„Það er skemmtileg tilviljun
að við Pawel séum bæði að feta
ótroðnar slóðir – ég sem yngsti for-
seti sögunnar og Pawel sem fyrsti
forsetinn af erlendum uppruna.“
Það sem eftir lifir af kjörtímabilinu
stýrir hún mannréttinda-, nýsköp-
unar- og lýðræðisráði borgarinnar.
Eru það málefni sem eru henni og
Pírötum mjög hugleikin.
Hún bjó í sjö ár erlendis, í Noregi
og Þýskalandi, en flutti heim til að
taka þátt í stjórnmálum. „Ég þoldi
ekki að horfa upp á ástandið úr fjar-
lægð,“ segir Dóra Björt.
,,Þegar ég flutti heim fannst sumu
fólki í Pírötum ég vera of mjúk. Það
var sagt um mig að ég ætti ekki séns
í úlfagryfjunni. Ég væri of mjúk
fyrir þetta erfiða umhverfi og hefði
ekki nægilega mikla hörku,“ segir
hún og lítur upp. „Mig langar til að
sýna ungum konum að þær geti náð
markmiðum sínum þrátt fyrir nei-
kvæðnisraddir. Lykillinn er að trúa
á sjálfa sig og gefast ekki upp þótt á
móti blási.“
Þrátt fyrir mikinn metnað hefur
hún þó lítinn áhuga á að verða borg-
arstjóri. „Ég treysti mér alveg í það,
en ég er ekki týpan til að láta taka
myndir af mér reglulega að klippa
borða,“ segir Dóra Björt. „Ég vil
vinna að verkefnum sem skipta máli.
Ég vil halda áfram að auka gagnsæi,
bæði innan kerfisins og líka þegar
kemur að kjörnum fulltrúum.“
Dóra Björt segir að nú þegar hafi
hún náð ýmsu í gegn. Þar á meðal
að hafa hleypt minnihlutanum inn í
forsætisnefnd og að birta laun kjör-
inna fulltrúa á vefnum. „Á síðasta
fundi borgarstjórnar sem forseti
lagði ég fram drög að nýjum hags-
munaskráningarreglum sem eru
framsæknar og ganga enn lengra en
nýjar reglur Alþingis og munu auka
gagnsæi í kringum hagsmuni kjör-
inna fulltrúa og æðstu embættis-
manna til muna.“
Hennar markmið er að gera
Reykjavík að grænni nútímaborg.
„Ég lít á mig sem kyndilbera fólks
sem hefur upplifað lífsgæðin við
það að búa í þéttri og frjálslyndri
borg þar sem þú þarft ekki að eiga
bíl og hefur aðgang að nærþjónustu.
Takturinn í lífinu breytist, heilsan
batnar og það verða til svona
núvitundaraugnablik í hversdags-
leikanum sem þessi borgarumgjörð
getur skapað.“
Dóra Björt hefur vakið nokkra
athygli fyrir að lesa alltaf ljóð í lok
fundar. Fékk hún innblástur frá
forvera sínum, Elsu Yeoman, sem
endaði fundi sína sem forseti á að
bjóða góða nótt og segja: „Takk
fyrir að velja Reykjavík.“ „Þetta var
eins og hún væri að vinna fyrir f lug-
félag. Mér fannst það eitthvað svo
krúttlegt og kúl að ég ákvað að búa
til mína eigin hefð með því að lesa
alltaf ljóð sem fanga stemningu og
mál fundarins með einhverju móti.
Ég hef því aldrei valið ljóðin fyrir
fram heldur á fundinum sjálfum.
Það hefur stundum verið skrifað
um þetta í fjölmiðlum, sérstaklega
vakti það lukku þegar ég las upp
ljóðið ,,Sódóma“ eftir skáldahópinn
Sálina hans Jóns míns.“
Hún gekk skrefinu lengra þegar
hún fór með leikþátt í pontu. Lék
hún atriði úr gamanþáttunum Litla
Bretland til að sýna fram á mikil-
vægi þjónustustefnu Reykjavíkur.
„Þjónustustefnan á að koma í veg
fyrir svona hugarfar eins og kemur
fram í ,,Computer says no“ leikþætt-
inum úr Little Britain. Ég ákvað að
bæta honum framan við ræðuna
mína bara rétt fyrir fund og þýddi
leikþáttinn á núll einni. Það var hin
fínasta ákvörðun.“
Veturinn hefur verið með þeim
stormasamari í borgarstjórn,
minnihlutinn hefur verið með
klærnar á lofti og reglulega falla stór
orð, bæði í pontu og í fjölmiðlum.
„Mín upplifun er sú að sumir full-
trúar minnihlutans deili ekki þeirri
sýn með mér að gagnrýni þurfi að
vera málefnaleg.”
Samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup
frá því í mars minnkaði traust til
borgarstjórnar Reykjavíkur milli
ára, lækkaði hlutfall þeirra sem
bera mikið traust til hennar um
8 prósentustig og fór úr 24 pró-
sentum í 16 prósent. Er það minna
traust en til Alþingis. „Niðurrif
er af hinu slæma og þegar það
gengur svo langt að það lamar
kerfin og kemur í veg fyrir að góð
mál komist til framkvæmda þá
kemur það fyrst og fremst niður
á borgarbúum,“ segir Dóra Björt.
„Ef samskiptin eru svo eitruð
að borgarstjórn fær á sig nei-
kvætt yfirbragð þá grefur það
líka undan trausti almennings á
kjörnum fulltrúum og stjórnmál-
um yfirleitt. Þetta er lýðræðislegt
vandamál.“
Meirihlutinn hefur virkað út á við
sem mjög samheldinn hópur. „Sem
hann er. Við erum sammála um svo
margt, hvort sem það er borgarlína,
f lugvöllurinn eða skipulagsmál. Ég
held að við séum róttækasta aflið
sem er við stjórn á landinu þegar
kemur að loftslagsmálum,“ segir
Dóra Björt.
Það sést á henni að hún vill koma
næstu orðum rétt frá sér. „Við sjáum
um að framkvæma, það sem við
erum ekki sammála um fer ekki til
framkvæmda. Við höfum alveg rif-
ist og erum augljóslega mjög ósam-
mála um ýmislegt enda gjörólíkir
f lokkar. En við leysum það bara
okkar á milli og meirihlutasam-
starfið hefur aldrei verið í hættu.“
Bros Dóru Bjartar dofnar. „Ég ætla
bara að vera hreinskilin og segja að
þetta getur verið erfitt. Suma daga
þrái ég ekkert frekar en að loka mig
frá umheiminum. En ef þú mætir
ekki í vinnuna og lætur ekki í þér
heyra þá vantar þína rödd í her-
bergið. Kjósendur mínir treysta á
að mín rödd heyrist í öllum þessum
herbergjum á hverjum degi og það
eru þeir sem koma mér á staðinn.
En þessi erfiðu augnablik hafa
líka styrkt mig. Mér hefur tekist
að takast betur á við ljótar athuga-
semdir sem hefðu sært mig fyrir ári
og jafnvel látið mig efast um eigið
ágæti,“ segir hún.
„En auðvitað er þetta vandasamt
því þú vilt heldur ekki búa til skjöld
og loka alla úti. Því er þetta jafn-
vægislist. Þú verður bara að muna
athugasemdir hverra skipta máli.
Þarna úti er fullt af fólki sem vill
ekkert frekar en að þér mistakist
og nýtur þess þegar þér verður á.
En það er fullt af fólki sem hefur
sömu hugsjón og þú og treystir á
þig. Það er þetta fólk sem skiptir mig
öllu máli. Það er þetta fólk sem ég
hleyp aðeins hraðar fyrir á hverjum
einasta degi.“
„Þessi á ekki séns
í úlfagryfjunni“
Árið hefur verið stormasamt hjá meirihlutanum í Reykjavík. Dóra
Björt Guðjónsdóttir, yngsti forseti borgarstjórnar í sögunni, segir
frá áskorununum sem því hafa fylgt.
„Mér hefur tekist að takast betur á við ljótar athugasemdir sem hefðu sært mig fyrir ári og jafnvel látið mig efast um eigið ágæti,“ segir Dóra Björt Guðjónsdóttir FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KARLSSON
Ari
Brynjólfsson
arib@frettabladid.is
2 0 . J Ú L Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
0
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
7
3
-E
9
3
4
2
3
7
3
-E
7
F
8
2
3
7
3
-E
6
B
C
2
3
7
3
-E
5
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
7
2
s
_
1
9
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K