Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.07.2019, Qupperneq 56

Fréttablaðið - 20.07.2019, Qupperneq 56
TÍMAMÓT Í dag er hálf öld liðin frá því að Neil Armstrong steig eitt lítið skref á tunglið. Hátt í 530 milljónir manna um allan heim sátu við imbakassann og fylgdust með í beinni þegar mannkynið tók risastökk inn í framtíðina. Íslenskar fjölskyldur hjúfruðu sig saman og hlustuðu á Ríkisútvarpið. Það var björt sumar- nótt. Hjálmar Sveinsson verkfræðingur og Páll Theódórsson eðlisfræðingur lýstu og þýddu beina útsendingu frá því þegar ferjan Örninn með Armstrong og Aldrin innanborðs nálgað- ist tunglið og lenti á Friðarhafinu. Tunglferðin var draumur Kennedys Banda- ríkjaforseta. Árið 1962 hélt hann ræðu frammi fyrir áhorfendum á Rice-leikvangnum í Texas þar sem hann mælti þau orð sem mörkuðu upphaf tunglferðanna: „Við veljum að fara til tunglsins á þessum áratug. Ekki vegna þess að það sé auðvelt, heldur vegna þess að það er erfitt.“ Kennedy fékk aldrei að sjá mann ganga á tunglinu. Nixon fékk þann heiður að hringja út í geim og ræða við Neil og Buzz símleiðis. „Vegna verka ykkar eru himnarnir nú hluti af heimi manna,“ sagði hann og þakkaði þeim fyrir afrekið. Michael Collins fékk þó ekki sím- tal frá forsetanum en hann er þriðji maðurinn sem gleymist oft. Hann var um borð í geim- ferjunni Kólumbíu þegar Neil og Buzz lentu Erninum. Hann var maðurinn sem hvarf bak við tunglið og missti talstöðvarsamband við félaga sína og umheiminn allan í 48 mínútur rétt áður en Neil og Buzz áttu að lenda á tungl- inu. Hann ritaði niður hugsanir sínar í minnis- bók sína sem hann tók með sér út í geim: „Nú er ég sannarlega einsamall og algjörlega fjarri öllu þekktu lífi,“ skrifaði hann þegar samband rofnaði. „Síðastliðna sex mánuði hef ég verið hrædd- ur við að þurfa hugsanlega að skilja þá eftir á tunglinu og snúa aftur til jarðar aleinn. Eftir nokkrar mínútur kemst ég að því hvort svo verður.“ „Örninn er lentur,“ var það fyrsta sem heyrðist þegar talstöðvarsambandið náðist á ný. Starfsmenn geimvísindastöðvarinnar í Houston lásu fréttir á hverjum morgni fyrir geimfarana á leið til tunglsins. Flestar fyrir- sagnir snerust um þremenningana um borð í geimfarinu Apollo 11. Ef marka má eftirrit af öllum fjarskiptasamskiptum geimfaranna fannst þeim skemmtilegast að heyra íþrótta- fréttir. Fréttalesturinn fékk viðurnefnið The Bruce & Fred Show eftir starfsmönnunum sem lásu upp fréttirnar. Það er eitthvað rómantískt við tungllend- inguna. Ákveðin fortíðarþrá í ljósi mánaskins- ins. Geimfarafjölskyldurnar voru hinar full- komnu birtingarmyndir Ameríska draumsins með hvítum rimlagirðingum og allt. Tungllendingin sameinaði allt mannkynið og var stórsigur fyrir Bandaríkjamenn sem áður höfðu beðið lægri hlut í geimkapphlaup- inu við Rússa. Vísindamenn horfðu út á við á himinhvolfið en litu í þetta sinn til baka og sáu litlu bláu plánetuna. En stríð braust út milli Hondúras og El Salvador á landi og í lofti sama dag og Banda- ríkjamenn lögðu af stað til tunglsins. Víet- namstríðið var í algleymingi og Judy Garland var nýdáin eftir að hún tók of stóran skammt af svefnlyfjum. Meirihluti hjónabanda geim- faranna leystist upp á árunum sem liðu og geimfarar þjáðust af þunglyndi og alkóhól- isma eftir að hafa skotist út í geim og til baka. Er hægt að snúa aftur til borgaralegs lífs eftir að hafa staðið á tunglinu? Almenningur missti áhugann á tungllend- ingum og maðurinn hefur ekki farið aftur síðan 1972. Þegar leið á síðustu tunglferðina vildu sjónvarpsstöðvar frekar sýna íþróttavið- burði á besta dagskrártímanum. En NASA stefnir á að senda fyrstu konuna til tunglsins árið 2024 og byggja þar geimstöð. Það er ódýrara og auðveldara að skjóta flaug frá tunglinu ef mannkynið vill hefja mann- aðan leiðangur til Mars. Ég vona að af því verði áður en almenningur missir áhugann enn á ný. ingunnlara@frettabladid.is Hálf öld liðin frá fyrstu tunglgöngunni Fyrir fimmtíu árum steig Neil Armstrong á tunglið og mælti þessi ódauðlegu orð: „Þetta er eitt lítið skref fyrir mann, eitt risastökk fyrir mannkynið.“ Íslenskar fjölskyldur hlustuðu á Hjálmar Sveinsson og Pál Theódórsson lýsa tungllendingunni í Ríkisútvarpinu. Geimfararnir skildu eftir sig óafmáanleg spor á yfirborði tunglsins. MYND/NASA Fyrsta ljósmyndin af „jarðarupprás“ á tunglinu. Geimfararnir smelltu af áður en tunglferjan lenti á yfirborði tunglsins þann 20. júlí 1969. MYND/NASA 2 0 . J Ú L Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R28 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT 2 0 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 2 F B 0 7 2 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 7 3 -F 8 0 4 2 3 7 3 -F 6 C 8 2 3 7 3 -F 5 8 C 2 3 7 3 -F 4 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 7 2 s _ 1 9 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.