Náttúrufræðingurinn - 2019, Qupperneq 8
Náttúrufræðingurinn
8
Hartleys og Þorvalds Þórðarsonar.9 Tek-
ist hefur að safna ljósmyndum af berg-
hlaupssvæðinu frá árunum fyrir hlaupið
og er því hægt að rekja hreyfingu um
sprunguna í aðdraganda hlaupsins.
Hægfara hreyfing virðist hafa verið á
berginu í brún öskjunnar frá 2007 og
herti mjög á skriðinu sumarið 2014 (4.
mynd). Einnig sýna ljósmyndir frá 2013
sprungur nærri upptökum hlaupsins,
sem eru til marks um að víðtæk hreyf-
ing í berggrunni hafi þá verið hafin á
þessu svæði (5. mynd). Þar til nokkru
fyrir hlaupið var mesta hreyfingin á
árabilinu 2011–2012 en samkvæmt eðli
máls var hreyfingin mest skömmu fyrir
hlaupið. Á ljósmyndum sem teknar voru
10 dögum fyrir hlaupið sést að talsverð
hreyfing var orðin um sprunguna og
höfðu jarðlögin sem síðar hlupu sigið
mikið. Auk þess voru sprungur farnar að
myndast í snjóhulu í hjallanum neðan
við brún öskjunnar. Á ljósmynd sem
tekin var örfáum klukkustundum fyrir
hlaupið sést að næstum öll hlíðin ofan
Suðurbotna færðist úr stað. Mánuðinn
fyrir hlaupið var fremur hlýtt og mikið
rigndi á svæðinu að sögn landvarða,
og mikill snjór var til fjalla, sérstaklega
í Öskju austanverðri. Það er því lík-
legt að leysingar hafi hert á skriðinu í
aðdraganda hlaupsins og hugsanlega
komið því af stað.
Eldstöðin Askja í Dyngjufjöllum
samanstendur af þremur til fjórum
öskjum og er Öskjuvatn í þeirri yngstu
(6. mynd). Hún myndaðist á um þrjá-
tíu árum eftir eldgosið 1875.7,9 Fyrir
þann tíma var Öskjuvatn ekki til og því
eru öskjubarmarnir við vatnið jarð-
fræðilega mjög ungir. Slíkar hlíðar eru
óstöðugri en hlíðar í eldra landslagi
sem komist hafa í ákveðið jafnvægi.
Ljóst þykir af ummerkjum að berghlaup
hafa áður komið úr hlíðum Öskju eftir
1875 þótt menn hafi ekki orðið þeirra
varir. Stór hlaup hafa þó ekki náð niður
í vatnið á þessum tíma. Upptakasvæði
berghlaupsins 2014 er í jarðlögum sem
hlóðust upp á síðustu ísöld, að megin-
hluta lagskipt móberg. Jarðhitasvæði
er í hlíðinni á upptakasvæði berg-
hlaupsins og er það tengt súrum líp-
aríthraungúl sem hefur troðist inn í
móbergslögin.10,11 Í berghlaupinu finnst
hvort tveggja, móbergsbjörg og brot úr
líparíthraungúlnum.
Auk misgengissprungunnar í suð-
austurjaðri öskjunnar er talið að jarð-
hitinn í upptökum berghlaupsins hafi
komið við sögu í aðdraganda hlaups-
ins. Jarðhitaummyndun veikir bergið,15
breytir grunnvatnsstöðu16,17 og myndar
leirlög sem skriður geta hlaupið um.
Mælingar á jarðskorpuhreyfingum í
Öskju hófust árið 1966. Í upphafi skipt-
ust á tímabil með risi og sigi en síðan
1983 hefur askjan sigið stöðugt. Sig-
miðjan er skammt norðan við Ólafs-
3. mynd. Yfirlitsmynd af Öskjuvatni frá því fyrir berghlaupið með helstu örnefnum. Útlínur berghlaups ins 21. júlí 2014 eru rauðar. Upprétt loftmynd
frá 23. júlí 2013. – An aerial view of Lake Öskjuvatn prior to the rockslide (23 July 2013), with place names mentioned in the text. The extent of
the rockslide above the water level is indicated with a red line. ©Loftmyndir ehf.
Öskjuvatn
Askur